Morgunblaðið - 03.11.2016, Síða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Óhóf, megalúxus,
græðgi, sælusýki, en
þó einhver óseðjandi
ófullnægja og leiði
hvert sem litið er.
Það þarf að leiða
börn þessa lands í
skilning um tilgang-
inn með jarðvistinni.
Vegna óstjórnlegrar
ágirndar í gerviþarfir
og ímynduð verð-
mæti, hafa margir rofnað úr sam-
bandi við arkitekt alheimsins og
lögmál tilverunnar allt um kring.
Þetta ójafnvægi milli mannsins og
náttúrunnar felst í röngum lífs-
háttum og óeðli mannsins, því
hann lifir sem óværa í umhverfi
sínu, sníkjudýr, sem tekur stöðugt
án þess að vilja gefa nokkuð í
staðinn og þannig umgengst hann
náunga sína af samviskulausu mis-
kunnarleysi. Bent hefur verið á,
að offita sé eingöngu eitt lítið ein-
kenni þessa lífsstíls.
Í aldir og árþúsund hefur Guð,
þessi alheims arkitekt, reynt að
forrita manninn með boðorðum
sínum og lögmáli, til þess, að hann
sé í samhljóman við náttúruna.
Þegar Ísraelsmenn hlýddu Guði
sínum með því að halda boðorðin
gekk þeim allt í haginn, en þegar
þeir viku af leið lögmálsins fór allt
að ganga illa. Þannig var lögmálið
að starfi í lífi þeirra.
Svo stendur ritað í Guðs heilaga
orði: „Verið vitrir í
Guði og hyggnir og
gerið ykkur grein fyr-
ir skipulagi boðorða
hans og lögmála sér-
hverra athafna, svo
Drottinn elski ykkur.“
(Testamenti hinna tólf
ættfeðra. Samkvæmt
Naftalí 8:10)
Farsælt samfélag
byggist á boðorðum
Guðs, til þess eru þau
sett. Það byggist á
réttri hugsun, sem
leiðir til réttra athafna, sem aftur
skapar samfélag sannrar vel-
ferðar. Líf manna þessa lands
snýst því miður fremur um söfnun
veraldlegra forgengilegra muna,
heldur en andleg auðæfi. „Sá mað-
ur, sem er fátækur og laus við öf-
und, sem þakkar Guði í öllum
hlutum, er ríkastur allra manna.“
(Testamenti hinna tólf ættfeðra.
Samkvæmt Gad 7:6)
Sú óstjórnlega neysla og rudda-
legu kröfur, sem svipt hafa fólk
viti og skynsemi í þjóðfélagi nú-
tímans mun eingöngu leiða til auk-
innar vansældar, vandamála og
hnignunar.
„Hegðið yður eigi eftir öld þess-
ari, heldur takið háttaskipti með
endurnýjung hugarfarsins, svo að
þér fáið að reyna hver sé vilji
Guðs, hið góða fagra og full-
komna.“ (Rómverjabréfið 12:2)
Við erum hvött til þess í Guðs
orði, „að afneita óguðleik og ver-
aldlegum girndum og lifa hóglát-
lega, réttvíslega og guðrækilega í
heimi þessum“. (Títusarbréfið
2:12)
Líftími manna er eingöngu um
það bil áttatíu ár. Í samanburði
við eilífð annars heims er líftími
mannsins ákaflega stuttur. Vegna
vanþekkingar á guðsorði er verð-
mætaskyn mannsins eingöngu
bundið við áþreifanlega og tím-
anlega hluti og glingur, sem hann
skilur alla eftir við brottför af
þessum heimi. Það er í musteri
hjartans, sem hin sönnu auðæfi
eru að finna, þó ósýnileg séu
mannlegum augum. Það er með
þessum sérstöku andlegu fjár-
sjóðum, sem fylla þarf með tóma-
rúm hjartans, því þangað inn fær
hið veraldlega og verðlausa gling-
ur ekki komist. Fólk streitist þó af
öllum lífs og sálarkröftum við að
yfirfylla botnlausa hít græðginnar
með gerviþörfum neyslusýkinnar í
græðgifaraldri nútímans, sem
enga lífsfyllingu megnar að veita
glorsoltnum sálum.
Samkvæmt lögum
Eftir Einar Ingva
Magnússon
Einar Ingvi Magnússon
» Líf manna þessa
lands snýst því mið-
ur fremur um söfnun
veraldlegra forgengi-
legra muna, heldur en
andleg auðæfi.
Höfundur er áhugamaður
um kristni og samfélag.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Tvímenningsmót
Súgfirðingafélagsins
Í byrjun gormánaðar var önnur
lota um Súgfirðingaskálina, tvímenn-
ingsmót Súgfirðingafélagsins, spiluð.
14 pör mættu til leiks á mildu vetr-
arkvöldi í sláturtíð og skemmtu sér
vel. Ásgeir Ingvi Jónsson og Sigurður
G. Ólafsson unnu öruggan sigur enda
voru þeir forystusauðir allt kvöldið.
Úrslit úr annarri lotu, meðalskor
156 stig:
Ásgeir I. Jónsson - Sigurður G. Ólafss. 195
Kristján Pálsson - Ólafur Karvel Pálss. 178
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 176
Alda S. Guðnad. - Ólöf Þorsteinsd. 172
Heildarstaðan:
Ásgeir I. Jónsson - Sigurður G. Ólafss. 373
Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálsson 370
Gróa Guðnad. - Alda S. Guðnad. 336
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 334
Alls verða spilaðar sjö lotur um
Súgfirðingaskálina og gilda sex bestu
skorin til verðlauna.
Næst verður spilað 28. nóvember í
fyrri hluta ýlis.
