Morgunblaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 27
indí- og pönkhljómsveitum, þ. á m.
Fighting Shit, Celestine, og I Adapt.
Hann hóf störf sem hljóðmaður um
tvítugt og vann lengst af sem hljóð-
maður á Organ, Grand Rokk og í
Hellinum. Þá hefur hann verið upp-
tökustjóri fyrir hina ýmsu lista-
menn, svo sem Friðrik Dór, Reykja-
víkurdætur og Aquilo.
Ólafur fór fyrir hluthafahópi sem
keypti útgáfustarfsemi Senu og
stofnaði nýtt útgáfufyrirtæki, Öldu.
Ólafur gaf út sína fyrstu sólóplöt-
una árið 2006 og gerði útgáfusamn-
ing við Erased Tapes Records 2007.
Síðan þá hafa komið út þrjár plötur í
fullri lengd ásamt ýmsum stutt-
skífum, samvinnuverkefnum og
kvikmyndatónlistarplötum.
Ólafur gerði samning við útgáfu-
risann Universal árið 2013. Hann
hefur átt tónlist í ýmsum kvikmynd-
um eins og Vonarstræti, Another
Happy Day, Hunger Games, Taken
3 og vann BAFTA-verðlaunin fyrir
tónlistina í bresku sjónvarpsþátt-
unum Broadchurch. Meðal annarra
verðlauna sem Ólafur hefur hlotið
má nefna Bulldog Awards fyrir
Broadchurch; Edduna fyrir Vonar-
stræti; ADC (Art Directors Club)
fyrir listaverkið Symphonie Cineti-
que (ásamt Joachim Sauter) og
Bjartsýnisverðlaun forseta Íslands
nú í ársbyrjun.
Ólafur er eins og aðrir tónlistar-
menn þegar kemur að áhugamálum:
Tónlistin er auðvitað aðaláhuga-
málið: „En auk þess er ég nú bara
eins og annað fólk, hef áhuga á úti-
veru og hollri hreyfingu, hef alltaf
haft gaman af að ferðast, ekki síst á
framandi slóðir, og hef áhuga á
skemmtilegu fólki, góðum mat og
eðalvínum. En slær nokkur hendinni
á móti þessum almennu kryddum til-
verunnar?“
Fjölskylda
Hálfbróðir Ólafs, samfeðra, er
Stefán Arnalds, f. 19.7. 1972, at-
hafnamaður, búsettur í Reykjavík.
Alsystkini Ólafs eru Ásdís Arnalds,
f. 1.5. 1977, félagsfræðingur og dokt-
orenemi, búsett í Mosfellsbæ; Ari
Pálmar Arnalds, f. 22.1. 1980, raf-
verkfræðingur, búsettur í Reykja-
vík; Hólmfríður Ósk Arnalds, f. 4.6.
1988, atferlisfræðingur, búsett í
Mosfellsbæ.
Foreldrar Ólafs eru Andrés Arn-
alds, f. 4.12. 1948, náttúrufræðingur
og sérfræðingur hjá Landgræðslu
ríkisins, og Guðrún Pálmadóttir, f.
1.3. 1951, iðjuþjálfi og háskólakenn-
ari í Mosfellsbæ.
Úr frændgarði Ólafs Arnalds
Ólafur
Arnalds
Guðrún Björnsdóttir
húsfr. í Brúarhlíð
Þorgrímur Stefánsson
b. í Brúarhlíð i Blöndudal
Aðalbjörg Guðrún Þorgrímsdóttir
húsfr. í Holti
Pálmi Ólafsson
b. í Holti á Ásum í Austur-Hún.
Guðrún Sigríður
Pálmadóttir
iðjuþjálfi í Mosfellsbæ
Jósefína Þóranna
Pálmadóttir
húsfr. á Mörk og í Holti
Ólafur Björnsson
b. á Mörk í Laxárdal og síðar í Holti
Ólöf Gestsdóttir
húsfr. á Neðra-Hálsi, systurdóttir Kristínar
Gísladóttur húsfr. á Kiðafelli í Kjós, móður
Sigurbjörns Þorkelssonar kaupm. í Vísi í Rvík
Andrés Ólafsson
b. á Neðra-Hálsi í Kjós
Ásdís Andrésdóttir
Arnalds húsfr. í Rvík
Dr. Andrés Arnalds
fagmálastj. Landgræðslu ríkisins
Ari Arnalds
alþm. og sýslum.
