Morgunblaðið - 07.11.2016, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2016
✝ Guðrún Hjalta-dóttir fæddist
á Hólmavík 11.
mars 1936. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu Ísa-
fold 30. október
2016.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Hjalti Einarsson, f.
1889, d. 1952, og
Helga Frímanns-
dóttir, f. 1896, d. 1955. Systkini
Guðrúnar voru Lúðvík, f. 1924,
d. 1953, og Kristbjörg Nína, f.
1925, d. 2007. Guðrún giftist
1957 Jóni Kristinssyni, f. 1935,
d. 1985. Foreldrar hans voru
hjónin Kristinn Jóhannesson, f.
1904, d. 1986, og Anna Sigrún
Jónsdóttir, f. 1904, d. 1982.
Börn Guðrúnar og Jóns eru: 1)
Helga, f. 1956, maki Ástvaldur
Kristinsson, f. 1955, börn
þeirra eru: a) Agnes, f. 1976,
maki Karl Ágúst Guðmundsson,
f. 1976, og eiga þau tvö börn,
Elmu Lind, f. 2004, og Krist-
ófer Mána, f. 2006. b) Katla, f.
urs þegar hún flutti til Reykja-
víkur með foreldrum sínum.
Guðrún missti foreldra sína og
bróður ung og var alla tíð í
mjög nánu sambandi við systur
sína, Nínu. Guðrún og Jón
byggðu sér raðhús á Otrateig í
Reykjavík og bjuggu þar nær
allan sinn búskap. Eftir að hún
varð ekkja flutti hún á Háaleit-
isbraut og bjó þar þangað til
heilsu hennar hrakaði og hún
þarfnaðist meiri þjónustu. Guð-
rún var heimavinnandi fyrstu
hjúskaparárin á meðan börnin
voru ung. Eftir að hún fór á
vinnumarkaðinn vann hún
lengst af sem aðstoðarmaður
skólatannlækna í Reykjavík og
síðar sem deildarstjóri skóla-
tannlækna á Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur. Guðrún hafði yndi
af ferðalögum og ferðaðist víða
innanlands sem utan ásamt eig-
inmanni sínum og börnum.
Einnig hafði Guðrún mikinn
áhuga á brids..
Útför Guðrúnar fer fram frá
Áskirkju í dag, 7. nóvember
2016, kl. 13.
1978, giftist Ævari
Magnússyni, f.
1976, þau skildu,
börn þeirra eru
Klara, f. 2006, og
Breki, f. 2007. Fyr-
ir átti Katla Daníel
Helga Arnarson, f.
1996. c) Jón Gauti,
f. 1991. 2) Lúðvík
Hjalti Jónsson, f.
1959, maki Gerður
Gústavsdóttir, f.
1960, börn þeirra eru: a) Guð-
rún Ásta, f. 1995, og b) Gústav,
f. 2000. 3) Kristinn Rúnar Jóns-
son, f. 1964, maki Svava Mar-
grét Ingvarsdóttir, f. 1966,
dætur þeirra eru: a) Berglind
Jóna, f. 1984, sambýlismaður
Birkir Sigurðarson, f. 1985,
börn þeirra eru Karen Helga
og Kári Kristinn, f. 2015. b)
Birna Sif, f. 1990, og c) Hjördís
Inga, f. 1996, sambýlismaður
Halldór Hrannar Halldórsson,
f. 1994, dóttir þeirra er Bryndís
Vaka, f. 2015.
Guðrún fæddist á Hólmavík
og ólst þar upp til 10 ára ald-
Mín yndislega og ástkæra
tengdamóðir hefur nú slitið jarð-
vistarböndin og vafalaust hvíld-
inni fegin. Yndislegri tengdamóð-
ur hefði ég ekki getað fengið, svo
hjartahlý og góð.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Kærleikskveðja,
Svava Margrét.
Ég kynntist Dúnnu, tengda-
móður minni, fyrir um það bil 25
árum þegar ég kom inn í fjöl-
skyldu hennar. Þá var hún orðin
ekkja og hafði komið sér upp fal-
legu heimili á Háaleitisbraut. Þar
minnist ég sérstaklega glæsilegra
matarboða á jóladag til margra
ára þar sem fjölskyldan kom sam-
an. Ég dáðist að því hvað hún var
dugleg og rösk kona sem kom
miklu í verk. Eftir fullan vinnu-
dag vílaði hún ekki fyrir sér að
keyra á milli staða og heimsækja
börnin sín, vinkonur, fara á kaffi-
hús eða útrétta og fór hratt yfir.
