Morgunblaðið - 29.11.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Ættfræðiþjónustan ORG hefur tekið
saman upplýsingar sem sýna skyld-
leika Íslendinga við Barack Obama,
forseta Bandaríkjanna. Tekið er
dæmi af forseta Íslands, Guðna Th.
Jóhannessyni, sem er tengdur
Obama í 32. og 24. lið. Lykillinn að
ættrakningunni er Gottskálk
„grimmi“ Nikulásson Hólabiskup og
eiga flestir Íslendingar að geta tengt
sig við Bandaríkjaforseta í gegnum
hann.
Tenging Íslendinga við Donald
Trump, sem kjörinn hefur verið for-
seti Bandaríkjanna, vakti athygli og
kom meðal annars fram í fjölda fyr-
irspurna til Ættfræðiþjónustunnar.
Oddur F. Helgason æviskrárritari
og starfsmenn Ættfræðiþjónustunn-
ar telja að heimildirnar fyrir teng-
ingu eða skyldleika Íslendinga við
Obama séu áreiðanlegri. Ættrakn-
ingin er unnin upp úr upplýsingum
frá ýmsum aðilum og telur Oddur að
ekki sé völ á betri upplýsingum.
Obama er af skoskum ættum en
tengist Íslendingum í gegnum Eng-
landskonung og höfðingjaættir í
Frakklandi og Flæmingjalandi.
Samkvæmisleikur
Íslendingar geta notað þær upp-
lýsingar sem fram koma á meðfylgj-
andi grafi til að tengja sig við
Obama. Með því að rekja ættir sínar
frá hinum norska Hólabiskupi, Gott-
skálki Nikulássyni, f. 1469, og skipta
út ættrakningu Guðna Th. má sjá
skyldleikann við Bandaríkjaforseta.
Þetta getur orðið ágætis samkvæm-
isleikur en Oddur segir að áhugafólk
sé einnig velkomið í kaffi til sín í
Ættfræðiþjónustuna í Skeljanesi.
Hann vinni alla daga. helgi@mbl.is
Geta tengt sig við
Bandaríkjaforseta
Skotar
Bandaríkjamenn
Baldvin V, greifi af Flanders
Ættir forseta
Adéle af Frakklandi
Róbert I, greifi af Flæmingjalandi
Adela af Flæmingjalandi
Ingigerður Knútsdóttir af Danmörku
Bengt Snivil
Magnus Minnesköld
Kristína Hafrid Magnúsdóttir
Frú Sigtryggsdóttir, eigink. Knúts
Magnús Knútsson
Knútur Magnússon
Birgitta Knútsdóttir
Hákon Jónsson Sudrheim í Noregi
Frú Hákonardóttir
Rögnvaldur Keniksson
Nikulás Rögnvaldsson
Gottskálk „grimmi“ Nikulásson
Kristín Gottskálksdóttir
Ólafur Jónsson
Teitur Sighvatsson
Guðrún Ólafsdóttir
Helga Teitsdóttir
Jórunn Hannesdóttir
Steinunn Sigurðardóttir
Árni Gíslason
Teitur Halldórsson
Bogi Sigurðsson
Steinólfur Árnason
Bergur Teitsson
Þórdís Bogadóttir
Þóra Steinólfsdóttir
Signý Bergsdóttir
Margrét Ólafsdóttir Thorlacius
Margrét Thorlacius
Guðni Th. Jóhannesson
Mathilda af Flæmingjalandi
Henry I Englandskonungur
Eiginkona Fergus af Galloway
Bethóc MacFergus af Galloway
Thomas I FitzRoy af Moray
Thomas II af Moray
Thomas Randolph
Thomas Randolph
Bernard Randolph
Edmund Randolph
Mercy Fleming
Charles Fleming
Ann Martha Payne
George Payne
Jesse Payne
Francis Payne
Benjamin Payne
Charles Payne
Rolla Payne
Madelyn Lee Dunham
Stanley Ann Dunham
Barack Obama
Forsetinn og Obama af 32. og 24. lið
Lyfjastofnun hefur þurft að hafa af-
skipti af sölu dýralyfja í gæludýra-
verslunum, en sala og dreifing slíkra
lyfja fellur undir lyfjalög og er ein-
ungis heimil þeim
sem uppfylla til-
tekin skilyrði og
hafa leyfi til lyf-
sölu frá stofnun-
inni. Sigríður
Ólafsdóttir, sviðs-
stjóri eftirlits-
sviðs Lyfjastofn-
unar, segir að
engin gæludýra-
verslun hafi slíkt
leyfi og að stofn-
uninni berist ábendingar um slíka
sölu af og til. Hún segist telja að
þetta athæfi spretti fremur af vangá
en einbeittum brotavilja, en það að
selja lyf án þess að hafa til þess
heimild felur í sér brot gegn ákvæð-
um lyfjalaga.
„Við fengum ábendingu um dag-
inn um að gæludýraverslun væri að
selja sýkla- og sveppalyf í fiskabúr.
Við leggjum áherslu á að dýralækn-
ar stýri lyfjameðferð hjá dýrum og
ráðleggi um notkun dýralyfja,“ segir
Sigríður.
Lyfjastofnun hefur enga eftirlits-
skyldu með gæludýraverslunum, en
þar sem stofnuninni er falið að hafa
eftirlit með því að ákvæðum lyfja-
laga sé fylgt er fyrsta úrræðið sem
stofnunin grípur jafnan til að beina
þeim tilmælum til gæludýraverslana
að þeim sé ekki heimilt að selja lyf.
Að sögn Sigríðar fær stofnunin af
og til ábendingar um lyfjasölu í
gæludýraverslunum. Til dæmis hafi
borist ábending í fyrra um að verið
væri að selja lyf til að losa hunda og
ketti við sníkjudýr á húð. Hún segir
það mat Lyfjastofnunar að þær
verslanir sem selji dýralyf án leyfis
geri það fyrst og fremst í góðri trú,
ekki sé ætlunin að brjóta lög. „Í sum-
um löndum á EES-svæðinu er heim-
ilt að selja lyf fyrir smærri gæludýr í
gæludýraverslunum. Það gæti valdið
einhverjum misskilningi hérlendis.
Lyfjastofnun bregst við með því að
senda tilmæli um að hætta sölu þess-
ara lyfja og við höfum aldrei upplifað
annað en að það hafi verið tekið vel í
það.“ annalilja@mbl.is
Dýralyf eru seld án
leyfis í gæludýrabúðum
Lyfjastofnun berast af og til ábendingar um slíka sölu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæludýr Sala dýralyfja fellur undir
lyfjalög eins og önnur lyfjasala.
Sigríður
Ólafsdóttir