Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af
öryggisvörum
29. nóvember 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 112.39 112.93 112.66
Sterlingspund 139.69 140.37 140.03
Kanadadalur 83.38 83.86 83.62
Dönsk króna 16.061 16.155 16.108
Norsk króna 13.126 13.204 13.165
Sænsk króna 12.206 12.278 12.242
Svissn. franki 111.17 111.79 111.48
Japanskt jen 1.0014 1.0072 1.0043
SDR 152.09 152.99 152.54
Evra 119.49 120.15 119.82
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.282
Hrávöruverð
Gull 1189.1 ($/únsa)
Ál 1765.5 ($/tonn) LME
Hráolía 48.96 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Orkuveita
Reykjavíkur
hagnaðist um ríf-
lega 4,3 millj-
arða króna á
þriðja ársfjórð-
ungi og felur það
í sér mikinn
rekstrarbata frá
sama tímabili í
fyrra, þegar hagnaður fyrirtækisins
nam ríflega 830 milljónum króna.
Á fyrstu níu mánuðum ársins nemur
hagnaður OR tæpum 9,4 milljörðum
króna. Þannig er hagnaður fyrstu
þriggja fjórðunga þessa árs ríflega þre-
falt meiri en á sama tímabili í fyrra þeg-
ar hann nam tæpum 3,1 milljarði.
Á fyrstu níu mánuðum ársins lækk-
uðu skuldir fyrirtækisins um 17,8 millj-
arða. Þar af hafði styrking krónunnar
áhrif til lækkunar um 3,8 milljarða.
Skuldir fyrirtækisins námu í lok þriðja
ársfjórðungs ríflega 180 milljörðum
króna.
Hagnaður Orkuveitunnar
margfaldast milli ára
STUTT
BAKSVIÐ
Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson
olafur@mbl.is
Skattar sem hlutfall af landsfram-
leiðslu á Íslandi hafa farið lækkandi
samkvæmt tölum sem að Hagstofa
Evrópu, Eurostat, gaf út á dögunum.
Þrátt fyrir það eru skattbyrði á Ís-
landi sú þriðja hæsta í Evrópu.
Ef tekið er tillit til mismunandi
fyrirkomulags á lífeyrisskerfum og
leiðrétt fyrir því, þá nam þetta hlut-
fall 33,1% á árinu 2015 samkvæmt
útreikningum frá Samtökum at-
vinnulífsins.
Skattbyrði hefur almennt verið að
aukast í Evrópu, en frá árinu 2005 til
ársins 2015 hefur hlutfall skatta af
landsframleiðslu hækkað úr 38,7% í
40%, samkvæmt tölum Eurostat.
Mikil skattbyrði einstaklinga
Tekjuskattar á einstaklinga og
fyrirtæki hér á landi eru þeir þriðju
hæstu í Evrópu samkvæmt tölum
Eurostat og námu 17,8% af lands-
framleiðslu á síðasta ári. Þar lendir
mest á einstaklingum en skattbyrði
þeirra var 13,8% af landsframleiðslu.
Skattar á fyrirtæki námu 2,4% af
vergri landsframleiðslu og er það
rétt við meðaltal í Evrópu. Þegar
horft er til Norðurlandanna þá eru
fyrirtækjaskattar á Íslandi næst-
lægstir, en hæstir í Noregi þar sem
þeir nema 4,9% af vergri landsfram-
leiðslu.
Óbeinir skattar eru einnig háir
hér á landi, en skattar á vörur og
innflutning námu 15,1% af vergri
landsframleiðslu og lendir Ísland þar
í 10. sæti Evrópuríkja.
Þegar litið er til heildarskatt-
greiðslna þarf að taka tillit til mis-
munandi lífeyriskerfa. „Fyrirkomu-
lag lífeyrissjóðakerfisins á Íslandi
skekkir samanburð Eurostat tals-
vert,“ segir Ólafur Garðar Halldórs-
son, hagfræðingur hjá Samtökum
atvinnulífsins. „Skattbyrði á Íslandi
er mikil samanborið við aðrar þjóð-
ir, þegar þú leiðréttir fyrir því að á
Íslandi er sjóðsöfnunarkerfi en ekki
gegnumstreymiskerfi eins og í flest-
um löndum í kringum okkur.“
Gegnumstreymiskerfið krefst
hærri skatta þar sem lífeyris-
greiðslur fara í gegnum skattkerfið
en ekki í gegnum sjóði, segir Ólafur.
Ísland með 3. hæstu skattana
Þegar búið er að leiðrétta fyrir
þessum mismuni þá er Ísland í 3.
sæti í Evrópu þegar kemur að
skattbyrði, eins og sjá má á með-
fylgjandi stöplariti. Ísland er einnig
í 3. sæti þegar bornar eru saman
tölur frá Norðurlöndunum en ein-
ungis Danmörk og Svíþjóð erum
með meiri skattbyrði en Ísland.
