Morgunblaðið - 24.11.2016, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.11.2016, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Stofnanir rík-isins leiðaststundum út í að heyja baráttu fyrir tilteknum málstað sem starfs- mennirnir aðhyll- ast í stað þess að láta sér nægja að fylgja lög- unum og gæta að öðru leyti hlutleysis í hvívetna. Þetta verður gjarnan til þess að stofn- anirnar fara að hafa skoðun á því hvernig lögin eiga að vera og beita sér jafnvel fyrir þeirri skoðun sinni gagnvart löggjaf- anum. Skoðun starfsmanna stofn- unarinnar á því hvernig lögin ættu að þeirra mati að vera verður svo jafnvel til þess að þeir blindast af eigin afstöðu og túlka lögin samkvæmt skoðun sinni en ekki orðanna hljóðan. Þetta virðist í það minnsta hafa gerst í máli Samkeppniseft- irlitsins gagnvart Mjólkursam- sölunni, MS, þar sem eftirlitið hafði fundið Mjólkursamsöluna seka um brot á samkeppn- islögum, að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína, og sektað fyrirtækið um 440 millj- ónir króna. Áfrýjunarnefnd samkeppn- ismála ógilti niðurstöðu Sam- keppniseftirlitsins og felldi nið- ur þessa sekt. Viðbrögð Samkeppniseftirlitsins voru at- hyglisverð. Í stað þess að senda frá sér hlutlausa frásögn af nið- urstöðunni var fyrirsögn frétta- tilkynningar Samkeppniseft- irlitsins þessi: „Áfrýjunarnefnd samkeppnismála klofin í af- stöðu sinni til þess hvort MS hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína, en staðfestir að MS hafi framið alvarlegt brot með rangri upplýsingagjöf.“ Sem sagt ekki orð um að úrskurður Samkeppniseft- irlitsins hafi verið felldur úr gildi en áherslan lögð á að áfrýjunarnefndin hafi klofnað! Og svo sagt frá því að upp- lýsingagjöfin hafi verið ófullnægjandi, en reyndar fullyrt að hún hafi verið röng. Ekki orð um það að þessi ófull- nægjandi upplýsingagjöf MS var frekar til þess fallin að skaða málstað MS en hitt. Fréttatilkynning Sam- keppniseftirlitsins var að auki send út á tíma sem hentar vel fréttatíma sjónvarps Ríkis- útvarpsins og frétt þess var bersýnilega undir sterkum áhrifum af spuna Samkeppnis- eftirlitsins. Augljóst er, ekki síst af við- brögðum Samkeppniseftirlits- ins eftir ógildingu áfrýjunar- nefndarinnar, að Samkeppnis- eftirlitinu er með öllu ómögu- legt að fjalla um málefni Mjólkursamsölunnar af því hlutleysi sem gera verður kröfu um til stofnunar á vegum rík- isins. Einkum þegar um er að ræða stofnun sem getur með að- gerðum sínum haft veruleg áhrif á rekstur og starfsemi fyr- irtækja í landinu. Íslensk fyrirtæki eiga ekki að þurfa að búa við það að Sam- keppniseftirlitið, sem á að tryggja að eðlilegum leik- reglum sé fylgt, geti átt það til að blindast af einkasjónar- miðum, óháð lagaákvæðum, og leggja tiltekin fyrirtæki í einelti eða setja kíkinn fyrir blinda augað þegar önnur fyrirtæki eiga í hlut. Miklum völdum þarf að fylgja mikil ábyrgð og Samkeppniseft- irlitið verður að standa undir mikilli ábyrgð. Ríkisstofnanir eiga að fylgja lögum og gæta hlutleysis en ekki að fara offari og stunda spuna} Samkeppniseftirlit á villigötum Í stjórnarmynd-unarviðræð- unum sem slitnaði upp úr í gær dúkk- uðu upp yfirlýs- ingar um að staða ríkissjóðs væri mun lakari, en látið hefði verið að liggja. Benedikt Jóhannesson, for- maður Viðreisnar, sagði í gær að það munaði „einhverjum tugum milljarða“ og bætti við: „Menn hafa talað býsna fjálg- lega um hvað staða ríkissjóðs væri góð en svo kemur í ljós að hún er þrengri en menn ætluðu“. Það er merkilegt að heyra Benedikt taka með þessum hætti undir málflutning Katr- ínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna. Bjarni Bene- diktsson, fjár- málaráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins, svarar þessu mjög afdrátt- arlaust í Morgunblaðinu í dag. Staða ríkissjóðs sé jafnvel betri en áður var talið og þessi málflutningur, sem í besta falli sé fáfræði, þjóni aðeins þeim tilgangi að réttlæta skatta- hækkanir: „Þetta hefur ekkert með stöðu ríkisfjármálanna að gera. Þetta hefur allt með það að gera að flokkarnir gáfu ófjármögnuð kosningaloforð í aðdraganda kosninga og það er að renna upp fyrir þeim núna.