Morgunblaðið - 07.11.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2016
PORTO
1.des. í 3 nætur
Netverð á mann frá kr. 79.995 m.v.2 í herbergi
með morgunmat.
Hotel Cristal
Porto
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Nýr áfangastaður
Frá kr.
79.995
m/morgunmat
Frábært
að versla
Góður
matur
Þau Andrés Fjeldsted, Arnar Vilhjálmur Arn-
arsson, Jana Horáková, Stefán Kristinsson og
Hildur Hjörvar, sem eru laganemar við HÍ og á
myndinni hér að ofan talið frá vinstri, fóru með
sigur af hólmi í úrslitaviðureign EES-málflutn-
ingskeppninnar sem fram fór í Hæstarétti nú um
helgina. Hildur Hjörvar var valin ræðumaður
helgarinnar.
Sigurvegararnir fá sem verðlaun ferð til
Brussel og Lúxemborgar þar sem þeim gefst
innsýn í starfsemi helstu stofnana EFTA og ESB.
Tilgangur keppninnar er að vekja athygli laga-
nema á Evrópumálum. Helga Jónsdóttir, fulltrúi
Íslands hjá Eftirlitsstofnun ESA, sem er lengst
til hægri á myndinni, veitti verðlaunin.
Sigruðu í úrslitaviðureign í málflutningskeppni EES
Morgunblaðið/Golli
Laganemar fengu innsýn í Evrópumálin
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
„Ég get staðfest að það eru ákveðnir
aðilar sem stíga fram um leið og
skoðanir eru viðraðar meðal flokks-
manna sem falla þeim ekki í geð. Það
er talað út á við um að allt sé í góðum
málum innan flokksins. En stað-
reyndin er sú að flokkurinn er ger-
samlega klofinn,“ segir Sveinn
Hjörtur Guðfinnsson, formaður
Framsóknarfélags Reykjavíkur,
sem er fjölmennasta framsóknar-
félagið á landinu.
Í frétt Morgunblaðsins á laugar-
dag er haft eftir Önnu Kolbrúnu
Árnadóttur, formanni Lands-
sambands framsóknarkvenna, að
það einkenni andrúmsloftið í Fram-
sóknarflokknum að ekki sé um frjáls
skoðanaskipti að
ræða og skoðana-
kúgunar gæti.
„Það er mjög
áberandi að fólk í
hópi stuðnings-
manna Sigmund-
ar Davíðs, sem
reynir að tjá sig,
er kveð-
ið í kútinn sam-
stundis af sam-
flokksmönnum, því þeim finnst
greinilega skoðanirnar ekki vera
réttar,“ var haft eftir Önnu Kol-
brúnu í fréttinni.
„Nú er staðan sú að fólk er orðið
hrætt að tjá sig. Jafnvel að líka við
stöðuuppfærslur á Facebook sem
ekki þykja þóknanlegar getur þýtt
að fólk fær símtal frá einhverjum af
trúnaðarmönnum flokksins sem seg-
ir því til syndanna. Þetta hef ég
fundið á eigin skinni. Ég hef aldrei
orðið var við viðlíka foringjadýrkun í
flokknum og undanfarið,“ segir
Sveinn Hjörtur.
Hann segir að djúpt virðist vera á
sáttum meðal fylkinga innan flokks-
ins.
Sigmundur verði ráðherra
Í frétt blaðsins á laugardag var
haft eftir Önnu Kolbrúnu að völdum í
flokknum hefði verið rænt. Aðeins 40
atkvæði hefðu skilið á milli Sigmund-
ar Davíðs og Sigurðar Inga. Til at-
kvæðagreiðslunnar hefði mætt fólk
sem ekki hefði í langan tíma sést
flokksstarfinu. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að á meðal þessara
þinggesta hafi verið gamlir heiðurs-
félagar í flokknum og þar með sjálf-
kjörnir til þingsins sem ekki hafi
mætt um langa hríð.
„Nú er tími til kominn að stinga á
þessu kýli. Við höfum leitað sátta en
árangurslaust. Sú manneskja sem
getur sætt þessi andstæðu öfl í
flokknum er Lilja Alfreðsdóttir. Hún
nýtur mikils trausts úr báðum fylk-
ingum. En það er hins vegar krafa
okkar, stuðningsmanna Sigmundar
Davíðs, að ætli Framsóknarflokkur-
inn í ríkisstjórnarsamstarf er eina
leiðin til sátta að Sigmundur Davíð
verði ráðherra,“ segir Sveinn
Hjörtur.
Ekki náðist í þau Sigurð Inga Jó-
hannsson, formann Framsóknar-
flokksins, né Lilju Alfreðsdóttur
varaformann við vinnslu fréttarinn-
ar í gær.