Lægstu skattbyrðina bera lönd í
Austur-Evrópu en þar á meðal eru
Litháen, Slóvakía, Tékkland og Pól-
land.
„Það er ljóst þegar litið er á töl-
urnar að skattbyrði er einna hæst á
Íslandi á meðal ríkja EES og lítið
svigrúm er til skattahækkana.
Ríkisstjórnin sem tekst vonandi að
mynda á næstunni ætti að einbeita
sér að því að draga úr skattbyrði og
gæta aðhalds á útgjaldahliðinni,“
segir Ólafur að lokum.
Skattbyrði á Íslandi sú
þriðja hæsta í Evrópu
Heildarskatttekjur árið 2015, sem hlutfall af vergri landsframleiðslu
-leiðrétt fyrir greiðslum til almannatrygginga
D
an
m
ör
k
Sv
íþ
jó
ð
Ís
la
nd
Fi
nn
la
nd
B
el
gí
a
Íta
lía
Au
st
ur
rík
i
Fr
ak
kl
an
d
N
or
eg
ur
M
al
ta
B
re
tla
nd
Lú
xe
m
bo
rg
U
ng
ve
rja
l.
Kr
óa
tía
G
rik
kl
an
d
Po
rt
úg
al
Ký
pu
r
H
ol
la
nd
Þý
sk
al
an
d
Ei
st
la
nd
Sp
án
n
Sl
óv
en
ía
Sv
is
s
B
úl
ga
ría
Le
tt
la
nd
Ír
la
nd
Rú
m
en
ía
Pó
lla
nd
Té
kk
la
nd
Sl
óv
ak
ía
Li
th
áe
n
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Skattbyrði í Evrópu
» Erum í þriðja sæti yfir skatt-
byrði í Evrópu
» Hæsta skattbyrðin er í Dan-
mörku en hún er 46,6% af
vergri landsframleiðslu þegar
leiðrétt er fyrir fyrirkomulagi
lífeyrisgreiðslna.
» Lægsta skattbyrðin er í
Litháen en hún er 17,5% af
vergri landsframleiðslu.
» Noregur er með lægstu
skattbyrðina af Norðurlönd-
unum en hún er 28,3% af
vergri landsframleiðslu.
Skattar einungis hærri í Danmörku og Svíþjóð sem hlutfall af landsframleiðslu
Stjórnir fjármálafyrirtækjanna
Kviku og Virðingar hafa undirritað
viljayfirlýsingu um formlegan undir-
búning fyrir samruna félaganna
undir nafni Kviku. Eins og fyrr hef-
ur verið greint frá höfðu stjórnend-
ur Virðingar frumkvæði að því í
haust að falast eftir hlutum í Kviku
með samruna fjármálafyrirtækj-
anna í huga. Hafa þreifingar um
hugsanlegan samruna átt sér stað
síðan.
Í yfirlýsingu frá fyrirtækjunum
kemur fram að á næstu vikum verði
unnið að samkomulagi sem fela mun
í sér helstu skilmála fyrir samrun-
anum og að þar verði meðal annars
að finna forsendur fyrir honum,
gerð áreiðanleikakannana, endan-
lega samningsgerð og aðgerða- og
tímaáætlun. Stefna stjórnirnar að
því að niðurstaða þessarar vinnu, og
þar með hvort af sameiningu verður,
muni liggja fyrir um mitt næsta ár.
Í aðdraganda sameiningar félag-
anna verður eigið fé Kviku lækkað
um 600 milljónir króna og lækkunin
greidd til hluthafa bankans. Verði af
samrunanum munu hluthafar Kviku
eignast 70% hlut í sameinuðu félagi
og hluthafar Virðingar 30%.
Í fyrrnefndri yfirlýsingu stjórn-
anna kemur fram að með samein-
ingu fyrirtækjanna verði til öflugt
fjármálafyrirtæki sem verði leiðandi
á fjárfestingabankamarkaði og að
það verði einn stærsti aðili í eigna-
stýringu á Íslandi með um 220 millj-
arða króna í stýringu.
Stærsti hluthafi Kviku er
Lífeyrissjóður verslunarmanna með
9,9% hlut. Sjóðurinn er jafnframt
næststærsti hluthafi Virðingar með
8,31% hlut í fyrirtækinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sameining Viðræður Kviku og
Virðingar hafa staðið yfir um tíma.
Stefna að samein-
ingu á næsta ári
Kvika og Virð-
ing ná saman um
útlínur að samruna