Dúnna var hæglát að yfir-
bragði og bar ekki tilfinningar
sínar á torg. Hún sagði mér frá
uppvaxtarárum sínum á Hólma-
vík en þaðan átti hún góðar
bernskuminningar. Hún missti
báða foreldra sína og bróður þeg-
ar hún var á unglingsaldri og eig-
inmann sinn langt fyrir aldur
fram. Þessi áföll hafa án efa mót-
að líf hennar. Hún fór snemma að
vinna fyrir sér og kynntist harðri
lífsbaráttu þess tíma.
Dúnna var glæsileg kona og
ávallt vel tilhöfð. Hún hafði gam-
an af að kaupa sér ný föt og voru
skór og veski í sérstöku uppá-
haldi. Hún fylgdist vel með fata-
kaupum annarra í fjölskyldunni
og hafði gjarnan orð á því þegar
henni fannst hafa tekist vel til í
þeim efnum.
Þegar hún veiktist fyrir um 10
árum tók hún veikindum sínum af
miklu æðruleysi. Hún kvartaði
ekki og tókst ótrúlega vel á við
þær breytingar sem hún þurfti að
sætta sig við þegar heilsu hennar
fór að hraka. Hún var þakklát fyr-
ir þá aðstoð sem hún fékk og var
sátt við sitt. Hún notaði hvert
tækifæri sem gafst til að njóta
samverustunda með fjölskyld-
unni allt fram á síðasta dag. Hún
lét sér annt um afkomendur sína,
fylgdist vel með því sem þeir tóku
sér fyrir hendur og var umhugað
um að þeim vegnaði vel. Dúnna
fylgdist ávallt vel með þjóðfélags-
umræðum og lét stórleiki í íþrótt-
um ekki fram hjá sér fara. Hún
var alltaf með stöðuna í Pepsi-
deildinni á hreinu.
Undanfarið eitt og hálft ár bjó
hún á hjúkrunarheimilinu Ísa-
fold. Þar átti hún einstaklega hlý-
legt heimili sem bar vott um
smekkvísi hennar en hún hafði
næmt auga fyrir fallegum hlut-
um.
Að leiðarlokum þakka ég
tengdamóður minni samfylgdina.
Minningin um góða konu lifir.
Gerður Gústavsdóttir.
Elsku amma Dúnna hefur nú
kvatt þennan heim og farið á vit
nýrra heimkynna. Upp í hugann
koma fallegar og góðar minning-
ar um samverustundir. Heima
hjá ömmu var alltaf snyrtilegt og
hafði hún ánægju af því að hafa
fallegt í kringum sig. Það var allt-
af gott að koma í heimsókn og
ræða málefni líðandi stundar,
enda fylgdist amma vel með því
sem gerðist í kringum hana. Hún
hafði mikinn áhuga á því sem við,
barnabörnin, tókum okkur fyrir
hendur og spurði undantekning-
arlaust hvernig okkur vegnaði í
námi og starfi. Ég var heppin að
geta gengið til ömmu meðan ég
var í Verzló, þá dekraði hún við
mig. Á Háaleitisbrautinni fékk ég
að leggja mig í sjónvarpssófan-
um, læra í ró og næði eða bara
gera það sem ég vildi.
Amma var ráðagóð og sagði
hlutina eins og þeir voru eða alla-
vega eins og henni fannst þeir
vera. Hún var hreinskilin og kom
skoðun sinni ávallt pent á fram-
færi. Amma var dama fram í fing-
urgóma, hún var alltaf vel til höfð
og glæsileg, hélt sinni reisn þrátt
fyrir veikindi síðustu árin. Það
var alltaf gaman að sýna ömmu
nýjustu flíkurnar í fataskápnum
enda hafði hún mikinn áhuga og
lét álit sitt gjarnan í ljós.
Ég kveð ömmu með söknuði en
jafnframt þakklæti fyrir allar
góðu minningarnar.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir.
Guðrún Hjaltadóttir
Fleiri minningargreinar
um Guðrúnu Hjaltadótt-
ur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝ Auðunn S. Hin-riksson fæddist
í Reykjavík 4. júní
1943. Hann lést á
Landspítalanum 26.
október 2016.
Foreldrar hans
voru Hinrik Guð-
mundur Auðunsson
verzlunarmaður, f.
