Morgunblaðið - 24.11.2016, Síða 4

Morgunblaðið - 24.11.2016, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bjarni Benediktsson, fjármála- ráðherra og formaður Sjálfstæðis- flokksins, segir að staðhæfingar Benedikts Jó- hannessonar, for- manns Við- reisnar, og Katrínar Jak- obsdóttur, for- manns VG, um að staða ríkissjóðs sé ekki jafn góð og gefið hafi verið til kynna fyrir kosningar, og þar muni tugum milljarða króna séu „í besta falli fá- fræði“. Benedikt sagði á mbl.is í gær að það setti strik í reikninginn í stjórn- armyndunarviðræðunum að staðan í ríkisfjármálum væri tugum millj- arða þrengri en talið hefði verið. „Að vísa til aukningar til sam- gönguáætlunar, sem rætt var um í þingsal, fyrir kosningar, er mikil einföldun. Það er hefðbundið verk- efni þings og ríkisstjórnar að finna fjármagn í framkvæmdaáætlun í samgöngumálum og ekkert nýtt komið fram í þeim efnum. Það kom margoft fram í umræðum um þau mál, að um var að ræða ófjármagn- aðar hugmyndir. Þetta vissu allir fyrir löngu en láta eins og þau séu að átta sig á þessu núna. Mig rekur ekki minni til að í gildi hafi verið þingsályktunartillaga um fram- kvæmdir á samgöngusviðinu, sem hefur verið fullfjármögnuð. Svo því sé haldið til haga, þá var lagt til í nefndaráliti Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri-grænna að bæta enn meira í samgöngumál en meirihlutinn lagði til í sínum til- lögum. Því er ómerkilegt að koma nú og segja að fyrri stjórnarflokkar hafi skilið þetta eftir ófjármagnað. Þeirra eigin tillögur gengu lengra,“ sagði Bjarni. Bjarni segir að staðan sé sú í ríkisfjármálum, borið saman við þá langtímaáætlun, sem unnið hafi ver- ið eftir, að hún sé betri ef eitthvað er. „Tekjuáætlun er að vaxa á næsta ári um 10 milljarða að lágmarki. Það var hins vegar ég sem vakti athygli á því í kosningabaráttunni, að það væri ekki innistæða fyrir öllum út- gjaldahugmyndum þessara fimm flokka sem nú eru að ræða stjórn- armyndun. Það er einfaldlega það sem þessir flokkar eru að reka sig á núna. Þetta hefur ekkert með stöðu ríkisfjármálanna að gera. Þetta hef- ur allt með það að gera að flokkarnir gáfu ófjármögnuð kosningaloforð í aðdraganda kosninga og það er að renna upp fyrir þeim núna. Eitt af þeim var loforðið um 11% af lands- framleiðslu í heilbrigðismál, hvar er það núna?“ spurði fjármálaráðherra. Staðhæfingarnar í besta falli fáfræði  Staða ríkissjóðs betri en áætlað var Bjarni Benediktsson Álfheimar 74, Glæsibær | 104 Reykjavík | ynja.is Black friday 20% afsláttur af öllum breskum vörum Laufey Rún Ketilsdóttir Anna Sigríður Einarsdóttir Þorsteinn Ásgrímsson Melén „Björt framtíð og Viðreisn eru búin að taka þátt í stjórnarmyndunarvið- ræðum á báðum vængjum og þá hlýtur maður að spyrja sig hvort þeir flokkar þurfi ekki að fara að taka sér pásu og hleypa öðrum að í bili. Þeir virðast vera búnir að reyna ansi mikið fyrir sér en tvennar við- ræður slitnað,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmála- fræði við Háskólann á Akureyri, en upp úr slitnaði í stjórnarmyndunar- viðræðum Vinstri grænna, Viðreisn- ar, Bjartrar framtíðar, Samfylking- ar og Pírata síðdegis í gær. Þorsteinn Víglundsson, þingmað- ur Viðreisnar, sagði í gærkvöldi að áherslur á stórfelldar skattahækk- anir hefðu ekki hugnast Viðreisn. „Það var ekkert launungarmál að þó að allir flokkarnir væru samstíga um að leggja aukna áherslu á vel- ferðarútgjöldin voru fjármögnunar- leiðirnar afar ólíkar,“ sagði hann, en Viðreisn treysti sér í endurskoðun á ríkisfjármálum og nýja forgangs- röðun til að standa undir útgjalda- loforðum kosningabaráttunnar. Óttarr Proppé, formaður Bjart- arar framtíðar, sagði flokkana hafa verið með ólíkar yfirlýsingar í að- draganda kosninga og það hefði flækt málin varðandi stífari línur flokka í skatta- og útgjaldamálum. Þá hefði þrengri staða í ríkisfjár- málum einnig átt þátt í að viðræð- unum var slitið. „Það er farið að þrengjast mikið um og flokkarnir vita orðið ansi mikið um það hvaða leiðir eru fær- ar,“ segir Grétar Þór, en tíminn líði og því séu stjórnmálaflokkarnir ekki rólegir á meðan engar form- legar viðræður komist á. „Það er spurning, fyrst ekki hefur tekist að leysa úr þessu, hvort Framsóknar- flokkurinn fari að koma inn á tafl- borðið,“ segir Grétar. Hann telur ólíklegt að Katrín leiti strax til Sjálfstæðisflokksins í kjölfar slit- anna en staðan sé flókin. „Ennþá sögulegt tækifæri“ Líkur Framsóknarflokksins á að komast í viðræður um ríkisstjórn- armyndun og þar með mögulega ríkisstjórn hafi aukist