Morgunblaðið - 03.11.2016, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Ég er að gefa út ljóðabók í dag, á afmælisdaginn,“ segir Guð-mundur Sæmundsson sem er orðinn sjötugur. Bókin heitir Ísjöunda himni býr sólin og verður útgáfuteiti haldið í Penn-
anum-Eymundsson í Borgarkringlunni kl. 17.00-18.30.
„Ég hef í hyggju að halda áfram að yrkja og stefni að því að gefa út
fleiri bækur með gömlum og nýjum ljóðum og ljóðaþýðingum og mun
hver um sig fjalla um af-
markað efni. Fyrsta bókin
er um ástina. Ég hélt svo
veglega veislu þegar ég
varð sextugur að ég lifi á
því enn og ætla því að
leyfa bókinni minni að
eiga daginn að þessu sinni.
Hún verður til sölu í versl-
unum Pennans á höf-
uðborgarsvæðinu og
Akureyri og í Sunnlenska
bókakaffinu á Selfossi.
„Ég hef alltaf verið að
yrkja þótt ekki hafi áður
komið út ljóðabók eftir
mig. Ég hef þó gefið út
þýðingar eftir þrjá höfð-
ingja, þá Hó Chí-Mính,
Maó Tse-túng og Leonard
Cohen. Ég þýddi einnig á
sínum tíma 40 söngva eftir Bob Dylan en fékk ekki leyfi til að gefa þá
út. Ég kíkti á þessar þýðingar nýverið og er með þrjár þeirra í ljóða-
bókinni. Ég tel Nóbelsverðlaun Dylans mjög verðskulduð, þau vekja
athygli á honum sem skáldi og á þessari tegund ljóðlistar.“
Guðmundur lætur af störfum sem aðjunkt við Háskóla Íslands í dag.
Hann vinnur þó áfram að rannsóknum sínum á afstöðu Íslendinga til
siðferðis í íþróttum. „Þeirri rannsókn lýkur í vetur og er ég einnig að
skrifa bók um sama efni. Doktorsritgerð mín var um orðræðu um
íþróttir og þetta er hvorttveggja framhald af því.“ Guðmundur lauk
doktorsprófi frá Háskóla Íslands árið 2014. Hann hefur m.a. starfað
við rit- og útgáfustörf og kennt við Framhaldsskólann í Skógum og
Menntaskólann á Laugarvatni og við Verkmenntaskólann á Akureyri
sem fjarkennari. Einnig hefur hann verið fjarkennari við Linné-
háskólann í Växjö í Svíþjóð. Hann hefur starfað við KHÍ, síðar
Menntavísindasvið HÍ, frá 2001 sem aðjunkt í íþrótta- og heilsufræði
við Háskóla Íslands á Laugarvatni og í Reykjavík.
Eiginkona Guðmundar er Ingibjörg Jónsdóttir Kolka, doktorsnemi
og menntaskólakennari, og börn hans eru Ólafur Kristinn, Guðrún
Árný, Friðrik, Atli Sævar, Heimir Dúnn og Kristófer Jökull. Hann á
níu barnabörn og tvö barnabarnabörn.
Í Ósló Guðmundur Sæmundsson.
Gefur út sína fyrstu
ljóðabók í dag
Guðmundur Sæmundsson er sjötugur
Ó
lafur fæddist í Reykja-
vík 3.11. 1986 en ólst
upp í Mosfellsbæ. Fyrir
utan það að prakkarast
í Mosfellsbænum dvaldi
Ólafur stundum hjá frændfólki sín-
um í móðurætt í Húnavatnssýslunni
á sumrin: „Þetta var skemmtileg til-
breyting frá malbikinu í Mosó en
þetta var nú aldrei lengi í einu, yfir-
leitt með pabba og mömmu og ég
var aldrei alvöru vinnumaður í sveit
eins og tíðkaðist með stráka hér áð-
ur fyrr. En ég kynntist engu að síður
lífinu á landsbyggðinni og er þakk-
látur fyrir það.“
Ólafur gekk í Varmárskóla, stund-
aði tónlistarnám við Tónlistarskól-
ann í Mosfellsbæ frá sex ára aldri,
fyrst á píanó í einn vetur en síðan á
trommur, stundaði nám við Tónlist-
arskóla FÍH á unglingsárunum, lauk
stúdentsprófi frá Borgarholtsskóla
af listnámsbraut og stundaði nám í
tónsmíðum við Listaháskóla Íslands
í eitt ár.
Ólafur hefur starfað með ýmsum
Ólafur Arnalds tónlistarmaður – 30 ára
Með systkinum sínum Frá vinstri: Stefán, Ásdís Aðalbjörg, Ari Pálmar, Hólmfríður Ósk (Fríða) og afmælisbarnið.
Ætíð með tónlist í höfðinu
Margverðlaunaður Ólafur er kampakátur er hann hampar BAFTA-
verðlaununum fyrir tónlistina í bresku sjónvarpsþáttunum Broadchurch.
Kópavogur Marey
Kjartansdóttir fæddist í
Reykjavík 8. september
2015. Hún vó 4.032 g og
var 50,5 cm löng.
Foreldrar hennar eru
Kjartan Benediktsson og
Lísa Anne Libungan.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjónAllir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18.
Allt fyrir eldhúsið hjá Progastro
Heildarlausnir fyrir heimilið
Allt fyrir eldhúsið