á Seyðisfirði
Einar E. Kvaran
aðalbókari
Útvegsbankans
Gísli Pálmason
tónskáld á Eyvindar-
stöðum í Blöndudal
Guðrún
Gísladóttir
ráðherrafrú í
Borgarnesi og
í Rvík
Pálmi Gíslason
form. Ungmennafél.
Íslands
Böðvar E. Kvaran
framkvæmdastj.
í Rvík
Dr. Guðrún Kvaran
ritstj. Orðabókar
Háskólans
Hjörleifur Kvaran
fyrrv. borgarlögmaður
Ragnar Arnalds
rithöfundur,fyrrv.alþm.ográðherra
Matthildur
Einarsdóttir
Kvaran húsfr. á
Seyðisfirði
Ragnar H. Kvaran
landkynnir
Gunnar Kvaran
sellóleikari
Ævar R. Kvaran
leikari
Einar Arnalds
yfirborgard. og hæstaréttard.
Kristín Arnalds
cand.mag. og fyrrv. skólameistari FB
Ólafur Arnalds
prófessor við
LHÍ á Hvanneyri
Arndís Ósk Arnalds
verkfræðingur hjá
Orkuveitu Rvíkur
Ólöf Arnalds
tónlistarkona
Sigurður Ragnar Arnalds
hæstaréttarlögmaður
Eyþór Arnalds
fv. form. bæjar-
ráðs Árborgar og
tónlistarmaður
Einar Arnalds
rithöfundur og
ritstj.
Sigurður Arnalds
ritstj. og útgefandi í Rvík
Jón Laxdals
Arnalds
yfirborgard. og
ráðuneytistj.
Sigurður Arnalds
verkfr. í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Hörður Bjarnason, húsameist-ari ríkisins, fæddist íReykjavík 3.11. 1910 og ólst
þar upp. Foreldrar hans voru Bjarni
Jónsson, forstjóri Nýja Bíós í
Reykjavík, og s.k.h., Sesselja Ingi-
björg Guðmundsdóttir húsfreyja.
Hörður var í föðurætt af miklum
listamannaættum. Föðursystkini
Harðar voru Einar myndhöggvari;
Guðný, amma Sveins Björnssonar
sendiherra, og Valgerður, amma
Nínu Tryggvadóttur listmálara.
Bjarni var sonur Jóns, b. á Galt-
arfelli, bróður Helga, langafa Alfreðs
Flóka, teiknarans frábæra. Jón var
sonur Bjarna, bónda í Bolafæti Jóns-
sonar og Helgu Halldórsdóttur, syst-
ur Guðfinnu, langömmu Gests Þor-
grímssonar myndlistarmanns.
Sesselja var dóttir Guðmundar Guð-
mundssonar, bónda í Deild á Akra-
nesi.
Eiginkona Harðar var Katla Páls-
dóttir húsfreyja og eignuðust þau tvö
börn, Áslaugu Guðrúnu og Hörð.
Hörður lauk stúdentsprófi í MA
1931, fyrrihlutaprófi í byggingarlist
frá tækniháskólanum Darmstadt í
Þýskalandi 1934 og fullnaðarprófi
(Diplom Ingeniör-Hochbau) frá há-
skólanum í Dresden 1937. Hann var
skrifstofustjóri skipulagsnefndar rík-
isins 1939-44, skipulagsstjóri ríkisins
við stofnun þess embættis 1944-54 og
húsameistari ríkisins 1954-79.
Þekktustu verk Harðar eru án efa
Austurbæjarbíó (ásamt Gunnlaugi
Pálssyni og Ágústi Steingrímssyni)
Skálholtskirkja, Kópavogskirkja og
Árnagarður við Suðurgötu.
Hörður sat í skipulagsnefnd rík-
isins og skipulagsstjórn, í bygg-
inganefnd Reykjavíkur, var fram-
kvæmdastjóri Þingvallanefndar
1944-79, hafði umsjón með bygginga-
framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli,
átti sæti í varnarmálanefnd 1954-56,
var formaður byggingarnefndar
Þjóðleikhússins, lögreglustöðvar í
Reykjavík, Ríkisútvarpsins, toll-
stöðvarhúss í Reykjavík og Þjóð-
arbókhlöðunnar.
Hörður lést 2.9. 1990.
