Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2015, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2015, Qupperneq 16
Vikublað 11.–13. ágúst 20152 Skólar & námskeið - Kynningarblað Listrænir hæfileikar njóta sín í Naglaskólanum Námskeiðin eru fljót að fyllast í Magnetic Naglaskólanum M agnetic Naglaskólinn hefur verið starfræktur síðan 2010 og í nýjum húsa- kynn- um í Hólshrauni 2 í Hafnarfirði er að- búnaður skólans orðinn hinn glæsi- legasti. Kennararn- ir hafa allir margra ára reynslu og eru með kennslu- réttindi frá viður- kenndum nagla- meistaraskólum erlendis. Magnetic býður upp á ákaf- lega skemmtilegt nám sem hentar öllum þeim sem hafa auga fyrir formi og hafa gam- an af því að skapa fallega list. List- rænir hæfileikar hafa engin landa- mæri og hentar því námið fólki á öllum aldri og af báð- um kynjum. Kennt er einu sinni í viku í 10 vikur, þar sem nemendur vinna und- ir leiðsögn kennara og æfa sig síðan heima á milli kennslustunda. Magnetic leggur mikla áherslu á hæfilega blöndu af bóklegri og verklegri kennslu til að tryggja að þaðan út- skrifist einungis vel upplýstir og álitlegir naglafræðingar. Farið er vel yfir alla grunnþætti og læra nemendur allt um mis- munandi neglur, lögun og týp- ur ásamt náttúrulegu nöglinni og hvernig hana ber að vernda. Á grunnnámskeiðinu okkar kennum við eingöngu á gelneglur, en nemendur eiga kost á að sækja stutt acrylnámskeið þegar þeir hafa útskrifast sem Magnetic nagla- fræðingar. Námskeiðið kostar 279.900 kr. og er innifalið í þeirri upp- hæð kennslugjaldið, naglataska, Magnetic bolur, kennslugögn og mjög veglegur vörupakki. Boðið er upp á raðgreiðslur í allt að 36 mánuði. Hafir þú áhuga á að skrá þig á námskeið hvetjum við þig til að gera það strax því að nám- skeiðin eru fljót að fyllast því að- eins eru teknir inn sex nemendur á hvert námskeið. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.