Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Golli Fræði Kristín og Unnur hafa sett upp sýningu um fjölmenningu og fordóma og ferðalög fólks til og frá Íslandi. Kristín, „Meðal þess sem sýningin minnir á er t.d. áhrif fólksflutn- inga til Íslands á tónlistarlíf lands- manna, þýsku konurnar sem hing- að komu og flóttafólk og hælisleitendur fyrr á tímum og í samtímanum. Ísland hefur á ólík- um tímum tekið við fólki sem dýpkar og eykur menningarlíf og fjölbreytni landsins. Á sýningunni fáum við innsýn í sögu ein- staklinga í samtímanum sem hafa flutt til eða frá Íslandi og hvað þeir tengja við veru sína í nýju landi.“ Fordómar ekki nýir af nálinni Sýning Kristínar og Unnar beinir einnig sjónum að hvernig fordómar hafa birst okkur á Ís- landi og hvernig það hefur oft ver- ið endurspeglun á fordómum ann- ars staðar frá. „Í umræðu um fjölmenningu á Íslandi og útlendinga er oft gert ráð fyrir að kynþáttafordómar hafi ekki verið til á Íslandi í fortíðinni heldur fyrst orðið til á fjölmenn- ingarlegu Íslandi samtímans,“ seg- ir Kristín og bendir um leið á að slíkar fullyrðingar séu ekki réttar. „Fordómar eru ekki nýir af nálinni og við vildum með sýning- unni opna augu fólks fyrir birting- armyndum fordóma frá fyrri tíð. Við verðum m.a. með bækur á sýningunni og fjöllum um hvernig birtingamynd fordóma birtist í þeim. Þar á meðal er t.d. bókin um negrastrákana en sú bók end- urspeglar hvernig svipaðar hug- myndir um kynþætti dreifðust víða.“ Spurð hvort margt sem talið hefur verið innan eðlilegra sam- félagsmarka áður en við sjáum í dag sem fordóma hafi verið sett fram af vanþekkingu frekar en ásetningi til beinna fordóma segir Kristín að það hafi alltaf einkennt kynþáttafordóma bæði í samtíma og fortíð. „Fordómafull umræða þarf ekki að hafa ásetning að særa eða niðurlægja. Það sem er kannski einmitt sláandi við að sjá texta úr fortíðinni er hvernig þeir setja fram sem blákaldar staðreyndir eitthvað sem við í dag mundum sjá sem mjög niðrandi og þjóðhverft. Þetta sýnir hvað kynþátta- fordómar voru í fortíðinni hluti af heimsmynd ákveðins hluta heims- ins. Í eldri textum sjáum við að al- hæfingar um hópa, flokkun fólks eftir útliti og uppruna birtast á Ís- landi rétt eins og annars staðar í Evrópu og Norður-Ameríku. Á Ís- landi voru t.d. námsbækur oft end- urútgefnar áratugum saman og lesnar af mörgum kynslóðum.“ Á sýningunni má sjá t.d. texta úr gamalli námsbók bók sem seg- ir, Eranar (Kákasusmenn) eru ljósir á hörund („hvítir menn“), með hátt enni og með mjúkt hár, er liðast í lokkum“ (Landafræði handa gagnfræðiskólum, Bjarni Sæmundsson. Gefin út 1937) og „Mongólar […] eru gulir á hörund og minni vexti en hvítir menn. […] Atorkumenn eru þeir yfirleitt ekki og sumir mjög eftirbátar annarra þjóða“ (Landafræði með myndum, Steingrímur Arason. Gefin út 1929). Kristín bendir á að fordómar í samtímanum eru margskonar og oft í dag er vísað til menningar frekar en útlits, en eldri kynþátta- hugmyndir vísuðu þó einnig sterk- lega til menningar. „Það er hollt að rifja upp þessa fortíð og þátt okkar á Íslandi í henni. Því miður er langt frá því að vera svo að við lifum í samtíma sem er laus við kynþáttafordóma og það er mik- ilvægt að undirstrika að það var aldrei neitt saklaust við þessa for- dóma í fortíðinni.“ Kristín undirstrikar að lokum að þrátt fyrir að umræða um for- dóma sé mikilvægur þáttur sýn- ingarinnar þá er það bara einn hluti. „Í rannsóknum okkar Unnar Dísar“ útskýrir Kristín, „kemur einnig fram að fólk af erlendum uppruna lítur ekki á sig sem fórn- arlömb heldur vill vera virkir þátt- takendur í íslensku samfélagi“. Sýning Af sýningu Kristínar og Unnar í Þjóðminjasafninu. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Bíó Paradís stendur fyrir heildstæðri kvikmyndafræðslu; masterklass, fyrir börn og unglinga á grunnskólastigi, kl. 10, fimmtudaginn 29. nóvember. Kaf- að verður djúpt í undraheima kvikmyndanna og kvikmyndin sem slík skilgreind. Rakin verður saga kvik- myndanna í máli og myndum, tækni og greiningaraðferðum verða gerð skil og grunnþættir kvikmyndalistarinnar útskýrðir: Hver var fyrsta kvikmynd- in? Hvað er klipping? Hvað er sviðs- mynd, hvernig þróaðist kvikmynda- taka? Hvað sjáum við í fyrstu myndum kvikmyndasögunnar og hvaða áhrif hafa þær haft á myndir nútímans? Og síðast en ekki síst: Hvernig les- um við kvikmynd? Farið verður yfir frægustu myndir kvikmyndasög- unnar og þær settar í nútímalegt samhengi, allt frá Ferðinni til tungls- ins eftir Georges Méliès til Grand Budapest Hotel eftir Wes Anderson. Allt efni er sýnt á glærum og í klippt- um myndböndum. Sýnd verða brot úr mörgum af frægustu myndum kvik- myndasögunnar, þar á meðal mynd- um eftir Alfred Hitchcock og Stanley Kubrick. Verkefnastjóri fræðslunnar er Oddný Sen kvikmyndafræðingur: oddnysen@gmail.com Kvikmyndafræðsla fyrir börn og unglinga í Bíó Paradís Fjölbreytni Kvikmyndirnar Ferðin til tunglsins eftir Georges Méliès og Grand Budapest Hotel eftir Wes Anderson verða m.a. til umfjöllunar á námskeiðinu. Undraheimar kvikmyndanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.