Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2015, Page 19
Vikublað 11.–13. ágúst 2015 Umræða 15
Myndin
S
umarið er yfirleitt gúrku-
tíð í fréttamennsku. Þingstörf
liggja niðri að mestu og þing-
menn þeytast út um hvippinn
og hvappinn. Sumir nýta tímann til að
hitta fólk um land allt og taka púlsinn
á ýmsum málum. Aðrir nota tímann
með fjölskyldunni, slaka á heima fyrir,
dytta að heimilinu og skella sér jafnvel í
útilegu eða utanlandsferð. Batteríin eru
hlaðin, bæði málefnalega fyrir kom-
andi þingvetur sem og líkami og sál.
Kleinuhringjaklikkunin
Sjálf hef ég nýtt tímann vel í sumar
og gert allt ofantalið. Hef varla horft á
sjónvarp en heyri útvarpsfréttir mátu-
lega oft. Það sem hæst hefur borið í
umræðunni, að mínu mati í sumar
eru nokkur afar áhugaverð en þó ólík
mál. Má þar nefna yfirvofandi við-
skiptabann af hálfu Rússa gagnvart Ís-
lendingum, afar sterk umræða um kyn-
ferðisbrot og kleinuhringjaæði. Hvað
er þetta annars með Íslendinga og er-
lendar keðjur sem hingað koma? Það
er eins og fólk hafi aldrei áður komist
til þess að versla. Hvernig ætli höfundar
áramótaskaupsins í ár tækli þetta allt, af
nógu er að taka.
Ferðamannahægðir
Fjölgun erlendra ferðamanna, slys á
ferðamönnum og ferðamannahægðir
hafa til dæmis fengið all nokkra umfjöll-
un í sumar. Of fá klósett, ófullnægjandi
merkingar, lélegir vegir, ökumenn oft
illar upplýstir um færð og vegi og jafn-
vel á vanútbúnum bílum frá bílaleig-
um, fáir hjólastígar fyrir allt reiðhjóla-
fólkið sem skapar verulega slysahættu,
og svo framvegis. Þetta eru allt verkefni
sem við verðum að taka föstum tök-
um og fjármagnið þarf að sjálfsögðu að
fylgja. Út frá umræðum í þingsal í vet-
ur heyrðist mér að flestir væru á þeirri
skoðun að best væri að fara svokallaða
blandaða leið til fjármögnunar en þau
mál skýrast væntanlega á haustdögum.
Í lífshættu á reiðhjóli
Aðeins meira um hjólreiðafólkið. Við
höfum mörg lent í því ítrekað, á þjóð-
vegum landsins, að þurfa nánast að
hemla þegar maður lendir skyndi-
lega fyrir aftan hjólreiðamann. Sumir
hjóla hlið við hlið og aðrir eru með svo
miklar pinkla að þeir taka heila akrein.
Stundum er mögulegt að sveigja fram-
hjá þeim en stundum ekki. Vegaxlir
eru víða mjög lélegar og því eiga hjól-
reiðamennirnir heldur ekki möguleika
á að víkja lengra út í kant. Maður bíð-
ur hreinlega eftir að dauðaslys verði
við slíkar aðstæður. En hvað skal gjöra?
Vegakerfinu hefur verið illa viðhaldið
í mörg ár. Hjólreiðastígar eru að sjálf-
sögðu ekki í forgangi. Að mínu mati er
tvennt í stöðunni, þ.e. að þegar vegir
eru lagaðir að vegkantar séu hafðir ívið
breiðari en venja er og myndu þannig
nýtast hjólreiðafólki. Hin leiðin er að
koma þeim skilaboðum til ferðafólks að
ekki sé óhætt að hjóla á þjóðvegum. Við
getum ekki boðið upp á þessa tegund
ferðamennsku ef öryggi ferðamanna er
ekki tryggara en raun ber vitni.