“ Undarleg leið til að réttlæta skatta- hækkanir} Í besta falli fáfræði P istlahöfundur var eitt sinn staddur í Smáralindinni sem mér er reyndar meinilla við. Fer yfirleitt ekki í þessar verslunarmiðstöðvar nema brýna nauðsyn beri til. Þó ekki vegna þess að „töffið“ og talsmenn þess hafi ákveðið að ekki sé fínt að vera í verslunarmiðstöðvum. Miklu heppilegra sé að leita að verslunum undir berum himni í ís- lensku veðurblíðunni samkvæmt „töffinu.“ Smáralindin er sjálfsagt ekki verri en aðrar verslunarmiðstöðvar en er einfaldlega sögu- svið þeirrar uppákomu sem ég ætla hér að deila með ykkur. Ástæða þess að ég forðast að fara í verslunarmiðstöðvar að erindalausu er sú að þegar á hólminn er komið líður manni iðulega eins og síld í tunnu. Einhverra hluta vegna þykir mér mannþröng og streita ekki eftirsóknarverð fyrirbæri. Í raun leiðist mér slík staða alveg óskaplega og reyni yfirleitt að hraða mér út að er- indi loknu í verslunarmiðstöðvum. Í einni slíkri heim- sókn minni stóð góðleg kona í vegi fyrir mér á leið minni út úr Smáralindinni. Ég var þá hinn ánægðasti með að hafa lokið erindi mínu og ætlaði að sigla út úr mannhaf- inu. Hún umlaði eitthvað um samhjálp og einhver börn úti í heimi. Ég var satt best að segja ekki í neinu stuði til að kynna mér það sem hún var að kynna. Hafði ég meiri áhuga á því að koma mér út og um borð í bifreið. Þar sem ekki varð algerlega hjá því komist að taka eft- ir konunni, þá reif ég af henni einhvern snepil sem hún veifaði framan í mig af áfergju. Ég gaf mér að þar væri um einhvers konar kynningarbækl- ing um aldeilis ljómandi gott hjálpar- og góð- gerðarstarf að ræða. Á þessum tímapunkti taldi ég að það væri yfir meðallagi snjallt að taka með mér bækl- inginn og kíkja á hann. Þá þyrfti ég ekki að hlusta lengi á konuna halda lærða ræðu um ágæti sitt og félaga sinna en mér tækist þó að friða samviskuna með því að kíkja á bækling- inn við gott tækifæri. „Ég kíki á þetta,“ sagði pistlahöfundur um leið og ég strunsaði í áttina að næsta útgangi. Nokkrum sæmilega hröðum skrefum síðar heyrist kallað á eftir mér: ,,Fyrirgefðu. Þetta er happdrættismiði. Þú þarft að borga fyrir hann,“ sagði konan, að því er virtist fremur óttaslegin, enda líklega ekki vön því að stæði- legir menn hrifsi af henni happdrættismiða og taki síðan strikið að næsta neyðarútgangi. Hvaða lærdóm getum við dregið af þessari dæmisögu, lesendur góðir? Er lærdómurinn ef til vill sá að skyn- samlegt sé að hlusta eftir því hvað fólk segir við mann? Er mögulega hægt að taka betur mið af umhverfi sínu en ég gerði í þessu tilfelli? Ég held að svarið við þessum tveimur spurningum sé nei og tel að lærdómurinn af þessari vandræðalegu uppákomu sé sá að maður eigi helst ekki að fara í versl- unarmiðstöðvar. Ég kýs að halda mig við þann málflutn- ing. kris@mbl.is Kristján Jónsson Pistill Samhjálp í síldartunnu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Erla Rún Guðmundsdóttir erlarun@mbl.is Svartur föstudagur er til-tölulega nýr af nálinni hér álandi en bæði dagurinn eðahugtakið eiga sér öllu lengri sögu í Bandaríkjunum. Að sögn Kristins Schram, lektors í þjóðfræði við Háskóla Íslands, má rekja hug- takið til austurstrandar Bandaríkj- anna á sjöunda áratugnum. Kristinn telur líklegt að kaupmenn hafi komið deginum á hér á landi en landsmenn hafa þó sýnt fyrirbærinu mikinn áhuga. Þjóðsögur Kristinn segir uppruna nafnsins eða hugtaksins Black Friday vera áhugaverðan. „Það er gaman að velta fyrir sér uppruna þessa dags í Banda- ríkjunum. Það er heilmikil þjóðfræði í kringum það og margar þjóðsögur.