eftir fréttir gærdagsins. Þetta segir Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands, og tekur því í sama streng. Ef litið sé til sögunnar hafi flokkar á miðjunni ráðið því hvernig stjórnir séu myndaðar og nú hafi Viðreisn og Björt framtíð bæði horft til vinstri og hægri en strandað í bæði skiptin. Eftir standi því Framsóknarflokkurinn. Þá bæt- ir hún við að miðað við stöðuna núna gætu flokkar þurft að opna á eitthvað sem þeir hafi áður lokað á. „Mér fannst eitthvað fallegt við þessa tilraun og hefði viljað sjá hana takast, þarna vorum við með svona litla þjóðstjórn þar sem við vorum með allt rófið,“ sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, í gær. „Það er ennþá sögulegt tækifæri til staðar og það er á ábyrgð okkar sem erum í stjórnmálum að finna lausn.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Búið Formaður Vinstri grænna tilkynnti slit viðræðna við Bjarta framtíð, Viðreisn, Pírata og Samfylkingu síðdegis í gær. Helst steytti á tillögum um stór- felldar skattahækkanir, samkvæmt þingmanni Viðreisnar. Þingmaður Pírata útilokar ekki að flokkarnir nái saman út frá öðrum áherslum. Líkur á aðkomu Framsóknar  Stjórnarmyndunarviðræður fimm flokka slitnuðu í gær  Flokkar á miðjunni ráðið því hvernig stjórnir eru myndaðar  Björt framtíð og Viðreisn fari í hvíld Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, sagði töluverðan áherslumun hafa verið í sjávar- útvegsmálum. „En að langstærstum hluta eru þetta gjörólíkar hug- myndir varðandi umfang ríkisút- gjaldanna og hvernig ætti að fjár- magna þau, þ.e. þessar miklu skattahækkanir, sem varð á end- anum til þess að þegar VG var að kalla eftir afstöðu flokkanna til framhaldsviðræðna var kannski bara heiðarlegast að flagga því strax að þarna sæjum við fram á veruleg vandkvæði og það væri mjög langt á milli flokkanna í þess- um efnum sér- staklega,“ bætti hann við. Til tekjuöfl- unar hefðu ýmsar skattabreytingar verið nefndar, þ.e. auðlegðar- skattur, nýtt skattþrep á hæstu tekjur, hærri fjármagnstekjuskatt- þrep, hærri virðisaukaskattur á ferðaþjónustu og aðrar skatta- hugmyndir á ferðaþjónustuna. Gjörólíkar hugmyndir um ríkisútgjöld „Það liggur alveg fyrir hver afstaða VG er þegar kem- ur að skatta- málum og það er ánægjulegt að öðrum flokkum hugnist það ekki,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, en hann telur að flokkurinn eigi að vera í forystu í næstu ríkisstjórn. Segir hann þá miklu áherslu sem nú sé á umboði ekki hafa verið síðustu áratugi og þingmeirihluta þurfi til að mynda stjórn. Sterkast í stöðunni væri að mynda ríkisstjórn A, B, C og D. Ríkisstjórn A,B,C og D sterkust í stöðunni Birgitta Jóns- dóttir, þingmað- ur Pírata, segir þær fullyrðingar að stjórnarmynd- unarviðræðurnar hafi strandað á þrengri stöðu í ríkisfjármálum vera furðulegar. Það hafi komið henni á óvart þeg- ar Katrín sleit viðræðunum en ákveðin vinna hafi verið eftir. „Ég hefði viljað sjá tillögur frá Viðreisn til dæmis um hvað þeim fannst ásættanlegt,“ segir hún. Kom á óvart að við- ræðum væri slitið „Eftir mjög góða vinnu sem yfir 30 manns hafa komið að liggur fyrir að ekki allir flokkar að minnsta kosti eru með næga sannfæringu fyrir að þetta gangi,“ sagði Katrín Jak- obsdóttir, formaður Vinstri grænna, í gær eftir að hún hafði slitið stjórnarmyndunarviðræðum. „Það hefur legið fyrir að það er mál- efnalega langt á milli flokka,“ bætti hún við þótt flokkarnir hefðu færst nær undanfarna daga. Ekki allir verið með næga sannfæringu Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar, sagði í gær að Benedikt Jó- hannesson, for- maður Við- reisnar, yrði að gefa upp ástæð- una fyrir því hvernig farið hefði í sambandi við stjórnarviðræðurnar. „Þetta eru svolítil vonbrigði og mér fannst þetta ótímabær slit,“ bætti hann við en hann hefði skilið stöðuna þannig að Benedikt hafi ekki treyst sér í að ganga áfram. Tekjuöflunarhliðin gæti orðið flókin og erfið en allir hefðu verið tilbúnir í þau mál. Benedikt ekki treyst sér í að ganga áfram „Þetta var nátt- úrulega flókið fyrir fram því þetta eru allt ólíkir flokkar og það fór því eftir málefnum hvar var mest bil á milli manna. Á endanum var bara of langt á milli manna,“ sagði Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, en það væru óneitanlega vonbrigði að stjórnarmyndunar- viðræðum flokkanna fimm hefði verið slitið. Sagði hann þrengri stöðu í ríkisfjármálum óneitanlega hafa flækt málið. Staða ríkisfjármála flækti málið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.