Morgunblaðið - 07.11.2016, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2016
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
HACKSAW RIDGE 5.20, 8, 10.45 (P)
DR. STRANGE 3D 8, 10.30
TRÖLL 2D ÍSL.TAL 6
BRIDGET JONES’S BABY 5.30, 8, 10.25
POWERSÝNING
KL. 22.45
Miðasala og nánari upplýsingar
Glæpasagan Grimmd erönnur frásagnarmyndupprennandi kvikmynda-gerðarmannsins Antons
Sigurðssonar í fullri lengd. Anton
nam leikstjórn og framleiðslu við
Kvikmyndaskóla Íslands og hefur
greinilega brennandi áhuga á fag-
inu. Með elju og drífandi ástríðu
fyrir listsköpun sinni réðist hann í
gerð metnaðarfullrar frumraunar
og frumsýndi hrollvekjuna Grafir
og bein í kvikmyndahúsum hér-
lendis haustið 2014. Handrit þeirr-
ar myndar var þó fallvalt, svo að
heildarútkoman rann að mestu út í
sandinn. Antoni tekst heldur betur
upp að þessu sinni þótt annmarkar
á frásagnarfléttu og framvindu séu
aftur Akkilesarhæll heildarinnar.
Grimmd er málsmeðferðardrama
sem hefst á því að tvær barnungar
systur finnast myrtar á snjóbreiðu
í Heiðmörk, tveimur sólarhringum
eftir að þær hurfu sporlaust af
leikvelli í Árbænum. Óhug slær á
þjóðina, sem fylgst hefur grannt
með leitinni að systrunum, og
spjótin beinast að lögreglunni, sem
hefur fáar haldbærar vísbendingar
og nánast engin sönnunargögn til
að byggja á. Málið er í höndum
tveggja reyndra rannsóknarlög-
reglumanna, þeirra Eddu Davíðs-
dóttur (Margrét Vilhjálmsdóttir)
og Jóhannesar Schram (Sveinn
Ólafur Gunnarsson), en þau neyð-
ast til að velta við hverjum steini í
leit að svörum og byrja á að kalla
inn alla þekkta og áður dæmda
níðinga sem brotið hafa á börnum.
Þrátt fyrir að þau séu bæði stað-
ráðin í að leysa málið tekur að
hrikta í samstarfinu og stoðum
réttvísinnar þegar málið heldur
áfram að vinda upp á sig og drag-
ast á langinn. Draugar fortíðar
fara á stjá og ýfa upp gömul sár
og þegar þjóðin ókyrrist enn frek-
ar fer að örla á múgæstum norna-
veiðum og óttadrifnum hefndar-
þorsta. Þá er voðinn vís og góð ráð
dýr.
Mikil rannsóknarvinna
Mikil rannsóknarvinna liggur að
baki handritinu og sögunni. Lög-
reglan veitti ráðgjöf og bauð leik-
urum og tæknifólki að fylgjast
með framkvæmd rannsókna og
verklagi við yfirheyrslur. Einnig
fengu aðstandendur greinargóða
innsýn í starf meinatækna og ann-
arra tæknimanna við öflun og úr-
vinnslu ýmiss konar sönn-
unargagna. Fyrir vikið fylgir
handritið eiginlega starfsháttum
lögreglu of raunsæislega eftir
þannig að sagan verður ekki mjög
grípandi og flæði ekki nógu gott.
Lögreglan þarf vissulega að elta
uppi alla áðurdæmda níðinga í
svona viðkvæmum málum þegar
sönnunargögnin eru ekki afgerandi
en nákvæmar útilokunaraðgerðir
með ótal öngstrætum eru einar og
sér ekki nægilega spennandi upp-
lag að góðri sakamálamynd. Frá-
sögnin verður rislítil og næstum
langdregin því hún er keyrð á
svipuðum takti út í gegn og mikið
er um óþarfa útskýringar og vafst-
ur. Flétta myndarinnar er einnig
frekar almenn eins og í form-
úlubyggðum framhaldsþáttaserí-
um. Myndin er vel gerð og dramað
sannfærandi en ekki eftirminnilega
sértækt. Betra hefði verið að
leggja út af framandlegri glæp
sem væri ráðgáta í sjálfum sér eða
kenjóttari, sérvitrari aðal-
söguhetjum til að brydda upp á
hádramatískt raunsæið eins og til
dæmis var gert í Mýrinni (2006).
