Morgunblaðið - 24.11.2016, Side 2

Morgunblaðið - 24.11.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Hlýnandi veður verður næstu daga samkvæmt upp- lýsingum frá Veðurstofu Íslands. Fólki er bent á að hreinsa vel frá niðurföllum svo að vatnið komist leiðar sinnar og þar sem svell eða þjappaður snjór er á vegum myndast flughálka þegar hlánar. Sunnan- og suðvestanátt er í dag, rigning sunnan og vestanlands en úrkomuminna á norðan- og austanverðu landinu. Síðdegis í dag má búast við hvassviðri eða stormi á annesjum fyrir norðan og austan en annars staðar verður hægari vindur. Á morgun dregur úr vestanáttinni og úrkoman minnkar en sums staðar verða áfram stöku skúrir eða él. Aftur kólnar á morgun en ekki lengi því gert er ráð fyrir hitatölum um helgina. Frekar hvasst verður áfram fyrir austan á morgun en dregur úr vindinum þegar líða tekur á daginn. Strax á laugardaginn mun hlýna aftur því suð- lægar áttir koma upp að landinu. Besta veðrið verð- ur fyrir norðan og austan um helgina; þar verður þurrt og bjart en hér fyrir sunnan má búast við vætu, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Aðventan nálgast og veðrið breytist stöðugt Morgunblaðið/Golli Hlýnandi veður næstu daga á öllu landinu Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Ég er alls ekki að gagnrýna skýrsl- una. Það hefði ef til vill mátt fjalla ítar- legar um tiltekin atriði og kannski draga upp enn fyllri mynd af aðstæð- um á hverjum tíma, í hvaða aðstöðu menn voru. Það var ekki eðlilegt mark- aðsástand þessi ár, 2010 og 2011,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Lands- bankans, í samtali við Morgunblaðið, en í byrjun vikunnar gaf Ríkisendur- skoðun út skýrslu varðandi eignasölu Landsbankans á árunum 2010 til 2016. Steinþór telur að skýrslan hefði þurft að taka meira mið af aðstæðum í sam- félaginu þegar sala eignanna fór fram. Stofnunin gagnrýnir nokkr- ar sölur bankans, þ.e. sölu á eignar- hlutum sínum í Vestia hf. (2010), Icelandic Group hf. (2010), Pro- mens hf. (2011), Framtakssjóði Ís- lands slhf. og IEI slhf. (2014), Borgun hf. (2014) og Val- itor hf. (2014). Bent er á að allar þess- ar sölur hafi farið fram í lokuðu ferli og í sumum tilvikum fengist líklega lægra verð fyrir eignarhlutina. „Ég fagna þessari skýrslu. En þetta ferðalag er búið að vera mjög sérstakt, hvernig staðan var hér á íslenskum fyrirtækjum, ríkissjóði og heimilunum á þessum árum,“ bætir Steinþór við, en bankinn hafi strax árið 2011 sett stefnu um sölu fullnustueigna og endurbætt hana reglulega. Sambærileg stefna var svo sett um allar eignir árið 2015. Endurreisa þurfi orðsporið Steinþór greindi jafnframt frá því í gær að hann hygðist ekki segja starfi sínu lausu í kjölfar skýrslunnar, en Ríkisendurskoðun hvetur bankaráð Landsbankans til að grípa til ráðstaf- ana til að endurreisa orðspor bankans. „Við endurvekjum traust með verkum okkar og yfir langan tíma. Við höfum brugðist við og settum nýja víðtækari og stífari stefnu og verkferla, bættum úr því sem áður hafði verið og nú er það okkar að framfylgja því vel,“ segir hann, en bankinn sé stöðugt að bæta sig. „Við fengum á okkur mikla gagnrýni vegna söluferlis á hlut bankans í Borg- un og þá fórum við í mikla rýni á hlut- unum. Við settum nýja stefnu og nýja verkferla og höfum brugðist við,“ segir hann, en í skýrslu Ríkisendurskoðunar hafi komið fram ábendingar til banka- ráðs sem brugðist hafi verið við. Bankaráð meti nú hvort þörf sé á frek- ari aðgerðum. Stefna bankans miði að því að starfsemin sé eins opin og gagnsæ og kostur er, með tilliti til laga um bankaleynd. Ástandið ekki verið eðlilegt  Steinþór