Morgunblaðið - 24.11.2016, Page 41

Morgunblaðið - 24.11.2016, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Tikynnt hefur verið hvaða íslensku tónlistarmenn koma fram á næstu Eurosonic Noorderslag-tónlist- arhátíð í Hollandi í janúar næst- komandi. Hljómsveitirnar og lista- mennirnir ADHD, Glowie, Máni Orrason, East Of My Youth, Sturla Atlas og Soffía Björg hafa verið valin til að koma fram en Eurosonic Noorderslag hátíðin er sérstaklega hugsuð fyrir starfsfólk í tónlistar- iðnaðinum; kynningarvettvangur fyrir unga og efnilega listamenn sem taldir eru eiga möguleika á að ná eyrum hlustenda í fleiri löndum en heimalandinu. ADHD, Glowie og fleiri til Hollands Morgunblaðið/Eggert Vinsæll Sturla Atlas kemur fram á tón- listarhátíðinni í Groningen í Hollandi. Út er komið nýtt hefti Skírnis, haust- hefti 2016. 190. árgangur. Kápu heftisins prýðir málverk eftir Hlað- gerði Írisi Björnsdóttur en Þórdís Elva Þorvaldsdóttir skrifar um list hennar. Meðal annars efnis má nefna lokagrein Svans Kristjáns- sonar um forsetaferil Ólafs Ragnars Grímssonar, úttekt Vals Ingimund- arsonar á uppgangi fasistaflokka í Evrópu og skrif Gunnþórunnar Guð- mundsdóttur um sjálfsævisögur. Ingi Björn Guðnason skrifar um sveitasögur Jóns Kalmans Stef- ánssonar, Bryndís Björgvinsdóttir um álfa og þjóðtrú, Finnur Dellsén um gagnrýna og vísindalega hugsun og Auður Hauksdóttir hugleiðir hvort Danir hafi bjargað íslenskri tungu. Þá eru birt ný ljóð eftir Hall- grím Helgason og Jón Sigurðsson fjallar um tveggja alda afmæli Hins íslenska bókmenntafélags. Fjölbreytt efni í nýjum Skírni Morgunblaðið/Ómar Margbreytilegt Bryndís Björgvins- dóttir þjóðfræðingur skrifar um þjóðtrú. Steinunn Arn- björg Stefáns- dóttir fremur skáldskapar- uppákomu með gjörningslegu ívafi í Mengi við Óðinsgötu í kvöld kl. 21, í tilefni út- komu ljóðabók- arinnar USS. Steinunn Arn- björn hefur víða komið við í listinni. Hún er barokksellóleikari, hefur numið barrokkdans og tekið þátt í dans- og tónlistargjörningum, meðal annars með Önnu Richardsdóttur, en USS er fyrsta ljóðabók hennar. Skáldkonuleikar Steinunnar í Mengi Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Þetta er heimildamynd um rúntinn eins og hann var á þessum tíma, árið 1999, og í myndinni blasir allt annað Ísland við en við þekkjum í dag. Ís- land fyrir hrunið og allan ferða- mannastrauminn,“ segir Steingrímur Dúi Másson en heimildamynd hans, Rúnturinn I, var frumsýnd í gær og fer í almennar sýningar í Bíó Paradís í dag. Myndin er sjálfstæð heimildamynd í fullri lengd og jafnframt fyrsti hluti þríleiks. Steingrímur Dúi ferðaðist um landið fyrir um 17 árum og heim- sótti 10 stærri og smærri þétt- býliskjarna á Íslandi þar sem það þekkist að rúnta, þótt ekki væri nema eftir örlítilli og stuttri götu, á föstu- dags- og laugardagskvöldum. Fyrst og fremst fjallar myndin þó um menn- ingu ungs fólks á rúntinum sumarið 1999 og í þessum fyrsta hluta eru Akranes, Keflavík og Blönduós við- komustaðirnir. „Verkefnið lá í dvala um tíma vegna fjárskorts, en svo dustaði ég rykið af því, og notaði Rúntinn til að ljúka mastersverkefni úr Háskólanum á Bifröst í menningarstjórnun og byrj- aði þá að klippa myndina sem nú er verið að frumsýna. Við höfðum úr ákaflega miklu efni að vinna úr og það var nokkur áskorun að velja saman í um hálftíma bút frá hverjum stað en ég er mjög ánægður með útkomuna.