17.9. 1905 í Hafn-
arfirði, d. 14.6.
1950, og Kornelía
Sigríður Kristinsdóttir, skrif-
stofustúlka, f. 19.9. 1911 í Reykja-
vík, d. 18.12. 1992. Hinrik (Hinni)
og Kornelía (Konný) eignuðust
tvö börn; Auðun og Guðrúnu Hin-
riksdóttur, f. 27.2. 1942. Eig-
inmaður hennar er Haukur Hann-
esson og eiga þau fimm börn.
Auðunn kvæntist 16.11. 1968
Helgu Halldórsdóttur, f. 15.9.
1942 á Akranesi. Auðunn og
Helga eignuðust saman fjögur
börn, þau eru: 1. Margrét, f. 15.9.
1967, eiginmaður hennar er Birg-
ir Haraldsson, f. 11.10. 1965, og
eiga þau saman þrjú börn; a) Har-
aldur, f. 16.7. 1991; b) Bryndís
Helga, f. 26.11. 1992; c) Konný
að eignast eitt langafabarn; Kol-
brún Ósk f. 21.4. 2014 sem er dótt-
ir Bryndísar Helgu og Axels
Björns Clausen.
Auðunn og Guðrún systir hans
ólust upp hjá móður sinni í
Reykjavík. Faðir hans lést þegar
Auðunn var sjö ára. Auðunn var
sendill á hjóli hjá Prentsmiðjunni
Eddu og Melabúðinni, einnig
hrópaði hann „sælgæti, sígar-
ettur og vindlar, dómarinn svindl-
ar“ á Melavellinum. Auðunn var í
sveit nokkur sumur á Uppsölum.
Hann gekk í Verzlunarskóla Ís-
lands eftir Landspróf og útskrif-
aðist þaðan með verzlunarpróf.
Ungur stóð hann vaktina í Herra-
deild P & Ó þar til hann tók þátt í
Síldarævintýrinu á Seyðisfirði
þar sem hann hitti ástina sína,
hana Helgu á planinu hjá Neptún.
Auðunn og Helga hófu búskap í
Reykjavík og stofnuðu heimili
sem stækkaði ört. Á fyrstu bú-
skaparárunum vann Auðunn hjá
Ríkisskattstjóra, síðan á Patreks-
firði í Samvinnubankanum. Þegar
þau fluttu aftur til Reykjavíkur
starfaði hann við bókhaldsstörf
þar til hann gerðist verzl-
unarmaður og þau hjónin ráku
Svarta svaninn í 22 ár. Eftir það
hóf hann sendibílarekstur og
vann við það fram á síðasta dag.
Útför hans fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 7. nóvember
2016, klukkan 13.
Lára; f. 5.12. 1996. 2.
Hinrik, f. 8.5. 1969,
eiginkona hans er
Nuanchan Phiatc-
han, f. 29.6. 1976 og
eiga þau saman eitt
barn; a) Natalía
Tunjeera, f. 24.9.
2007. 3. Hulda Kar-
en, f. 30.10. 1973,
eiginmaður hennar
er Ríkharður
Traustason, f. 31.3.
1968, Hulda Karen á; a) Sara Rut
Kjartansdóttir, f. 18.12. 1996,
saman eiga þau b) Svandís Rós, f.
7.6. 2000. Að auki á Ríkharður: a)
Sigríður Ólöf, f. 12.3. 1986; b)
Sindri, f. 5.9. 1993; c) María, f.
20.7. 1995. 4. Auðunn Sigurður, f.
28.9. 1978, eiginkona hans er
Gerður Marísdóttir, f. 12.9. 1978,
og eiga þau þrjú börn saman: a)
Oliver Nói, f. 31.12. 2005; b) Lúk-
as Tumi, f. 21.5. 2008; c) Tinna
Mjöll, f. 29.10. 2010. 5) Skúli, f.
23.3. 1969, er sonur Auðuns og
Kristínar Norðmans, börn hans
eru; a) Kamilla Stjarna, f. 11.5.
2005; b) Vignir Sigur, f. 21.7.
2006. Auðunn var svo gæfusamur
Ó, elsku hjartans Auðunn
minn, mikið hvað ég sakna þín.
Þetta hefur verið svo erfiður tími.
Ég er alltaf að bíða eftir því að þú
komir heim. Sakna svo nærveru
þinnar, kossanna og knúsanna
sem þú varst svo óspar á. Ég ylja
mér við yndislegar og fallegar
minningar okkar með börnunum
okkar sem hafa verið hjá mér og
hjálpað mér mikið, þessar elskur.
