Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
FELST
AÐGERÐALEYSI ÞITT
Í AÐ SAMÞYKKJA
KYNFERÐISOFBELDI?
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Glæsilegar
Alsilki náttfatnaður
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
A.m.k.
20% afsláttur
af öllum vörum
Við þjófstörtum
Black Friday
Fimmtudag og föstudag
Sérverslun með kvenfatnað og gjafavöru
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 - www.facebook.com/spennandi
PEYSUÚRVAL - BUXNAÚRVAL
BLÚSSUR OG BOLIR
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Drög að reglugerð um notkun þjóð-
fána Íslendinga eru nú til umsagnar
á vef innanríkisráðuneytisins, en til-
gangurinn með setningu reglu-
gerðarinnar er að skýra nánar
ákvæði laga um þjóðfánann sem sett
voru árið 1944.
Áðurnefndum lögum var breytt á
Alþingi sl. vor og heimila þau nú
notkun fánans við markaðssetningu
á vöru og þjónustu. Er því heimilt að
nota þjóðfánann í merki eða á sölu-
varning og umbúðir sé viðkomandi
vara eða starfsemi íslensk og fán-
anum ekki gerð óvirðing. Þá gerir
lagabreytingin einnig ráð fyrir að
Neytendastofa fari með eftirlit með
notkun almenna þjóðfánans.
Skýr lagarammi um notkun
Í 3. gr. reglugerðarinnar segir að
óheimilt sé að nota þjóðfánann sem
einkamerki einstaklinga, félaga eða
stofnana eða auðkennismerki á að-
göngumiðum, samskotamerkjum
eða öðru þess háttar. Einnig er
óheimilt að nota hann í firmamerki.
Heimilt er að nota fánann í merki
eða á söluvarning, umbúðir um eða
auglýsingu á vöru eða þjónustu sé
vara eða starfsemi íslensk.
Samkvæmt reglugerðinni telst
vara íslensk ef hún er framleidd hér
á landi úr innlendu hráefni eða fram-
leidd hér á landi úr innfluttu hráefni
að hluta eða öllu leyti, enda hafi hún
hlotið nægilega aðvinnslu hérlendis.
Fram kemur í 7. gr. reglugerðar-
innar að Neytendastofa annist eftir-
lit með ákvæðum hennar. Getur
Neytendastofa því lagt bann við
merkingum og markaðssetningu
sem stríðir gegn reglugerðinni og
eftir atvikum lagt sektir á fyrirtæki
fyrir brotin. Allar ákvarðanir Neyt-
endastofu á grundvelli reglugerðar-
innar verða hins vegar kæranlegar
til áfrýjunarnefndar neytendamála,
að því er fram kemur í greinargerð.
Hægt er að senda ráðuneytinu um-
sagnir um reglugerðardrögin til 5.
desember næstkomandi.
Vilja skýra ákvæði laga um þjóðfánann
Drög að reglugerð um þjóðfána Íslendinga eru nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneytinu
Morgunblaðið/Ómar
Þjóðlegt Opið er fyrir umsagnir um
drögin til og með 5. desember.
Umhverfisstofnun hefur á síðustu
dögum borist fjöldi ábendinga um
reyk frá kísilverksmiðjunni í
Helguvík og um viðvarandi bruna-
lykt. Fulltrúar stofnunarinnar hafa
verið í sambandi við fyrirtækið til
að fá nánari upplýsingar og hafa
tvívegis á síðustu dögum farið í
fyrirvaralaust eftirlit í verksmiðj-
una til að fá betri og nákvæmari
upplýsingar og einnig til að stað-
festa umrædda lykt eða reyklosun.
Þetta kemur fram á vef Umhverfis-
stofnunar. Jafnframt kemur fram á
vefnum að fyrirtækið sé í byrjunar-
fasa og búnaður enn í prófun. Skýr-
ingar á reyknum sem sést hafi megi
rekja til þess að enn sé verið að
finna réttar stýringar á afsogi frá
ofnum og reykhreinsibúnaði.
Lyktin stafi af því að ofninn sé ekki
kominn í jafnvægi og hafi ekki náð
því hitastigi þar sem von er á að
lyktin eyðist.
Reykur og brunalykt frá Helguvík
Lögreglan á
höfuðborgar-
svæðinu hefur
ákært Pétur
Gunnlaugsson,
lögmann og út-
varpsmann á Út-
varpi Sögu, fyrir
hatursorðræðu
og útbreiðslu hat-
urs með því að
hafa í samræðum
við hlustendur stöðvarinnar látið
ummæli falla sem voru hatursfull í
garð samkynhneigðra. Pétur segir á
mbl.is í gær að hann sé mjög ósáttur
við að vera sakaður um haturs-
orðræðu sem hann hafi ekki gerst
sekur um. „Ég ber ekki ábyrgð á því
sem hlustendur segja,“ segir Pétur.
Ákærður fyrir hat-
ursorðræðu í útvarpi
Pétur
Gunnlaugsson