“ Eftir að tökum lauk fékkst ekki fjármagn til að ljúka við að klippa myndina svo verkið lagðist í dvala. „Eftir því sem á leið fór ég að hugsa um að þessi heimild væri mjög dýr- mæt og ég yrði að skila henni frá mér. Ég lauk mastersnámi í menningar- stjórnun frá Háskólanum á Bifröst þar sem lokaverkefnið fjallaði um Rúntinn og byrjaði á sama tíma að klippa myndina og hér er hún komin, þessi fyrsti hluti. Það var mikil áskor- un að vinna allt þetta efni enda gríð- arlega mikið magn sem við stóðum uppi með og erfitt að velja og hafna en það styrkti myndina að klippa hana svona mikið.“ Myndin var öll tekin upp að sumarlagi en Steingrímur Dúi, Ísold Uggadóttir aðstoðarleikstjóri og Bjarki Kaikumo hljóðmaður leigðu húsbíl og ferðuðust þannig milli staða vítt og breitt á landinu. Þeir bæir sem bíða næstu tveggja mynda eru Ak- ureyri, Egilsstaðir, Hólmavík, Höfn í Hornafirði, Ísafjörður, Reykjavík og Vestmannaeyjar. Hver rúntur með sína sérstöðu Framleiðandi myndarinnar er Friðrik Þór Friðriksson en Stein- grímur Dúi segist hafa fengið frjálsar hendur sem hafi verið mikill kostur. Þá hafi hópurinn verið skemmtilegur og mikilvægt að geta nálgast þetta viðfangsefni í léttri og góðri stemn- ingu. „Í myndinni eru tveir „leikarar“, svona innan gæsalappa, Viðar H. Gíslason tónlistarmaður og Ólafur Jónsson arkitektanemi, en við lögðum upp með að þeir væru ákveðnar stereótýpur sem lifðu og hrærðust í bílamenningu, héngu í sjoppum, lifðu á ruslfæði og hefðu auðvitað gríð- arlega mikinn áhuga á rúntinum. Þótt þeir hafi vissulega sett sig í smá stellingar enduðu þeir á því að vera bara mestmegnis þeir sjálfir og þeir náðu mjög góðum tengslum við fólkið á rúntinum,“ segir Steingrímur Dúi og bætir við að í myndinni sé ekki verið að gera grín að neinum og eng- inn komi illa út. Þvert á móti sé þetta mynd sem skilji eftir sig góðar tilfinn- ingar. Varstu sjálfur metnaðarfullur rúntari á yngri árum? „Ég var á rúntinum sem unglingur, líkt og örugglega flestir sem fæddir eru fyrir 1980 og eitthvað síðar. Ég get ekki sagt að ég hafi gengið langt í þessu og sýnt mikinn metnað en ég bjó í Reykjavík og þar var það Laugavegurinn, framhjá Ingólfs- torgi, út Hafnarstrætið og svo upp Hverfisgötu. Rúnturinn sem akstursleið er hins vegar bara tæknilegt fyrirbæri sem tilheyrir þeirri jaðarmenningu sem við erum fyrst og fremst að fjalla um og við leyfum atburðarásinni að eiga sér náttúrulega framgöngu og fylgj- um með sem fremur hlutlausir áhorf- endur eins og gert er í „observati- onal“ heimildarmyndum.“ Að uppgötva hvernig hver staður hafði sína sérstöðu í rúntmenning- unni kom Steingrími Dúa skemmti- lega á óvart og í þessum fyrsta hluta þríleiksins hafa bæirnir allir afar ólíkt yfirbragð. „Við vorum alltaf að uppgötva og kynnast einhverju nýju á hverjum stað sem við komum á, það var eins og nýr lítill heimur opnaðist fyrir okkur í hvert sinn sem við komum á nýjan stað,“ segir kvikmyndagerð- armaðurinn og bætir við að þótt myndin sé ekki stórmynd heldur lítil heimildamynd, unnin við þröngan fjárhag, sé frásögnin einlæg og heim- ildin einstök fyrir þennan tíma. Íslenski rúnturinn eins og hann var fyrir 17 árum  Heimildamyndin Rúnturinn I eftir Steingrím Dúa Másson frumsýnd Morgunblaðið/Golli Einstök heimild Ný heimildamynd Steingríms Dúa Mássonar gerir rúntmenningu Íslendinga sumarið 1999 skil. LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar FANTASTIC BEASTS 3D 6, 9 FLÖSKUSKEYTI FRÁ P 10.10 HACKSAW RIDGE 8, 10.45 TRÖLL 2D ÍSL.TAL 6 BRIDGET JONES’S BABY 5.30 Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.