Morgunblaðið - 24.11.2016, Page 39

Morgunblaðið - 24.11.2016, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Einar er einstæðingur og er alltaf einn. Hann býr einn, borðar einn, hjólar einn í vinnuna og hann er líka einn á jólunum. Það er hins vegar allt í lagi því hann getur alltaf fundið upp á einhverju skemmtilegu,“ segir Bergur Þór Ingólfsson, höfundur, leikstjóri og leikari í einleiknum Jólaflækja – Sagan af manninum sem fékk sjálfan sig í jólagjöf. Leikritið sem er einkum ætlað börnum er frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins næstkomandi laugardag, 26. nóvember, en í sýn- ingunni fylgjast áhorfendur með klaufabárðinum Einari sem gengur heldur brösuglega að undirbúa jólin. Þær fjölmörgu barna- og fjöl- skyldusýningar sem Bergur Þór hefur sett upp, Horn á höfði, Galdrakarlinn í Oz, Mary Poppins, Billy Elliot, Hamlet litla og fleiri hafa allar notið mikilla vinsælda en eftir stórar sýningar undanfarið, svo sem Bláa hnöttinn, segir Bergur Þór það vera fína tilbreytingu að setjast niður í næði og skapa litla sýningu. „Ég gekk í hálfgerðan barndóm við að vinna þessa sýningu þar sem ég var framan af æfingaferlinu bara einn með sjálfum mér að skoða hluti út frá ýmsum sjónarhornum. Þetta var svona eins og ég væri aftur orð- inn 11 ára heima að dunda mér með dótið mitt eða úti í hrauni í Grinda- vík að búa til eitthvað skemmtilegt. Á síðari hluta ferilsins komu svo leikmyndahönnuður, tónlistarstjóri og ljósahönnuður til sögunnar og þau gripu bolta sem ég hafði hent upp og hentu upp öðrum og úr varð mjög gott samspil. Ég leitaði líka svolítið aftur til for- tíðar eftir áhrifavöldum en sýningin er að vissu leyti eins konar virðing- arvottur við grínmeistara þöglu kvikmyndanna svo sem Charlie Chaplin, Harold Lloyd og Buster Keaton en Jólaflækja er leikin án orða.“ Þá segist Bergur Þór líka vera mikill aðdáandi Pixar og einfaldra stuttmynda teiknimyndafyrirtæk- isins. „Hvort sem það eru bara fugl- ar að setjast á símavír eða lampinn sem labbar inn í upphafi Pixar- myndanna og hoppar ofan á I-inu, að þá er það sú fagurfræði sem hef- ur alltaf heillað mig; hvernig hlut- irnir leiða af hver öðrum og búa til einfalda atburðarás.“ Reynir á líkamlega Aðalpersóna leikritsins, Einar, þarf í þessu verki að finna út úr því hvernig maður fer að því að halda jólin einn uppi á háalofti heima hjá sér en það er ekki nóg með að hann sé einn uppi á háalofti heldur festist hann í jólaskrautinu. „Alveg frá því að ég var í leiklist- arskólanum hef ég haft ógurlega gaman af svona vinnu; að prófa hluti og athuga hvað ég geti lent í miklum vandræðum með þá, hvort sem það er bara eitt rafmagnsrör eða stór eldavél og kanna hverjir möguleikar einstakra hluta eru í spuna. Það er svolítið kjarninn í mér sjálfum. Sýningin reynir talsvert á Berg Þór líkamlega þar sem hann er að klifra og detta og hann grínast með að þetta sé að verða síðasti fyrir hans að standa í slíkum átökum þar sem hann sé að verða 48 ára og því ekki úr vegi að nýta kraftana í slíkt meðan hægt er. Er boðskapur í verkinu? „Leikritið fjallar svolítið um að vera sjálfum sér nægur, njóta eigin félagsskapar og gefast ekki upp. Þetta er óður til leiks og lífsgleð- innar þótt að vísu hafi einhver sagt um daginn að hann skildi alveg að það gæti enginn búið með Einari.