Morgunblaðið - 24.11.2016, Síða 12

Morgunblaðið - 24.11.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Rjóminn í ísnum Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Sýningin Ísland í heiminum,heimurinn í Íslandi opnarí Þjóðminjasafninu í dagen höfundar sýning- arinnar þær Kristín Loftsdóttir, doktor í mannfræði, og Unnur Dís Skaptadóttir einnig doktor í mannfræði eru að takast á við fólksflutninga, fjölbreytileika og fordóma á Íslandi. Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminja- safnið og einnig kemur fleira fræðifólk að henni sem hefur gert rannsóknir sem snúa að hreyf- anleika með einum eða öðrum hætti. „Með sýningunni vildum við fjalla um þverþjóðleika og sýna að Ísland er og hefur verið vett- vangur hreyfanleika fólks í gegn- um aldirnar rétt eins og önnur lönd hafa verið. Þá komum við einnig inn á fordóma og hvernig þeir hafa birst í samfélagi okkar í gegnum tíðina,“ segir Kristín. Landafræðin blekkir Atlantshafið hefur einangrað Ísland líkt og mörg önnur eyríki í þeim skilningi að landamæri hafa ekki færst til með sama hætti og þekktist á meginlandi Evrópu. Átök og styrjaldir náðu sjaldan til Íslands og fólksflutningar voru ekki jafn greiðir og almennir og á meginlandinu eða hvað? „Landfræðileg lega Íslands á sinn þátt í þeirri viðleitni okkar að telja landið hafa verið einangrað frá umheiminum í þeim skilningi að fólksflutningar hafi verið litlir sem engir. Sú var ekki raunin, því fólk fluttist milli staða og lagði á sig löng ferðalög,“ segir Kristín og bendir m.a. á flutninga Íslendinga sjálfra. „Eflaust eru flutningar Ís- lendinga til Vesturheims þekkt- asta og besta dæmið um fólks- flutninga frá Íslandi á 19. öldinni en hingað kom líka fólk til lands- ins, þó í minna mæli.“ Í Vesturfaraskrá 1870-1914 eftir Júníus Kristinsson segir að rúmlega 14 þúsund Íslendingar hafi flutt vestur um haf til að hefja nýtt líf. Þá er ótalinn sá fjöldi sem flutti frá landinu fyrir þennan tíma og eftir hann. Fólkið sem kom til Íslands Búferlaflutningar til og frá Ís- landi jukust mikið á tuttugustu öldinni og þá sérstaklega á síðasta áratug síðustu aldar „Á sýningunni tökum við dæmi um fólksflutninga fyrr á tímum og í samtímanum“ útskýrir Fjölmenningarlandið og fordómarnir Mannfræðingarnir Kristín Loftsdóttir og Unnur Dís Skaptadóttir hafa sett upp sýningu í Þjóðminjasafninu um fólksflutninga og fjölbreytileika á Íslandi í gegn- um tíðina. Þær varpa einnig ljósi á fordóma, sem þær segja ekki nýja af nálinni. Flóttamenn Þann 1. maí 1959 komu flóttamanna frá Júgóslavíu til Íslands og eru þeir á meðal fjölmargra sem leitað hafa að nýju lífi á Íslandi. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Hverju þarf að huga að áður en hundi er bætt við fjölskylduna? Hvaða mat vilja hundar ekki fá? Hvernig hundur hentar þér og hvernig er sótt um leyfi til hundahalds? Þessum spurningum og mörgum fleiri viðvíkjandi hundum fæst svarað á vefsíðunni www.hunda- samfelagid.is. Þar eru líka innlendar og erlendar hundafréttir, hundagrín, upplýsingar um hundaþjálfara og alls konar fróðleiksmolar um hunda af öllum stærðum og gerðum. Þeim sem hyggjast fá sér hund er bent á ýmis atriði sem vert er að hafa í huga. T.d. getur komið sér vel fyrir þá sem velkjast í vafa um hvort þeir eigi að fá sér rakka eða tík að vita að rakkar eru oft meiri félagsverur en tíkur sem eru heimakærari. Svo er spurning um aldur væntanlegs fjöl- skyldumeðlims. Á síðunni segir að fullorðinn hundur sé betri kostur fyr- ir marga, enda fylgi hvolpum oft og einatt meiri vinna. Að mörgu þarf að hyggja því hundahald er ekkert grín. Vefsíðan www.hundasamfelagid.is Morgunblaðið/Freyja Gylfa Selskapshundur Hundategundin Pug er upprunnin í Asíu, líklega Kína. Á hundasamfelagid.is er Pug talinn til selskapshunda. Þar liggur hundurinn grafinn Því ekki að gera sér dagamun og skella sér í bingó á miðjum degi? Bjarni fimm – B5 … bara að fylgjast vel með upplestrinum og sínu spjaldi, einfaldara getur það varla orðið. Kl. 15.30 í dag, fimmtudaginn 24. nóvember, geta ungir sem aldnir spil- að bingó í Borgarbókasafninu Árbæ sér að kostnaðarlausu. Eitt spjald á mann og hagnýtir vinningar! Allir vel- komnir. Síðan er upplagt að velja sér góða bók eða bækur úr bókakosti safnsins og hreiðra um sig í sófanum heima. Endilega … … spilið bingó í bókasafni Bingó Skemmtileg dægrastytting. Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin 26. og 27. nóvember frá 13-17 báða dagana. Boðið er upp á dag- skrá fyrir alla fjölskylduna á hátíð- inni sem fer fram í Menningarhús- unum í Kópavogi. Á útivistarsvæð- inu við húsin verður jólamarkaður þar sem gæðamatvara og handverk verða til sölu og heitar veitingar í boði. Dagskráin á laugardeginum hefst í Gerðarsafni klukkan 13 með jóla- korta- og jólaluktasmiðju en í kjöl- farið verða fjölskyldujólatónleikar í Salnum sem hefjast klukkan 14. Þá verður jólakattardagskrá í Nátt- úrufræðistofu og Bókasafni Kópa- vogs. Að lokum eða klukkan 16 verða ljós jólatrésins tendruð við lúðraþyt og söng en jólasveinar líta í heimsókn auk Villa og Sveppa sem skemmta á útisviði. Auk þess verður hinn árlegi laufa- brauðsdagur haldinn í félagsmið- stöð aldraðra í Gjábakka á laug- ardeginum frá 13-17 og listamenn í Hamraborg og Auðbrekku opna sýn- ingarsali og vinnustofur sínar. Á sunnudeginum verður jólamark- aðurinn opinn frá 13-17, Langleggur og Skjóða skemmta í Bókasafninu kl. 13.30 og jólakortasmiðja í Gerð- arsafni verður opin fyrir alla fjöl- skylduna. Aðventuhátíð í Menningarhúsunum í Kópavogi Ljós jólatrésins tendruð við lúðraþyt og söng Jólamarkaður Á útivistarsvæðinu við Menningarhúsin í Kópavogi verður jóla- markaður þar sem gæðamatvara og handverk verða til sölu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.