“ Kristinn nefnir tvær sögur sem dæmi en segir að þeim fari fjölgandi frá ári til árs. „Sú þjóðsaga var á kreiki að þessi dagur ætti rætur sínar að rekja til þess að þrælasalar hefðu selt þrælana á afslætti til plantekru- eigenda daginn eftir þakkargjörð- arhátíðina.“ Að sögn Kristins er hin sagan öllu þekktari. „Önnur svona nútímaþjóðsaga segir að þetta sé vegna þess að á þessum tíma komist kaupmenn loksins úr rauðu í svart í bókhaldinu,“ en í bókhaldstali vísa rauðar tölur til rekstrartaps en svart- ar til hagnaðar. Kristinn segir báðar sögurnar uppspuna því samkvæmt rann- sóknum ýmissa þjóðfræðinga megi rekja hugtakið til Fíladelfíu í Banda- ríkjunum á sjöunda áratugnum. „Lögreglumenn notuðu þetta hugtak til að lýsa fyrsta deginum eftir þakkargjörðarhátíðina. Þá munu svo margir hafa hringt sig inn veika og notað tækifærið til þess að fara í verslanir. Þetta er dagurinn sem markar aðventuna hjá kaupmönnum, en hugtakið á að hafa lýst ákveðnum umferðarvanda og öðru sem tengdist þessum mikla og ófyrirséða fólks- fjölda á götum borgarinnar.“ Illur fyrirboði? Kristinn segir gaman að velta fyrir sér viðskeytinu svartur í sam- hengi við tilboðsdaginn. „Þetta við- skeyti hefur vissulega haft ýmsa merkingu í gegnum tíðina en yfirleitt hefur það táknað slæma fyrirboða eða verið merki um hönd hins illa, jafnvel kölska sjálfan.“ Eftir að svarti föstudagurinn gekk yfir í fyrra kvörtuðu margir yfir því að enska heitið Black Friday væri notað á Íslandi. Spurður um hvort hann teldi merkingu viðskeytisins svartur vera ástæðuna sagði Kristinn það auðvitað bara vera getgátur. „Það kann svo sem að vera að þeir séu að forðast svona þekkta neikvæða merkingarauka við hinn svarta lit.“ „Föstudagur til fjár“ Hver sem uppruni hugtaksins er er ljóst að um stóran dag er að ræða í verslun í Bandaríkjunum og víðar. Hér á landi eru sífellt fleiri verslanir þátttakendur í svarta föstudeginum, eða „föstudegi til fjár“ eins og rekstr- araðilar í miðborg Reykjavíkur nefndu fyrirbærið í fyrra. Kristinn telur líklegt að áhuga Íslend- inga á deginum megi rekja til neyslugleði lands- manna. „Hún end- urspeglar kannski þessa rísandi sjálfs- mynd Íslendinga sem neysluglaðs samfélags. Kannski er eitthvað að fjara undan þessari mynd af okkur sem sjálfbærri, sparneytinni þjóð sem við vildum hverfa til stuttu eftir hrun.“ Hvað gerir þennan föstudag svartan? Morgunblaðið/Júlíus Jólaverslun Svartur föstudagur er mikill tilboðsdagur en hann markar einnig upphafið að jólaverslunartímabilinu í Bandaríkjunum. Fjölmargar íslenskar verslanir halda svartan föstudag hátíð- legan í ár. ELKO er ein þeirra, en þar er „svartur fössari“ haldinn í annað sinn. „Við byrjum með tilboð á mánudeginum sem gilda meðan birgðir endast og svo bætist alltaf við tilboð dag- lega. Svo endar þetta með bestu tilboðunum á föstudegi,“ segir Berglind Ósk Ólafsdóttir, markaðsstjóri ELKO. Kringlan tekur einnig þátt í ár, en þar verða þó nokkrar verslanir með tilheyrandi tilboð. Sigurjón Örn Þórisson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, segir fleiri verslanir taka þátt í ár en í fyrra. „Ég finn að áhuginn er held- ur að vaxa. Það kæmi mér ekki á óvart að þetta yrði almennt séð hluti af íslensku verslunar- mynstri.“ Fleiri með tilboð í ár KOMIÐ TIL AÐ VERA? Kristinn Schram

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.