Merkir Íslendingar
Hörður
Bjarnason
95 ára
Einar Björn Einarsson
Guðjón Þorsteinsson
90 ára
Kristín H. Þórarinsdóttir
85 ára
Erlendur Haraldsson
Gísli Vigfússon
Svanhvít Gissurardóttir
80 ára
Guðrún Ákadóttir
Karen Marteinsdóttir
Magnús Guðjónsson
70 ára
Guðmundur Kristinn
Sæmundsson
Hrafnhildur
Guðmundsdóttir
Indriði Loftsson
Inga Guðbergsdóttir
Ingvar Jónsson
Ólöf Stefánsdóttir
Ragnar Ólafsson
Sædís Geirmundsdóttir
60 ára
Alma Harðardóttir
Áslaug Bjarnadóttir
Guðbjörg Helgadóttir
Guðjón Davíð Jónsson
Hrafnhildur
Sigurgeirsdóttir
Kjartan Ólason
Kristjana V. Einarsdóttir
Magnús Reynir Ástþórsson
Margrét Baldvinsdóttir
Óttar Ólafsson
Pétur Pétursson
Rannveig Traustadóttir
Stefanía Guðmundsdóttir
Trausti Marteinsson
Tryggvi Pétursson
Viðar Hreinsson
Yngvi Ólafsson
Þuríður Elín Geirsdóttir
50 ára
Anders Ólafur
Kjartansson
Árni Páll Árnason
Bergsteinn Jónasson
Bryndís Kristjánsdóttir
Cristina Gutierrez
Guðfinna Indriðadóttir
Guðrún Sonja Hreinsdóttir
Helgi Mar Friðriksson
Hilmar Birnir Hilmarsson
Ingimar Ólafsson Waage
Ingimar Pétursson
Margrét Pétursdóttir
Tiiu Laur
40 ára
Adam Szczepan Piechnik
Anna Sigríður Eyjólfsdóttir
Heiða Jónsdóttir
Jón Gestur Hauksson
Kjartan Orri Geirsson
Ledis Rocio Bornachera
Vasquez
Ólafur Helgi Ingason
Sylvía S. Kristjánsdóttir
Trausti Fannar Valsson
30 ára
Anna Sóley Viðarsdóttir
Bryndís Björk Barkardóttir
Daði Baldur Ottósson
Dorota Agnieszka Prozek
Guðný Helga Grímsdóttir
Hubert Karol Pozarycki
Hugborg Guðmundsdóttir
Jón Fannar Gunnarsson
Karina Magdalena Swachta
Katarzyna Dreksa
Kim Viljoen
Ólafur Þór Arnalds
Ruslan Ogorodnyk
Sigurður Már Ólafsson
Sævar Hjalti Óskarsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sævar ólst upp í
Grindavík, býr þar, lauk
prófi í vélfræði frá Vél-
skólanum og er vélstjóri
hjá Optimar Kapp.
Maki: Bjarney Steinunn
Einarsdóttir, f. 1986,
stuðningsfulltrúi við
Grunnskólann í Grindavík.
Börn: Emelía Ósk, f.
2008, og Einar Breki, f.
2009.
Foreldrar: Guðbjörg Eyj-
ólfsdóttir, f. 1961, og Ósk-
ar Sævarsson, f. 1961.
Sævar Hjalti
Óskarsson
30 ára Sigurður ólst upp
í Reykjavík, býr þar og er
kælimaður hjá Kælikerfi
ehf í Reykjavík.
Systkini: Aðalheiður Jó-
hanna, f. 1977; Hrafnhild-
ur Ólöf, f. 1983; Gunnar
Már, f. 1993, og Kristófer
Ingi Ingason, f. 2000.
Foreldrar: Ólafur Már
Guðmundsson, f. 1957,
listmálari í Grímsnesi, og
Sigríður Jónína Valdi-
marsdóttir, f. 1956, fyrrv.
tryggingaráðgjafi.
Sigurður Már
Ólafsson
30 ára Guðný Helga ólst
upp í Reykjavík, býr þar,
lauk prófum í uppeldis-
og menntunarfræði við
Háskóla Íslands og er nú
á námssamningi í hús-
gagnasmíði.
Maki: Nikulás Ari Hann-
igan, f. 1991, nemi í véla-
og orkutæknifræði við
Háskólann í Reykjavík.
Foreldrar: Hafdís H. Vil-
hjálmsdóttir, og Grímur
Kjartansson. Þau búa í
Reykjavík.
Guðný Helga
Grímsdóttir
alvöru grillaður kjúklingur
Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585
Opið alla daga kl. 11-22