Þú varst svo traustur og yndis-
legur, elsku ástin mín.
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum,
það yrði margt, ef telja skyldi það.
Í lífsins bók það lifir samt í minnum,
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita, stóra hjarta,
þá helgu tryggð og vináttunnar ljós,
er gerir jafnvel dimma daga bjarta,
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(MJ)
Útgeislun þín er eins og
geislar sólarinnar.
Hún lýsir upp
eins og stjarna á himninum,
þar sem Guð annast þig.
Í dag brestur strengur
í brjóstum okkar
því þú ert ekki
lengur hjá okkur.
En minning þín
lifir í hjörtum okkar
og í hugsunum okkar
um aldir alda.
(Þýð.: Guðmunda Arnardóttir)
Þín ástkæra eiginkona,
Helga Halldórsdóttir.
Elsku besti pabbi, mín fyrir-
mynd. Ekki átti ég von á að þessi
dagur myndi renna upp þar sem
þú hyrfir úr mínu lífi, mér fannst
þú bara alltaf eiga að vera til stað-
ar. Sú er nú raunin og mikið
þakka ég fyrir allar þær gæða-
stundir sem við áttum saman .
Sérstaklega eru mér minnis-
stæðir allir bíltúrarnir sem fórum
saman til að skoða hitt og þetta ,
þar ræddum við allt milli himins
og jarðar en oftast enduðum við í
umræðum um bíla, bílnúmer og
bíltegundir. Alltaf þótti mér gam-
an að fara með þér og loka sjopp-
unni seint á kvöldin þar sem ég
fékk mín verkefni, mér fannst ég
svo fullorðinn að fá að bröltast
þetta með þér, seinna fékk ég svo
stærra hlutverk og hjálpaði til við
reksturinn á Svarta svaninum.
Alltaf stóðstu við bakið á mér
hvað sem ég tók mér fyrir hend-
ur, þú leyfðir mér að gera mistök
og læra af þeim undir vökulum
augum þínum. Ráðin þín til mín í
gegnum tíðina hef ég haft að leið-
arljósi og þau hafa gert mig að
þeim manni sem ég er í dag.
Yndislegri afa og tengdapabba
er ekki hægt að hugsa sér. Alltaf
hlökkuðum við til að fá þig og
mömmu í heimsókn, krakkar biðu
með andlitin límd við gluggann og
hlupu af stað út um leið og til ykk-
ar sást og fögnuðu komu ykkar.
Það var svo gaman að eiga all-
ar þessar frábæru stundir í sum-
arbústaðnum „okkar“ þar sem
við tókum ákvarðanir um hvaða
tré ætti að fella, hvar ætti að mála
næst, hvar þarf að skipta um
spýtur og þess háttar.
Elsku besti pabbi, alltaf mun
ég varðveita þessar góðu stundir í
hjarta mínu.
Auðunn S. Auðunsson.
Elsku besti afi.
Okkur finnst svo sárt að þú
hafir þurft að fara til englanna og
að við sjáum þig ekki aftur. Við
eigum svo margar ljúfar og góðar
minningar með ykkur ömmu eins
og öll skemmtilegu jólaboðin hjá
ykkur og allar skemmtilegu
stundirnar þegar þið pössuðu
okkur. Eitt skiptið þegar við gist-
um hjá ykkur gaf amma okkur
snakk sem Lúkasi fannst ekki
gott og þá gerðir þú þér lítið fyrir
og bauðst Lúkasi á rúntinn, bara
þið tveir, þar sem hann fór með
þér í búðina að kaupa annað
snakk sem Lúkasi fannst gott.