Krefjast sætis fyrir Sigmund
Formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur segir flokkinn „gersamlega“ klofinn
Trúnaðarmenn í flokknum segi fólki til syndanna sem hafi óæskilega skoðun
Sveinn Hjörtur
Guðfinnsson
Tíu mál voru afgreidd á kirkjuþingi í
gær úr fyrri umræðu til síðari um-
ræðu, mótatkvæðalaust.
„Meðal þessara mála er tillaga um
ný þjóðkirkjulög sem samþykkt var
úr fyrri umræðu og vísað til löggjaf-
arnefndar,“ segir Magnús E. Krist-
jánsson, forseti kirkjuþings. Gert er
ráð fyrir að tillagan komi til síðari
umræðu á næsta kirkjuþingi.
Magnús segir lagabreytingarnar
miða að einföldun á þeim lagaramma
sem þjóðkirkjan starfar samkvæmt.
Jafnframt var samþykkt tillaga til
þingsályktunar að stuðlað verði að
stofnun svonefnds sóknarsambands.
Að sögn Magnúsar eru sóknir í land-
inu hátt á þriðja hundrað og verði
þær hvattar til að stofna með sér
sóknarsamband í líkingu við það sem
þekkist á Norðurlöndum.
Þá voru til umræðu breytingar á
reglum um kjör til kirkjuþings.
„Það er verið að reyna að gæta að
því að kirkjan sé á stöðugri leið til
meira lýðræðis,“ segir Magnús.
Hann segir verkefni þingsins að
öðru leyti hefðbundin.
Í niðurlagi ræðu séra Agnesar Sig-
urðardóttur biskups við setningu
kirkjuþings varaði hún við því að ætla
þinginu svo ærin verkefni að hinn al-
menni kirkjumaður ætti þess ekki
kost að taka þátt í þingstörfunum.
Ekki væri hægt að ætla vinnandi fólki
að afgreiða enn fleiri verkefni en nú
þegar lægju fyrir þinginu ár hvert, án
þess að breyting yrði á vinnubrögðum
og þau yrðu markvissari.
jonth@mbl.is
Samstaða um þjóðkirkjulög
Biskup boðar
markvissari vinnu-
brögð í þingstörfum
Morgunblaðið/Golli
Kirkjuþing Stúlknakór söng af mikilli innlifun við setningu Kirkjuþings á
laugardag. Biskup Íslands flutti ávarp við setningu þingsins.
Tveir menn sem slógust með hníf-
um á laugardag í Seljahverfi í
Reykjavík voru fluttir undir læknis-
hendur vegna áverka sinna þegar
leikurinn hafði verið skakkaður.
Var annar þeirra fluttur á bráða-
móttöku Landspítalans en hinn á al-
menna deild. Báðir eru mennirnir
erlendir ríkisborgarar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu áttu þeir í deilum og komu
ekki aðrir við sögu.
Gert er ráð fyrir að fulltrúar úr
rannsóknardeild lögreglu ræði við
mennina þegar þeir hafa náð heilsu.
Ekki er talið ólíklegt að í fram-
haldinu verði gefin út ákæra, þar
sem það telst til alvarlegrar líkams-
árásar að beita hníf í samskiptum
milli manna.
Tveir hnífamenn
fluttir á sjúkrahús
Lögreglan hafði í gærkvöldi ekki
enn haft spurnir af manni sem réðst
inn í apótek í Suðurveri í Reykjavík
síðdegis á laugardag. Ógnaði hann
starfsfólki apóteksins með hnífi og
hafði á brott með sér talsvert magn
af sterkum lyfjum og nokkur
hundruð þúsund krónur í seðlum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu í
gærkvöldi er málið í fullri rann-
sókn; verið er að skoða gögn, upp-
tökur og fleira sem því tengist. Þá
hafði lögregla einn mann grunaðan
um að tengjast ráninu.
Lögreglan leitar að
apóteksræningja
Björg-
unarsveitir
Slysavarna-
félagsins
Landsbjargar
á Norðaust-
urlandi voru
kallaðar út
síðdegis í gær
vegna manns
sem var í sjálfheldu í um 200 metra
hæð í bjarginu við fossinn Míganda
sunnan til í Gunnólfsvíkurfjalli. Þó
veður væri gott var nokkur ísing í
bjarginu og hitastig lækkandi.
Björgunarfólki tókst ekki að kom-
ast að manninum fyrir myrkur og
var TF-SÝN, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, kölluð út til leitar. Stóðu
vonir til að þyrlan gæti lýst upp
bjargið í gærkvöldi.
Var þetta annað verkefni björg-
unarsveita um helgina, en eins og
kemur fram hér framar í blaðinu
var mikil leit gerð á Snæfellsnesi að
tveimur rjúpnaskyttum sem ekki
skiluðu sér til byggða á laugardag.
Maður í sjálfheldu í
Gunnólfsvíkurfjalli
TF Sýn Tekur þátt í
björgunarstarfinu.