Morgunblaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2016
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Listahátíð ungs fólks, Unglist, hefur
göngu sína í dag, 3. nóvember og
stendur dagskrá hátíðarinnar fram
til 12. nóvember. Ungt fólk á aldr-
inum 16-25 ára tekur þátt í unglist,
fólk sem ýmist er að mótast sem
listamenn eða stíga sín fyrstu skref í
listinni.
Friðrik Agni Árnason er verk-
efnastjóri Unglistar í ár. „Hátíðin er
nú haldin í 25. skipti og er hún alltaf
vel sótt. Markmiðið með Unglist er
að vera með ólíka viðburði og vekja
athygli á hinum fjölbreytta menn-
ingarheimi ungs fólks í samfélaginu.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir unga
listamenn að koma list sinni á fram-
færi,“ segir Friðrik.
Í samstarf við Þjóðleikhúsið
Viðburðirnir verða á víð og dreif
um borgina en Unglist hefur hafið
samstarf við Þjóðleikhúsið og verða
því þrír af helstu viðburðum hátíð-
arinnar haldnir þar í ár.
„Stóru viðburðirnir hjá okkur eru
Danssýningin, Leiktu betur og Ung-
leikur sem verða sýndir núna í Þjóð-
leikhúsinu. Okkur þykir það virki-
lega skemmtilegt að fara í samstarf
við Þjóðleikhúsið, enda mikilvægt
fyrir unga listamenn að kynnast
þessari helstu menningarstofnun í
landinu. Einnig er það hin árlega
tískusýning sem verður haldin í
Ráðhúsinu. Hún hefur alltaf verið
mjög vinsæl.“
Leiktu betur er spunakeppni þar
sem framhaldsskólar landsins mæt-
ast og keppast um það á vingjarn-
legan hátt hver getur leikið betur. Á
ungleikum gefst skáldum, leik-
stjórum og leikurum framtíðarinnar
kostur á því að sýna hvað í þeim býr,
vinna í skipulögðu umhverfi og
framkvæma verk sín á sviði. Þá
verður haldið Myndlistarmaraþon
þar sem þátttakendur fá frjálsar
hendur og mála á staðnum og einnig
verður haldin myndlistarsýning í
Gallerí Tukt þar sem nemendur á
Listnámsbraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti sýna verk sín. Klassískt
tónaflóð verður haldið í Dómkirkj-
unni og einnig munu ungskáld ausa
úr skáldabrunni sínum.
Um 60 umsóknir bárust
Auk fastra liða á hátíðinni verður
hún einnig hluti af „off venue“-
dagskrá tónlistarhátíðarinnar Ice-
land Airwaves 3.-5. nóvember. „Tón-
leikarnir fara fram í Hinu húsinu og
koma þar fram 17 hljómsveitir, ís-
lenskar og erlendar. Til okkar bár-
ust alveg um 60 umsóknir sem er al-
veg frábært og margir sem spiluðu í
fyrra sóttu um aftur, sem sýnir sig
að stemningin hefur verið góð. Það
var því mjög erfitt að velja úr,“ segir
Friðrik.
Hljómsveitir frá Frakklandi,
Bandaríkjunum, Póllandi, Noregi og
víðar munu stíga á stokk í Hinu hús-
inu næstu daga, auk ýmsra íslenskra
hljómsveita. „Allir viðburðirnir hjá
okkur eru ókeypis svo það er um að
gera að mæta og sjá alla þessa
skemmtilegu, ungu sköpun,“ segir
Friðrik að lokum.
Morgunblaðið/Eggert
Teymi Friðrik Agni Árnason, verkefnastjóri Unglistar, og Ása Hauksdóttir,
deildarstjóri menningardeildar í Hinu húsinu, eru spennt fyrir hátíðinni.
Ungir listamenn
stíga á stokk
Unglist haldin í 25. sinn í ár
Hönd í hönd við Þjóðleikhúsið
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tónlist Hljómsveitin Amber mun
spila í Hinu húsinu á föstudag.
David Baldwin, prófessor í geðlæknisfræðum við Há-
skólann í Southampton, heldur í kvöld, fimmtudag kl.
20, erindi í Hannesarholti við Grundarstíg um þraut-
seigju persóna í skáldsögum Halldórs Laxness. Gljúfra-
steinn – hús skáldsins stendur fyrir viðburðinum.
