Morgunblaðið - 03.11.2016, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hún Sóla sögukona tók aðsér þetta verkefni, endafinnst henni mjög gam-an að vinna með krökk-
um,“ segir Ólöf Sverrisdóttir leik-
kona sem margir kannast við í
hlutverki hinnar 116 ára Sólu á
Sögubílnum Æringja, en Ólöf sá um
verkefnið Friðarbrú þar sem tengd
voru saman ólík hverfi og fólk á
ólíkum aldri í gegnum ljóðagerð og
myndskreytingu, og nú stendur yfir
sýning í Gerðubergi á afrakstr-
inum.
„Þemað hjá Bókmenntaborg-
inni Reykjavík þetta árið er orð og
mynd, og bókasöfnin voru að leita
eftir hugmyndum um sýningu þar
sem unnið væri með þetta þema. Þá
datt mér strax í hug að leiða saman
kynslóðir í textagerð og myndgerð,
með því að láta leikskólabörn skrifa
ljóð og eldra fólk teikna myndir við
þann texta. Ég hafði gert svipað áð-
ur, þegar ég leiddi saman unglinga
og yngri krakka í slíku verkefni,“
segir Ólöf og bætir við að í vor þegar
hún var á röltinu niðri í bæ hafi hún
fengið þá hugmynd að koma með
nýja vídd inn í verkefnið og tengja
saman hverfi á ólíkum stöðum í
borginni.
„Leikskólakrakkarnir sem
lögðu sitt af mörkum við ljóðagerð-
ina eru í leikskólum vestur í bæ, en
textinn var svo sendur upp í Gerðu-
berg þar sem eldri borgararnir
myndskreyttu ljóðin. Ég er staðsett
með Æringja sögubílinn í Gerðu-
bergi svo það voru hæg heimatökin
að fá eldri borgara sem koma reglu-
lega þangað í félagsstarfið til að
myndskreyta friðarljóð barnanna.
Ég ákvað að láta ljóðin fjalla um frið
af því að í Gerðubergi hefur verið
friðarþema undanfarið og þar var
sýning með myndum sem málaðar
voru með vatninu úr friðarsúlunni í
Viðey.“
Skoðuðu friðarsúluna í Viðey
Ólöf segir að Sóla sögukona hafi
að sjálfsögðu aðstoðað leikskóla-
börnin við ljóðagerðina, þar sem þau
eru of ung til að gera það ein og
óstudd.
„En það dettur svo margt frum-
legt og skemmtilegt upp úr krökk-
unum, ég sagði þeim alltaf sögu,
stundum um stríð og frið, og bað þau
svo um að leggja til málanna eina
setningu hvert. Hópurinn hverju
sinni samdi því saman ljóðin. Það
sem krakkarnir lögðu til hverju sinni
fór stundum eftir því hvað hafði ver-
ið í gangi, ýmist í leikskólanum eða
þjóðfélaginu. Sum börnin vissu til
dæmis að það væri ekki friður í Sýr-
landi. Börnin í einum leikskólanum
höfðu farið út í Viðey að skoða frið-
arsúluna og þau voru mjög upptekin
af því fyrirbæri í tengslum við
friðarumræðuna okkar. Sumum
börnunum fannst friður fyrst og
fremst ganga út á að fá að vera í friði
og ró, fá að lesa bók í friði, fá að sofa
í friði og og fleira í þeim dúr. Íslensk
leikskólabörn þekkja sem betur fer
ekki raunverulegt stríð, það er mjög
fjarri þeirra veruleika, en samt sem
áður eru þau meðvituð um að grunn-
inntakið í friði er ró, það að takast
ekki á.“
Ólöf segir að það hafi verið
skemmtilegt fyrir eldri borgarana í
félagsstarfi Gerðubergs að fá í hend-
ur það verkefni að taka þátt í að
byggja Friðarbrú.
„Þetta eru reyndar allt konur,
karlarnir eru eitthvað tregari til að
mæta í myndlistina, en hún Sigur-
björg Jóhannesdóttir sem hefur ver-
ið að kenna þeim myndlist, hún lét
hverja og eina konu mála eina mynd
við eitt ljóð og þetta kemur mjög vel
út á sýningunni, enda er hún Kristín
Þóra Guðbjartsdóttir hönnuður sem
setti upp sýninguna algjör snill-
ingur. Hún sér líka um að hjálpa
ljóðakrökkunum að búa til friðar-
fugla þegar þau koma að heimsækja
Gerðuberg ásamt Ingu Maríu Leifs-
dóttur, en fuglana hengja þau á trjá-
greinar.“
Mætast í friði og fegurð sköpunar
Byggð var friðarbrú milli
hverfa og milli kynslóða,
leikskólabörn sömdu ljóð
og eldri borgarar teikn-
uðu myndir við textann.
Líf og fjör Á opnun sýningarinnar Friðarbrúar var gaman, Sigurbjörg Jóhannesdóttir hönnuður aðstoðaði börnin við friðarfuglagerð. Fuglarnir voru hengdir upp á trjágreinar inni í Gerðubergi.
Morgunblaðið/Golli
Sóla Hún gladdi börnin frá Ægisborg á opnuninni enda skemmtileg kerla. Saman Börnin skoða myndir sem eldri borgarar gerðu við ljóðin þeirra.
1: Friðurinn er hvítur (Vesturborg)
Það er klaki yfir öllu
og grýlukerti.
Ísbjörn og snjór
og það er friður yfir öllu
og allir að róa sig niður
það er sól.
Og einhver að róa
á sléttum sjó.
Mörgæs í snjó
og varúlfur
í friði og ró.
2: Ljóð um frið (Ægisborg)
Allt er hljótt
svanur og foss
tré með hreiðri í.
Heimurinn er friðsæll.
Nema í Sýrlandi þar er enginn friður.
Foss og hreiður
svartur og friðsæll hrafn
sléttur sjór og sól.
Tré og gras og blóm.
Stjörnur á himni.
3: Þegar það er friður (Mýri)
Allir í friði og ró
allir eru með
og allir eru vinir
öllum líður vel
þá er enginn að tala
allir að lita eða kubba
engin dýr deyja
því þá borðar engin dýr.
Enginn að berjast.
Því það er ekkert stríð.
Sápukúlur hjá Friðarsúlu.
Vináttuljósið lýsir um allan heim.
Þrjú af ljóðum barnanna
VINÁTTULJÓSIÐ LÝSIR UM ALLAN HEIM
Fuglar Inga María Leifsdóttir, verkefnastjóri viðburða í Gerðubergi, aðstoðar börnin.