Guð
hafði séð
Björn Eysteinsson
missa bústofninn
og flytja til heiðar
með fjölskylduna
heyrt þaðan bænir
blandaðar hrotum
erfiðismannsins
en núna
kom barnslegt
hrópandi ákall
ó
haltu mér í hönd
og leiddu
vil ég þín minnast
viti ég snauðan
kenna á köldu.
Sjálfsævisaga Björns Eysteins-
sonar (1848-1939) er hin merkasta
og þá einkum sem heimild um lífs-
baráttu fólks á harðindaárunum
upp úr 1880. Þessi húnvetnski
harðjaxl komst ungur í allgóð efni
en vegna harðinda og hallæris
missti hann nær allt sitt og komst
í örbirgð og skuldir.
Hann greip þá til þess ráðs að
reisa nýbýli frammi á heiði og
flytja þangað. Óhöppin héldu þó
áfram og margt varð til þess að
stýra honum stormi í fang. Kom
svo að fjölskyldan lifði mjólk-
urlaus á grasalími vikum saman
og lá við örvæntingu.
Þá leitaði Björn til Guðs. Bæn-
arsamtal hans við Guð og bæn-
heyrslan er hin fegursta ást-
arsaga ef svo má að orði komast.
Hér er gripið niður í kjarna bók-
arinnar:
„Nú fækkuðu ráð. Ég lít yfir
mitt lifða líf og sé engan árangur
af því nema eintómt arg og amst-
ur, fáir sólskins-
blettir … Ég skil
varla, að guð hafi
bara til þess arna
skapað mig og ætli
mér svo ekki lengra
líf og dettur mér í
hug, að guð hafi
gjört þetta eins og
annað af vísdóms-
fullu ráði sínu allt
mér til góðs til að
beygja mig undir
sína voldugu hönd og
sýna mér hvað þeir
ættu, sem væru í svipuðum
kringumstæðum.
Ég bið drottin minn og knýi á,
að hann láni mér efni mín aftur,
hann einn geti hjálpað og hann
ætti ég hægast með að biðja og
lofa á móti, þar sem ég sæi þann,
sem bágt ætti, skyldi ég gleðja
hann ætíð ef hægt væri.
Ég stend mikið rólegri upp frá
bæninni og taldi víst, að það
myndi rætast úr þessu, fer til
konu minnar og hughreysti hana
og legg niður, hvernig við skul-
um hafa þetta og þetta, þetta
lagist brátt aftur, ég sé fullviss
um það, ég hafi góða heilsu enn
og fullt þrek til að vinna…“
Björn varð vellríkur og
gleymdi aldrei samningnum við
Guð sinn. Hann stórgaf fátækum
og skuldugum allt sitt líf án þess
að hrópa á torgum.
Björn Eysteinsson, fjallabónd-
inn á Réttarhóli, er forfaðir
margra þekktra Íslendinga.
Guð og Björn
Eysteinsson
Eftir Helga
Kristjánsson
Helgi
Kristjánsson
» Björn Eysteinsson,
fjallabóndinn á
Réttarhóli, er forfaðir
margra þekktra
Íslendinga.
Höfundur býr í Ólafsvík.
Í Morgunblaðinu 19. september síðastliðinn á Guðni
Einarsson, blaðamaður Morgunblaðsins, athyglisvert
spjall við Ólaf K. Nielssen, helsta rjúpnasérfræðing
Náttúrufræðistofnunar Íslands. Þar kemur fram að
rjúpnastofninn sé mjög lítill, varla sjálfbær, en orsak-
ir þess óþekktar. Rjupnastofninn hafi tekið stórarn
vaxtarkipp 2003 og 2004. Þá telur Ólafur ekki rétt að
sleppa rjúpnaveiði í ár því fuglinn eigi að njóta vafans.
Skilji nú fræðinginn hver sem getur, en það sem mér
sýnist án vafa er að það þarf að ná rjúpunni upp jafn-
vel með einhverra ára friðun. Ólafur segir einnig að
veiðiafföll hafi verið vanmetin þannig að stress og
ónæði 12 veiðidaganna undangengin haust virðist hafa
valdið óvæntum búsifjum og dregið úr viðkomu þessa,
við eðlilegar aðstæður þessa gríðarlega frjósama,
fuglastofns. Ég og fleiri gamalreyndir veiðimenn hafa
opinberlega margbent á að heimskulegur, ólöglegur
og siðlaus haglaaustur úr marghlæðum allt of margra
veiðimanna á fljúgandi rjúpur sem særist þá og lim-
lestist valdi gríðarlegum duldum afföllum. Síðan svar-
ar Ólafur spurningu um áhrif refs á fuglastofninn svo:
„Áhrif tófunnar, ef einhver eru, eru væntanlega þau
að halda rjúpnastofninum niðri.“
Tveir fremstu og merkustu vísindamenn þjóð-
arinnar á þessum vettvangi, Páll Hersteinsson og
Snorri Baldursson, hafa báðir bent á að rjúpa sé allan
ársins hring aðalfæða refa. Fyrir tilverknað stjórn-
valda meðal annars, húsbænda Ólafs, hefur refastofn-
inn margfaldast á síðustu 30 árum. Í áratugi var
rjupnaveiðitímabilið um 80 dagar, sem fóru svo nýver-
ið niður í 12 og ef að þeir, að mati Ólafs, fara svona
illa í fuglinn, hvað má þá segja um heilsufarsáhrif af
því að hafa gapandi refaskolta við stélfjaðrirnar 365
sólarhringa á ári?
Indriði á Skjaldfönn.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Ógæfuleg rjúpnaspeki
Rjúpa á veiðislóð Nú fer rjúpnaveiðitímabilið í hönd.
Morgunblaðið/Ingó
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?