Baldwin fékk brennandi áhuga á verkum Halldórs eft-
ir að hafa lesið Sjálfstætt fólk og hefur heillast af per-
sónusköpun skáldsins, þrautseigju og seiglu persón-
anna. Í rannsóknum sínum hefur Baldwin skoðað leiðir
til að bæta líðan sjúklinga sem þjást af þunglyndi og
kvíða og segir hann frá áhugaverðum hugmyndum um
persónur Halldórs í því sambandi. Óttar Guðmundsson
geðlæknir og Steinunn Inga Óttarsdóttir bókmenntafræðingur munu ræða
við hann. Dagskráin fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis.
Þrautseigjan í sögum Halldórs Laxness
David
Baldwin
Dr. Stephen Vincent Strange slasast svo illa á
höndum í bílslysi að hann verður ófær um
framkvæmd skurðaðgerða. Til að leita sér
lækninga heldur hann út í heim og hittir að lok-
um "hinn forna" sem kennir honum að nota
hendurnar og hæfileika sína á alveg nýjan hátt.
Metacritic 74/100
IMDb 8,2/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00, 22.25
Sambíóin Álfabakka 17.30, 18.30, 20.00, 21.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30, 19.00, 20.00, 21.30, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30
Doctor Strange
Grimmd 12
Íslensk spennumynd
sem segir frá því
þegar tvær ungar
stelpur hverfa spor-
laust af leikvelli í Ár-
bænum. Stúlkurnar
finnast látnar í Heið-
mörk og rannsókn í
leit að sökudólgum fléttast saman nokkrar sögur.
IMDb 5,8/10
Smárabíó 17.20, 19.30, 20.00, 22.20
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Jack Reacher: Never
Go Back 12
Jack Reacher þarf að fletta
ofan af stóru samsæri til
þess að sanna sakleysi sitt
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30
The Accountant 16
Christian Wolff er stærð-
fræðingur sem hefur meiri
áhuga á tölum en fólki.
Metacritic 51/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Egilshöll 22.20
Eiðurinn 12
Þegar Finnur hjartaskurð-
læknir áttar sig á að dóttir
hans er komin í neyslu koma
fram brestir í einkalífinu.
Morgunblaðið bbbbb
IMDb 7,7/10
Smárabíó 19.50
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 17.45
The Girl on
the Train 16
Metacritic 47/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Inferno 12
Laugarásbíó 22.30
Smárabíó 16.30, 19.50,
22.00, 22.30
Borgarbíó Akureyri 22.10
Bridget Jones’s
Baby 12
Metacritic 59/100
IMDb 7,4/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Borgarbíó Akureyri 17.40
Sully 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 74/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.10
Masterminds
David Ghantt keyrir um göt-
urnar dag eftir dag og sér
enga undankomuleið frá
þessu leiðindalífi.
Metacritic 47/100
IMDb 5,8/10
Smárabíó 19.50, 22.10
Háskólabíó 18.10, 20.50
Borgarbíó Akureyri 20.00
The Magnificent
Seven 12
Metacritic 54/100
IMDb 7,2/10
Smárabíó 22.15
Middle School Metacritic 51/100
IMDb 5,8/100
Smárabíó 15.30
Eight Days a Week -
The Touring Years
Háskólabíó 21.00
Borgarbíó Akureyri 22.10
Heimili fröken
Peregrine 12
Metacritic 53/100
IMDb 7,2/10
Smárabíó 17.10
Storkar
Storkar komu. Núna afhenda
þeir pakka fyrir alþjóðlega
netfirsann Corner-
stone.com.
Metacritic 55/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 18.00
Sambíóin Kringlunni 18.00
Sambíóin Akureyri 18.00
Tröll
Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.30, 17.45
Háskólabíó 18.00
Borgarbíó Akureyri 17.40
Pete’s Dragon
Bönnuð yngri en 6 ára.
Metacritic 71/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Absolutely Fabulous
Metacritic 59/100
IMDb 5,9/10
Háskólabíó 21.10
Ransacked
„Partíið. timburmennirnir.
Rándýrin. Slagurinn. Úr-
skurðurinn.“ Íslensku bank-
arnir voru einkavæddir á ár-
unum 2000-2003.
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 18.00
Captain Fantastic
Metacritic 72/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 20.00
Embrace of The
Serpent
Karamakate vinnur með
tveimur vísindamönnum í
leit að hinni heilögu plöntu.
Bíó Paradís 22.00
Innsæi
InnSæi býður áhorfendum í
ferðalag inn í hulinn heim.
Bíó Paradís 20.00
Child Eater
Helen grunar ekki hversu
hryllilegt kvöld hún á í vænd-
um
Bíó Paradís 20.00, 22.00
Fire At Sea
Metacritic 85/100
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 22.30
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio