Morgunblaðið - 07.11.2016, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 312. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Skytturnar gátu látið vita af sér
2. Laumaðist inn í …
3. Rjúpnaskytturnar fundnar
4. Héldu um hvorn annan en …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Björgvin Gíslason og hljómsveit
hans, sem í eru Ásgeir Óskarsson,
Haraldur Þorsteinsson, Sigurður Sig-
urðsson, Jens Hansson og Tómas
Jónsson, „gera allt vitlaust“ á blús-
kvöldi sem hefst klukkan 21 á Café
Rosenberg í kvöld.
Björgvin Gíslason
á Café Rosenberg
Árni Rúnar
Sveinsson opnaði
sl. laugardag mál-
verkasýninguna
Náttúru í Listasal
Mosfellsbæjar.
Þar eru myndir
sem túlka þau
áhrif sem litbrigði
og form frum-
gróðurs jarðar hafa haft á listamann-
inn. Sýningin er opin kl. 12-18 virka
daga og 13-17 á laugardögum og lýk-
ur 3. desember. Aðgangur er ókeypis.
Árni Rúnar sýnir í
Listasal Mosfellsbæjar
Ármann
Guðmunds-
son, forn-
leifafræð-
ingur og
sérfræð-
ingur Þjóð-
minjasafns Íslands, flytur erindi um
víkingaaldarsverð sem fundist hafa á
Íslandi í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safnsins á morgun og hefst lesturinn
kl. 12.
Ármann ræðir um hvernig sverðin
geta upplýst okkur um samfélög for-
tíðar.
Fjallar um víkinga-
aldarsverð á Íslandi
Á þriðjudag Hvöss sunnan- og suðvestanátt um morguninn en
lægir smám saman. Rigning í fyrstu, síðan skúrir eða slydduél en
léttir til á NA- og A-landi. Hiti yfirleitt 2 til 8 stig.
Á miðvikudag Vægt frost en hiti víða 0 til 5 stig við ströndina.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða rigning, talsverð úrkoma á S- og V-
landi. Hiti 5 til 12 stig. Suðaustan 15-23 seint í kvöld, hvassast V-til.
VEÐUR
Liverpool er eitt í efsta sæti
í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Liverpool
sýndi allar bestu hliðar sín-
ar í gær þegar liðið burstaði
Watford, 6:1, og er með eins
stigs forskot á Chelsea.
Manchester United komst á
sigurbrautina á nýjan leik
þegar liðið hafði betur á
móti Gylfa Þór Sigurðssyni
og félögum hans í Swansea.
Þá skildu Arsenal og Totten-
ham jöfn í Lundúnaslag. »4
Liverpool komið
eitt í efsta sæti
Slakur sóknarleikur varð íslenska
karlalandsliðinu í handknattleik að
falli þegar það tapaði fyrir Úkraínu-
mönnum í öðrum leik sínum í undan-
keppni Evrópumótsins
í Sumy í Úkraínu. Rið-
illinn er galopinn, en
allar fjórar þjóðirnar
eru með tvö stig eftir
tvo leiki. »2
Slakur sóknarleikur
varð liðinu að falli
„Heilt yfir er ég mjög ánægð en það
er svolítið súrt að enda mótið svona.
Aftur á móti var geggjað að eiga tvo
svona daga í byrjun,“ sagði Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeist-
ari í golfi, við Morgunblaðið, en eftir
frábæra byrjun á Fatima Bint Mub-
arak-mótinu í golfi í Abu Dhabi í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum
endaði hún í 26.-30. sæti. »8
Heilt yfir er ég mjög
ánægð með mótið
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Bardagaklúbburinn Mjölnir er rek-
inn án ríkisstyrkja og hefur klúbbur-
inn byggst upp að verulegu leyti á
sjálfboðavinnu og dugnaði. Klúbbur-
inn hefur stækkað ört á undan-
förnum árum samhliða vaxandi vin-
sældum MMA á Íslandi.
Nýlega gengu forsvarsmenn
Mjölnis frá langtímaleigu á húsnæði
gömlu Keiluhallarinnar í Öskjuhlíð
og segir Jón Viðar Arnþórsson, for-
maður Mjölnis, stefnt að því að taka
nýja húsnæðið í notkun um áramót.
Mjölnir fékk húsnæðið afhent í síð-
ustu viku en það hefur verið lengi í
farvatninu að klúbburinn flyttist í
húsnæði gömlu Keiluhallarinnar;
Morgunblaðið greindi frá því í nóv-
ember á síðasta ári að klúbburinn
hygðist flytja í Keiluhöllina á vor-
mánuðum 2016. Jón Viðar segir fjár-
festa hafa reynt í tvö ár að kaupa
húsnæðið fyrir félagið en það hafi
ekki tekist fyrr en í síðasta mánuði.
Ætla að opna fyrir áramót
Á lokametrunum var þó útlit fyrir
að húsnæðið rynni úr greipum
Mjölnismanna eftir að hópur fjár-
festa dró sig úr verkefninu skömmu
áður en húsnæðið átti að fara á upp-
boð. Hópur fjárfesta á vegum Arnars
Gunnlaugssonar kom þó að verkefn-
inu á lokametrunum og náðist sam-
komulag einni mínútu áður en upp-
boð á húsnæðinu átti að hefjast í lok
síðasta mánaðar.
Jón Viðar segir það verðugt verk-
efni að koma húsnæðinu í stand fyrir
áramót enda hafi framkvæmdirnar
farið seinna af stað en upphaflega
stóð til. „Við ætlum að ná því,“ segir
Jón Viðar.
Sameiginlegt verkefni iðkenda
„Á hverju einasta kvöldi hafa verið
hérna á bilinu 30 upp í 80 sjálfboða-
liðar að vinna í húsinu,“ segir Jón
Viðar. Og er Gunnar Nelson einn af
þeim? „Já, hér eru allir þjálfararnir
og MMA-keppnisliðið. Gunni er bú-
inn að vera hérna nánast alla daga
með slípirokkinn og sögina,“ segir
Jón Viðar léttur í bragði.
Spurður út í þessa samheldni,
hvort það sé ekki einstakt að íþrótta-
félag nái að byggja íþróttahöll, í
þessu tilfelli bardagahöll, með sjálf-
boðaliðum, segir Jón Viðar svo vissu-
lega vera. „Ég held að maður finni
þetta ekki á mörgum stöðum,“ segir
hann. Jón segir að framkvæmdirnar í
Loftkastalanum 2011 hafi verið með
sama hætti, iðkendur hafi látið hend-
ur standa fram úr ermum.
„Við ætlum að taka yfir. Við ætlum
að gera þetta að þjóðaríþrótt á Ís-
landi. Núna erum við með 1.400 iðk-
endur, markmiðið er að ná í kringum
þrjú þúsund iðkendum.“
Á gólfinu en bestur í gólfinu
Gunnar Nelson
og Mjölnismenn í
framkvæmdum
Morgunblaðið/Golli
Bardagakappi Gunnar Nelson bardagakappi lætur sitt ekki eftir liggja við framkvæmdirnar og lætur til sín taka „á
gólfinu“ líkt og aðrir iðkendur. Hann mundaði slípirokkinn þegar ljósmyndari Morgunblaðsins leit inn í gær.
Morgunblaðið/Golli
Mjölnir Bardagaklúbburinn Mjölnir stefnir að því að taka nýja húsnæðið í
notkun á þessu ári. Iðkendum hefur fjölgað mikið að undanförnu.