Efniviður myndarinnar er við-
kvæmur og vandmeðfarinn en leik-
stjóri og leikarar nálgast hann af
nærgætni sem einkennist af djúpu,
óhvikulu og áræðnu innsæi. Út frá
mannlegri samkennd er rýnt í or-
sakir og afleiðingar viðurstyggi-
legs níðingsskapar á fórnarlömb,
aðstandendur þeirra og samfélagið
í heild. Sagan varpar ljósi á það
hvernig illrjúfanlegur grimmur
vítahringur viðheldur sér þar sem
flestir níðingar voru sjálfir brota-
þolar í æsku. Þessi fórnarlömb
verða síðar óforbetranlegir úlfar í
sauðagæru sem bera ósýnileg ör
og þurfa dag hvern að kljást í
leynd við hamlandi persónu-
leikabresti um leið og þeir leita að
ást og viðurkenningu annarra, oft
dreymandi um skilorð og annað
tækifæri.
Margar eftirminnilegar senur
Helstu persónur myndarinnar eru
vel skapaðar og gæddar átakan-
legum tilfinningum og innra sálar-
stríði þar sem angist, harmur og
heift eru ytri tjáningarmyndir rot-
innar innri kviku þöggunar og
myrkra fjölskylduleyndarmála.
Leikstjórinn heldur ágætlega utan
um þennan nokkuð stóra hóp per-
sóna og leikurunum er gefið gott
andrúm til að gera hlutverkum
sínum frámunalega góð skil. Fyrir
vikið eru margar sterkar og eftir-
minnilegar senur í myndinni.
Sveinn Ólafur fer á kostum í við-
sjárverðum yfirheyrslum og
frammistaða Margrétar Vilhjálms
er sannfærandi út í gegn en hún
er einna tilþrifamest í spennu-
þrungnustu senu myndarinnar þar
sem hún sækir heim tvo skugga-
lega sambýlinga sem báðir kalla
sig Jón. Hannes Óli Ágústsson á
leiksigur í hlutverki einfeldnings-
ins Magna þar sem hann pukrast
um og liggur á meinfýsnum gægj-
um í íþróttahúsi barnaskóla. Sam-
skipti Magna við móður sína,
leikna af Ólafíu Hrönn Jónsdóttur,
eru einnig krassandi. Pétur Óskar
Sigurðsson sýnir meistaratakta í
hlutverki samfélagslega olnboga-
barnsins Andra, sem gengur hálf-
brösulega að fóta sig í lífinu. Nær-
vera hans og ásjóna á skjánum fær
ein og sér á áhorfendur. Atli Rafn
Sigurðsson og Salóme Gunnars-
dóttir gera sínum persónum einnig
góð skil þótt aðstæður þeirra séu
stundum svolítið klisjukenndar.
Kvikmyndatakan er frambæri-
leg, áferðarfögur og skýr. Mikið
ber á áhrifaríkum nærmyndum af
svipbrigðamiklum andlitum eða
enn ýktari nærmyndum af
ákveðnum líkamshlutum fórnar-
lamba. Fallegar yfirlitsmyndir af
borgarlandslaginu fangaðar með
drónum létta svo á nárýni nær-
myndanna. Sviðsmyndir og förðun
eru vel heppnuð og raunsæ án
þess að verða of ágeng og miðla
stóískri hluttekningu og virðingu
fyrir viðfangsefninu. Talsetning
myndarinnar stingur svolítið í stúf
en á móti kemur að hvert sagt orð
heyrist greinilega. Annmarkar í
handriti eru eins og fyrr segir
helsti Akkilesarhæll heildarinnar
en að sama skapi líða yfir tjaldið
margar afar eftirminnilegar og vel
leiknar senur. Þær virka eins og
ljóslifandi raunsannar örsögur sem
skyggnast inn í rotin samfélags-
mein, þar sem meinlegar illa upp-
rætanlegar fýsnir grassera, bak
við luktar dyr og í fylgsnum brost-
inna sála.
Harmur, heift og hatur
Grimmd „Frammistaða Margrétar Vilhjálms er sannfærandi,“ segir rýnir.