“ Jól á háaloftinu  Barnaleikritið Jólaflækja á Litla sviði Borgarleikhússins  Bergur Þór Ingólfsson í hlutverki þöguls klaufabárðar Ljósmynd/Jorri Lífsgleði Jólaflækja er eins konar óður til lífsgleðinnar. einni viku í október árið 2002. Les- andinn fylgist með Herði Grímssyni lögreglumanni, sem kemur fyrir í öðrum bókum höfundar, en er nú fyrr á ferðinni og blautur á bak við eyrun. Hann á sér drauma og langar til þess að vera maður með mönnum. Morð á alþingismanni skammt frá vinnustaðnum opnar dyr, en ekki er Aldrei að dæma bók eftirkápunni,“ segir Bíbí viðHörð Grímsson lögreglu-mann í glæpasögunni Svartagaldri eftir Stefán Mána. Vel að orði komist og á einkar vel við hvað þessa bók varðar. Svört kápa hef- ur verið eitt af einkennum nokk- urra bóka Stef- áns Mána og því kemur hún ekki á óvart sem slík en við fyrstu sýn lík- ist Svartigaldur biblíunni í útliti og það er eins og að snúa hlutunum á hvolf, því efnið er nær djöflinum en nokkru sinni guðs orði. Kross á hvolfi á kápunni undirstrikar það rækilega. Sagan gerist einkum í Reykjavík á allt sem sýnist og mikið á eftir að ganga á áður en yfir lýkur. Frásögnin er að mörgu leyti skemmtileg og spennandi, sér- staklega undir lokin. Stefán Máni kann þá list að segja vel frá og sam- tölin eru áreynslulaus og eðlileg. Sagan er fyrst og fremst um lög- reglumanninn Hörð, hvernig hann hagar sér í vinnunni og í frítímanum. Það eru oft á tíðum kostulegar lýs- ingar enda passar maðurinn engan veginn í hin ýmsu hlutverk og bregst þar af leiðandi oft á tíðum undarlega við áreitinu. Fléttan er vel úthugsuð og lesand- inn fær innsýn í þankagang stjórn- leysingja, sem aðhyllast djöflatrú. Sláturhús 5 eftir Kurt Vonnegut er nefnt til sögunnar, eflaust til þess að styrkja málstaðinn, en að sama skapi er skotið á góða fólkið, við- kvæmu ljóðskáldin, lýrísku smá- sagnahöfundana og mærðarlegu módernistana, „sem kjökra eins og sveitaprestar og skrifa stórkostlegar bækur sem enginn nennir að lesa en allir þykjast skilja“. Sagan byrjar vel en heldur fer að kárna gamanið þegar kuklið og sál- farirnar ná yfirhöndinni. Hugs- anlega höfðar þetta til þeirra sem trúa á spíritisma, en virkar frekar óraunverulegt hjá öðrum. Morgunblaðið/Ófeigur Höfundurinn „Frásögnin er að mörgu leyti skemmtileg og spenn- andi, sérstaklega undir lokin,“ segir um sögu Stefáns Mána. Glæpasaga Svartigaldur bbbmn Eftir Stefán Mána. Sögur útgáfa 2016. Innbundin, 373 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Kukl og sálnaflakk stjórnleysingja MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fim 24/11 kl. 20:00 121.s Lau 3/12 kl. 20:00 127.s Fim 15/12 kl. 20:00 133. s Fös 25/11 kl. 20:00 122.s Sun 4/12 kl. 20:00 128. s Fös 16/12 kl. 20:00 134. s Lau 26/11 kl. 20:00 123.s Fim 8/12 kl. 20:00 129. s Lau 17/12 kl. 20:00 135. s Sun 27/11 kl. 20:00 124.s Fös 9/12 kl. 20:00 130. s Sun 18/12 kl. 20:00 136. s Fim 1/12 kl. 20:00 125.s Lau 10/12 kl. 20:00 131. s Mán 26/12 kl. 20:00 137. s Fös 2/12 kl. 20:00 126.s Sun 11/12 kl. 20:00 132. s Fös 6/1 kl. 20:00 138. s Gleðisprengjan heldur áfram! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Lau 26/11 kl. 13:00 16.sýn Sun 4/12 kl. 13:00 19.sýn Lau 17/12 kl. 13:00 22.sýn Sun 27/11 kl. 13:00 17.sýn Lau 10/12 kl. 13:00 20.sýn Sun 18/12 kl. 13:00 23.sýn Lau 3/12 kl. 13:00 18.sýn Sun 11/12 kl. 13:00 21.sýn Mán 26/12 kl. 13:00 24.sýn Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Njála (Stóra sviðið) Mið 7/12 kl. 20:00 Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Síðustu sýningar. Jólaflækja (Litla svið) Lau 26/11 kl. 13:00 Frums Lau 3/12 kl. 13:00 3. sýn Sun 11/12 kl. 13:00 6. sýn Sun 27/11 kl. 13:00 2. sýn Sun 4/12 kl. 13:00 4. sýn Sun 27/11 kl. 15:00 aukas. Lau 10/12 kl. 13:00 5. sýn Bráðfyndin jólasýning fyrir börn Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fim 24/11 kl. 20:00 aukas. Sun 27/11 kl. 20:00 13.sýn Sun 4/12 kl. 20:00 aukas. Fös 25/11 kl. 20:00 11.sýn Mið 30/11 kl. 20:00 aukas. Þri 6/12 kl. 20:00 15.sýn Lau 26/11 kl. 20:00 12.sýn Lau 3/12 kl. 20:00 14.sýn Mið 7/12 kl. 20:00 16. sýn Aðeins þessar sýningar. Ósóttir miðar seldir samdægurs. Jesús litli (Litli svið ) Fim 1/12 kl. 20:00 2. sýn Fös 9/12 kl. 20:00 5. sýn Fim 15/12 kl. 20:00 7. sýn Fös 2/12 kl. 20:00 3. sýn Lau 10/12 kl. 20:00 aukas. Lau 17/12 kl. 20:00 8. sýn Fim 8/12 kl. 20:00 4. sýn Sun 11/12 kl. 20:00 6. sýn Sun 18/12 kl. 20:00 9. sýn Margverðlaunuð jólasýning Salka Valka (Stóra svið) Fös 30/12 kl. 20:00 Frums. Fim 19/1 kl. 20:00 6. sýn Mið 1/2 kl. 20:00 11. sýn Fim 5/1 kl. 20:00 2. