Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2015, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2015, Qupperneq 13
Vikublað 11.–13. ágúst 2015 Fólk Viðtal 13 af 20% AFSLÁTTUR Gæði og góð þjónusta í 80 ár! Aðlögunin reyndist mjög erfið n Allt mjög framandi n Fékk ekki formlegt tilboð frá Bolton n Erfiðast að vera fjarri fjölskyldunni FÉLAG L U J T NET STIG Shanghai East Asia FC 21 13 6 2 23 45 Guangzhou Evergrande 21 12 8 1 31 44 Shandong Luneng 21 13 4 4 19 43 Beijing Guoan 21 11 7 3 16 40 Shijiazhuang Ever Bright 21 7 11 3 6 32 Shanghai Greenland Shenhua 21 9 5 7 0 32 Jiangsu Guoxin-Sainty 21 8 5 8 -4 29 Henan Jianye 21 7 7 7 2 28 Changchun Yatai 21 6 7 8 -3 25 Chongqing Lifan 21 6 5 10 -13 23 Guangzhou R&F F.C. 21 5 6 10 -4 21 Guizhou Renhe 21 5 6 10 -8 21 Hangzhou Greentown 21 5 6 10 -11 21 Tianjin Teda 21 5 5 11 -11 20 Liaoning Hongyun 21 4 7 10 -16 19 Shanghai Shenxin 21 2 5 14 -27 11 Staðan í kínversku Súperdeildinni það góða við að koma hingað er að koma beint í aksjón. Auðvitað vildi ég hafa spilað fleiri mínútur en fram undan eru þrír leikir á stuttum tíma og ég reikna með því að spila megn- ið af þeim. Varðandi framhaldið þá er náttúrlega talsvert óöryggi í því að vera með svona stuttan samning en ég held að það sé fyrst og fremst undir sjálfum mér komið hvernig framhaldið verði. Það skiptir mestu máli að ég sé í toppstandi og þá kvíði ég engu.“ Ertu kominn í toppform? „Já, ég er í ágætis standi. Í staðinn fyrir að fara í undirbúningstímabil þá er liðið á fullu og margir leik- ir. Það er gott.“ Þú ert númer 24. Af hverju? „Ég hefði kosið annað núm- er. Vildi vera númer 22 en er bara ekki svo mikil stjarna í mér að ég vildi fara að standa í einhverju slíku. Markmaðurinn er númer 22 og ég tók bara það lausa númer sem var næst því.“ Svakalegir leikir fram undan hjá Íslandi Spenntur og í standi til að koma í landsleiki? „Já. Mjög,“ segir hann ákveðið. Svakalegur leikur fram undan? „Já, svakalegir tveir leik- ir fram undan. Við erum búnir að segja fyrir síðustu fimm leiki að þetta séu allt úrslitaleikir og þannig er það bara. Við erum í þannig riðli. Við erum í þeirri stöðu að vera efstir í riðlinum og ætlum bara að vernda það.“ Það er mikil hreyfing á íslensku landsliðsmönnunum. Hefurðu áhyggjur af því eða er það jákvætt? „Aðalatriðið er að menn séu heilir og ekki í meiðslavandræð- um. Mér sýnist að flestir hafi verið að taka skref upp á við í sínum fé- lagaskiptum og það er bara jákvætt.“ Þú komst ekki inn á síðasta leik Ís- lands. Svekktur? „Ég myndi ljúga ef ég segði ekki að ég hefði verið svekktur. En leikurinn bara þróað- ist þannig að þess þurfti ekki. Þá verður maður bara að kyngja því og horfa á næsta leik. Ég ætla að vera í mínu besta standi í næsta leik og það er best fyrir alla að samkeppn- in sé mikil. Aðalatriðið er að við sem hópur áttum okkur á því að við erum í bestu stöðu sem nokkurt landslið hefur verið. Við verðum að koma okkur yfir strikið og komast á EM í Frakklandi. Það gerum við sem hópur og ef við náum því markmiði þá skiptir engu máli hvaða hlutverki menn gegndu eða hvaða stöðu þeir spiluðu. Það verður sögulegt.“ n Maí 2005 Chelsea enskur meistari. Eiður var í lykilhlutverki hjál Chelsea þetta árið. Shijiazhuang Ever Bright er í fimmta sæti. Næsti leikur Eiðs og félaga er á morgun. Þá leika þeir gegn Tianjin Teda sem er í 14. sæti. Flestir áttu von á að Eiður myndi áfram klæðast Bolton treyjunni. Af því varð ekki. Maí 2009 Fagnaði Meistaradeildartitli með Barcelona. Eftir sigur á Manchester United í Róm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.