Lúkasi fannst svo vænt um þetta
og það var svo mikið sport að fá
að vera einn með afa og fara í
búðina eftir kvöldmat. Okkur
finnst mjög fallegt af ykkur að
hafa leyft okkur að fá sumarbú-
staðinn ykkar lánaðan á sumrin
og það var alltaf svo mikil til-
hlökkun að fá ykkur í heimsókn
og sýna ykkur hvað við vorum bú-
in að vera dugleg að hjálpa til við
að mála, snyrta tréin, grasið og
svo auðvitað að sýna ykkur nýjar
leynileiðir sem pabbi bjó til með
okkur. Svo var grillað og stund-
um pottafjör. Þú varst alltaf svo
hjálpsamur að keyra okkur á fót-
boltamót og í afmæli og fleira
þegar mikið var að gera hjá
mömmu og pabba. Oliver Nói
man alltaf eftir því þegar þú
keyrðir hann á fótboltaleik þar
sem hann keppti með Fram á
móti Haukum og þeir gerðu jafn-
tefli 2:2 . Þetta var merkilegur
leikur að því leyti að þetta var
eina stigið sem þeir fengu á þessu
móti og Oliver Nói kallaði þig
lukkudýrið þeirra eftir þetta og
hefði gjarnan viljað fá þig á fleiri
leiki. Elsku afi, takk fyrir allt fót-
boltaspjallið og fyrir fánabókina
sem ég varðveiti vel. Tinna Mjöll
man þegar þú kallaðir hana alltaf
„Fröken Fix“ og varst alltaf svo
góður og hlýr ,fyndinn og
skemmtilegur. Okkur finnst svo
dýrmætt þegar þið amma komuð
í mat til okkar kvöldið áður en þú
fórst á spítalann.
Elsku afinn okkar, við söknum
þín og elskum þig og munum allt-
af varðveita allar góðu minning-
arnar okkar saman.
Oliver Nói , Lúkas Tumi
og Tinna Mjöll.
Elskulegur bróðir minn er fall-
inn frá. Það er sárt að sjá á eftir
þessum glæsilega og góða manni
sem hann var. Auðunn hefur alla
tíð verið stór partur af lífi mínu
og fjölskyldu minnar. Ég á eftir
að sakna símtalanna frá honum,
þar sem hann spurði hvort það
væri kaffi á könnunni, þau hjón
væru stödd í nágrenninu og lang-
aði í kaffisopa. Það var alltaf gam-
an að fá þau í kaffisopa og spjall.
Við Haukur áttum margar
ógleymanlegar stundir með þeim
hjónum, bæði heima og í ferðum
til Spánar og Kanaríeyja, enda
þau hjón frábærir ferðafélagar.
Þau hjón voru mjög samrýnd og
samtaka í að gera allt það besta
fyrir fjölskylduna. Ógleymanleg-
ar voru allar helgarferðirnar sem
við systkinin og fjölskyldur okkar
áttum í sumarbústað þeirra
hjóna, þar sem allir skemmtu sér
vel. Þar var grillað, farið í leiki,
bæði inni og úti, farið í heita pott-
inn og fleira. Þeir sem ekki höfðu
svefnpláss inni í bústaðnum voru
í tjöldum og fellihýsum. Allir fóru
glaðir heim eftir skemmtilegar
helgar.
Elsku Helga og fjölskylda, við
Haukur sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur og
biðjum góðan Guð að styrkja ykk-
ur í þessari miklu sorg.
Hvíldu í friði, elsku bróðir.
Þín systir,
Guðrún.
Mig langar að minnast, með fá-
einum orðum, Auðuns (frænda)
sem féll frá alltof fljótt.
Auðunn var einstaklega hlýr
og skemmtilegur maður með
ákveðnar skoðanir. Ég mun
aldrei gleyma hversu vel hann
reyndist mér þegar ég var lítil
stelpa, enda var hann í miklu
uppáhaldi hjá mér. Auðunn skilur
eftir sig stórt skarð.
Elsku Helga og fjölskylda,
missir ykkar er mikill. Megi Guð
gefa ykkur styrk í sorginni.
Elísabet.
Auðunn Sigurður
Hinriksson
Fleiri minningargreinar
um Auðun Sigurð Hinriks-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna fráfalls elsku móður okkar,
HREFNU EINARSDÓTTUR,
Núpalind 8,
áður Skólagerði 18 í Kópavogi.
.
Stefanía María og Sigríður Jóna Ólafsdætur.
Yndisleg sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
KARLOTTA SIGRÍÐUR
GUÐFINNUDÓTTIR,
Engjahlíð 1, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans
26. október. Jarðarför fer fram frá Bústaðakirkju 8. nóvember
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Líknarsjóð
Brunavarðafélags Reykjavíkur, reikn. nr. 0515-26-112225, kt.
460279 0469.
.
Jón Valgeir Björgvinsson
Guðfinna Sif
Gunnlaugur Anna Dóra
Bergþóra
Jóhann Haukur
Herborg Sigríður Brynjar
Sigurður Jónas Björk
barnabörn og barnabarnabörn.