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 7. sýn Fim 2/2 kl. 20:00 12. sýn Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Þri 24/1 kl. 20:00 8. sýn Sun 5/2 kl. 20:00 13. sýn Þri 17/1 kl. 20:00 4. sýn Mið 25/1 kl. 20:00 9. sýn Mið 18/1 kl. 20:00 5. sýn Fös 27/1 kl. 20:00 10.sýn Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross Da Da Dans (Nýja svið ) Fim 24/11 kl. 20:00 4.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 5.sýn Íslenski dansflokkurinn Óður og Flexa halda afmæli (Nýja sviðið) Sun 27/11 kl. 13:00 Sun 4/12 kl. 13:00 Sun 11/12 kl. 13:00 5 stjörnu barnaverk frá Íslenska dansflokknum Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Djöflaeyjan (Stóra sviðið) Lau 26/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 2/12 kl. 19:30 28.sýn Lau 10/12 kl. 19:30 30.sýn Sun 27/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 3/12 kl. 19:30 29.sýn Fös 30/12 kl. 19:30 32.sýn Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur! Maður sem heitir Ove (Kassinn) Fös 25/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 3/12 kl. 19:30 30.sýn Sun 11/12 kl. 19:30 33.sýn Lau 26/11 kl. 19:30 28.sýn Sun 4/12 kl. 19:30 31.sýn Sun 27/11 kl. 19:30 29.sýn Lau 10/12 kl. 19:30 32.sýn Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Horft frá brúnni (Stóra sviðið) Fös 25/11 kl. 19:30 13.sýn Sun 4/12 kl. 19:30 Lokasýn Sun 11/12 kl. 19:30 aukasýn Sýningum lýkur í desember Óþelló (Stóra sviðið) Fim 22/12 kl. 19:30 Frums Fös 13/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 2/2 kl. 19:30 8.sýn Mán 26/12 kl. 19:30 Hátíðarsýning Lau 14/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn Fim 29/12 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 7.sýn Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare! Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 26/11 kl. 11:00 Sun 4/12 kl. 13:00 Lau 17/12 kl. 11:00 Lau 26/11 kl. 13:00 Sun 4/12 kl. 14:30 Lau 17/12 kl. 13:00 Sun 27/11 kl. 11:00 Lau 10/12 kl. 11:00 Lau 17/12 kl. 14:30 Sun 27/11 kl. 13:00 Lau 10/12 kl. 13:00 Sun 18/12 kl. 11:00 Lau 3/12 kl. 11:00 Lau 10/12 kl. 14:30 Sun 18/12 kl. 13:00 Lau 3/12 kl. 13:00 Sun 11/12 kl. 11:00 Sun 18/12 kl. 14:30 Lau 3/12 kl. 14:30 Sun 11/12 kl. 13:00 Sun 4/12 kl. 11:00 Sun 11/12 kl. 14:30 Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð. Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 22/1 kl. 13:00 Frums Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 29/1 kl. 13:00 2.sýn Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Lofthræddi örninn Örvar (Kúlan) Fim 24/11 kl. 10:00 Sandgerði Lau 26/11 kl. 15:00 Mán 28/11 kl. 14:30 Akranes Lau 26/11 kl. 13:00 Mán 28/11 kl. 13:00 Akranes Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki. Yfir til þín - Spaugstofan (Stóra sviðið) Fim 24/11 kl. 19:30 34.sýn Fim 1/12 kl. 19:30 35.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Íslenski fíllinn (Brúðuloftið) Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00 Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00 Sýningum lýkur í nóvember! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Fös 25/11 kl. 20:00 Mið 30/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.