Smárabíó, Háskólabíó
og Borgarbíó
Grimmd bbbnn
Leikstjórn og handrit: Anton Sigurðs-
son. Stjórn kvikmyndatöku: Árni Fil-
ippusson. Klipping: Árni Freyr Haralds-
son. Leikmyndahönnun: Halla Þórlaug
Óskarsdóttir. Förðun: Sandra María Ás-
geirsdóttir. Aðalhlutverk: Margrét Vil-
hjálmsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnars-
son, Júlíana Sara Gunnarsdóttir,
Hannes Óli Ágústsson, Salóme
Gunnarsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson,
Pétur Óskar Sigurðsson og Ólafía Hrönn
Jónsdóttir. 104 mín. Ísland, 2016.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Mikið var um tón-sögudýrðir í Hall-grímskirkju á laug-ardag þegar Te Deum
Charpentiers var Íslandsfrumflutt í
heild sinni ef að líkum lætur – litlum
324 árum eftir tilurðartíma. Og má
merkilegt heita þegar jafnvel klass-
íkfráhverfustu hlustendur kannast
a.m.k. við inngangsstefið, er hljóm-
ar í hvert sinn sem efni úr Evr-
óvisjón (þ. á m. popplagakeppnin al-
fræga) guðar á sjónvarpsskjái
landsmanna. Í alla staði glæsilegt
miðbarokkverk er ber aldur sinn
vel.
Hitt er svo annað mál að upp-
haflegt tilefni þess tengdist feðra-
veldislægu ofbeldi. Nefnilega orr-
ustunni við Steenkerque á
Niðurlöndum 1692 þegar almættið
„hélt með“ Frökkum í Níu ára stríð-
inu. Á sinn hátt hrópleg misbeiting
á fornum helgitexta Ambrósíusar
kirkjuföður frá 4. öld, þótt algeng
væri á einveldistímum barokksins
þegar vel þótti vegna á vígvelli.
Allt um það var sérstök unun að
þessum tónflutningi; að mestu undir
formerkjum upprunatúlkunar fyrr-
um Alþjóðlegu barokksveitarinnar í
Haag er nú mun kennd við guðshús
passíuskáldsins. Aðeins eitt gat
skert fullkomna ánægju hlustenda,
og það var gímaldsheyrð vettvangs-
ins er sem kunnugt bræðir hraðasta
tónflúrsferli í nánast gráan graut
þegar á nálægustu áheyrnar-
bekkjum. Að því leyti komu kórkafl-
ar hinnar stuttu Messu Bachs í F-
dúr frá 1738 hlutfallslega verst út.
Annars lét hrifning hlustenda
ekki á sér standa enda var meðferð
flytjenda sem næst í úrvalsflokki.
Hljóðfæraleikur var undantekn-
ingalítið hrífandi lipur og samtaka;
blómstrandi fornlúðrablástur í
sigurfagnandi inngangsverkinu og
kórsöngur almennt tandurhreint
agaður.
Íslenzku einsöngvararnir reynd-
ust sömuleiðis vandanum vaxnir, þó
að sakna mætti ögn meiri radd-
styrks í altinum. Að kollegum ólöst-
uðum vakti sópraninn (í hlutfalls-
legu litlu hlutverki) athygli fyrir
raddfegurð, og ekki sízt hafði bass-
inn til að bera hæfilega ,strigaða
sendirödd‘ ef svo má kalla, er gaf
vonir um vænlegan feril.
Hér var s.s. bráðvel að flestu
staðið, og hélt stjórnandinn að sama
skapi mynduglega um útkomuna í
heild af þaulnæmu innsæi.
Eini gallinn á að öðru leyti vel
frágenginni tónleikaskrá var að láð-
ist að geta áhafna stakra kafla í Te
Deum. Og ef manni leyfist að gauka
einni framtíðarósk að í lokin: Fer
ekki að verða tími til kominn að
sinna kantötuarfi Bachs? Eða erum
við ekki öll, innst inni, í Bach-
klúbbnum?
Morgunblaðið/Eggert
Mótettukórinn „Allt um það var sérstök unun að þessum tónflutningi; að mestu undir formerkjum upprunatúlk-
unar fyrrum Alþjóðlegu barokksveitarinnar í Haag er nú mun kennd við guðshús passíuskáldsins,“ skrifar rýnir um
flutning kórsins og Alþjóðlegrar barokksveitar Hallgrímskirkju.
Þegar Drottinn hélt með Frökkum
Hallgrímskirkja
Barokktónleikarbbbbm
M.-A. Charpentier: Marche de Triomphe
H547; Te Deum í D H146. J.S. Bach:
Missa brevis í F BWV 233. Mótettukór
og Alþjóðleg barokksveit Hallgríms-
kirkju. Einsöngvarar: Sigríður Ósk Krist-
jánsdóttir MS, Auður Guðjohnsen A,
Oddur A. Jónsson B, Thelma Hrönn Sig-
urdórsdóttir S og Guðmundur Vignir
Karlsson T. Stjórnandi: Hörður Áskels-
son. Laugardaginn 29. okt. kl. 19.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
mbl.is
alltaf - allstaðar