segir ekki af sér í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar  Hafa þegar brugðist við og sett stífari stefnu og verkferla  Endurreisa orðspor með verkum Steinþór Pálsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Guð sendi manninn í þessa reisu til þess að vara Hnífsdælinga við heimsendi eða hliðstæðum ósköp- um,“ segir Finnbogi Her- mannsson, rithöfundur og út- varpsmaður í Hnífsdal. Liðsmaður trúarsamtaka gekk um götur þorpsins í fyrrakvöld og hélt á stóru kröfuspjaldi með áberandi skilaboðum. Þá bar trúboðinn há- talara sem stilltur var í botn. Í gær stóð maðurinn svo fyrir utan Menntaskólann á Ísafirði og var- aði fólk við samkynhneigð og kynlífi fyrir hjónaband. „Þessi maður, sem mér sýndist vera um fertugt, þrumaði og hafði hátt þegar hann gekk hér inn eftir Bakkavegi. Ég var að tala í símann þegar ósköpin byrj- uðu og slíkur var hávaðinn að konan á hinum enda símalínunnar heyrði allt hvað fram fór og þó var hún stödd suður í Reykjavík,“ segir Finnbogi, sem telur að boð- skapurinn hafi verið fluttur af geislaspilara eða stafrænu tæki. Manninn hefði efalítið þrotið örendið hefði hann mælt af munni fram, slíkur hafi hávaðinn verið og allt á háa C-inu. Trúboðinn gekk stóran hring um þorpið, svo flestir íbúar urðu hans varir. Á endanum kom lög- reglan svo á vettvang og bað manninn um að hafa sig hægan, enda hefðu kvartanir borist. Með það hvarf hann á braut. „Það var beygur í fólki eftir þetta. Sjálfur fór ég fram í dyragættina til að sjá ósköpin en skellti svo í lás eins og fleiri. Allur var varinn góður, því ég vildi ekki svona heimsókn,“ segir Finnbogi. Boðaði heimsendi í Hnífsdal Ljósmynd/Bryndís Sigurðardóttir Skilaboð Trúboðinn með skilti sitt við Menntaskólann á Ísafirði í gær.  Trúboði með há- talara  Beygur í fólki sem skellti í lás Velferðarráðu- neytið hefur svarað tilboði Heilsuverndar ehf. um úrræði fyrir 75-100 ein- staklinga í þörf fyrir hjúkrunar- rými. Í svarinu kemur fram að fjármunum sem ætlaðir eru til uppbyggingar og reksturs hjúkr- unarheimila á árinu 2016 hafi þeg- ar verið ráðstafað og því séu ekki til fjármunir til að taka í notkun fleiri hjúkrunarrými. Þá segir að þar sem fjárlög ársins 2017 liggja ekki fyrir séu engar forsendur til að fara í viðræður vegna nýrra samninga um rekstur hjúkrunar- og endurhæfingarrýma. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Teitur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Heilsuverndar, að í bréfinu væru fyrstu formlegu viðbrögð sem fengist hefðu bréf- leiðis frá ráðuneytinu. Hann fagn- aði því að niðurstaða væri komin í málið en sagði að af svarinu mætti skilja að ekki væri búið að leysa fráflæðisvanda Land- spítalans. „Okkar skilningur er sá að vandinn sé ekki leystur og enn þurfi að vinna í honum. Við höfum boðist til þess að reyna að leysa þetta og erum áfram alveg tilbúin að skoða það.“ erlarun@mbl.is Engar for- sendur til viðræðna Teitur Guðmundsson  Tilboði um 100 hjúkrunarrými hafnað Lögreglunni á Suðurnesjum hefur borist fjöldi kæra frá foreldrum barna á hendur manninum sem handtekinn var í síðustu viku, grun- aður um að áreita ungar stúlkur og birta myndir af þeim á netinu. Þetta segir Jón Halldór Sigurðsson, lög- reglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Í samtali við mbl.is í gær segir hann rannsókninni miða vel. For- eldrar barnanna séu almennt ánægðir með störf lögreglu og við- brögð hennar. Maðurinn er grun- aður um að hafa haldið úti vefsíðu með tugum mynda af stúlkum undir lögaldri, sem hann sagðist gera út í fylgdarþjónustu. Kærur borist frá foreldrum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.