Fleiri gáttir til landsins
Þjónusta og umgjörð er eitt og náttúru-
verndin annað. Þar sem íslensk nátt-
úra er einstaklega viðkvæm þá hefur
lengi verið tala um að fjölga hliðum inn
til landsins með það að markmiði að
dreifa ferðamönnum betur um landið.
Ríkisstjórnin hefur að tillögu forsætis-
ráðherra samþykkt að skipa starfshóp
sem fær það hlutverk að kanna hvern-
ig koma megi á reglulegu millilanda-
flugi um flugvellina á Akureyri og Eg-
ilsstöðum. Starfshópurinn skal greina
framkvæmdaratriði, kostnað, þátt-
töku einstakra ríkisstofnana/fyrirtækja,
landshluta og fyrirtækja í viðkomandi
landshluta og markaðssetningu. Starfs-
hópurinn á að skila af sér tillögum í
formi aðgerða- og kostnaðaráætlunar.
Áhugavert verður að sjá hverjar niður-
stöður starfshópsins verða.
Gæði umfram magn
Fjölgun innkomustaða myndi án
efa styrkja byggðir landsins og inn-
viði þeirra, og umfram allt, gefa ferða-
manninum enn betri upplifun. Rann-
sóknir sýna að flestir ferðamenn sem
hingað koma vilja njóta náttúrunnar.
Náttúran stendur auðvitað alltaf fyrir
sínu en fjölmennið á vinsælustu stöð-
unum getur dregið verulega úr gæðum
upplifunarinnar. Bláa lónið hefur verið
til mikillar fyrirmyndar á þessu sviði og
lagt ofuráherslu á upplifun gesta. Nú er
verið að stækka lónið en stjórnendur
lónsins munu samt sem áður ekki selja
fleiri aðgangsmiða sem því nemur. Þar
er aðgangur að lóninu takmarkaður
við ákveðinn fjölda hverju sinni. Mér
finnst að aðrir vinsælir ferðamanna-
staðir ættu að taka Bláa lónið sér til fyr-
irmyndar og skoða það t.d. að hleypa
bara visst mörgum hópferðabílum/
einstaklingum inn á svæðið í einu, þá á
ég til dæmis við staði eins og Þingvelli,
Gullfoss og Geysi.
Íslensk náttúra rokkar
En svona að lokum þá hef ég virkilega
notið þess að ferðast um landið í sumar.
Ég hef notað tjaldsvæðin grimmt, vítt
og breitt um landið og verið afar ánægð
með þá þjónustu sem ég hef fengið.
Það hefur einnig verið gaman að sjá
hversu mikinn metnað ferðaþjónustu-
aðilar hafa til að standa sig sem best
gagnvart sínum viðskiptavinum. Þeir
erlendu ferðamenn sem ég hef hitt á
tjaldstæðunum hafa allir verið mjög
ánægðir með ferðalagið en það sem
toppar sumarið algjörlega er að sjálf-
sögðu sjálf móðir náttúra; mikilfengleg,
stórbrotin og algerlega einstök.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmað-
ur Framsóknarflokksins n
Opnar skóla í Kenía Paul Ramses hyggst opna grunnskóla í Kenía nú síðsumars fyrir fé sem hann og kona hans, Rosemary, hafa safnað með sölu á munum frá
heimalandinu. Paul fékk hæli á Íslandi árið 2010 eftir að hafa verið sendur úr landi. mynd siGtryGGur ari
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Föst sölulaun
Sölulaun eigna
yfir 60 milljónum
aðeins 1% með vsk
upp að 60 milljónum
299.900.- með vsk
VantaR – VantaR
Vegna mikillar sölu vantar
allar stærðir eigna á skrá.
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Sími 568-
5556 www
.skeifan.is
silja dögg Gunnarsdóttir
Þingmaður Framsóknarflokksins
Kjallari
„Ég fer í fríið“ „Það er eins og fólk
hafi aldrei áður
komist til þess að versla
Mest lesið
1 Maðurinn handtekinn Sérsveit ríkislögreglustjóra
handtók karlmann í fjölbýlishúsi í
Vallahverfinu í Hafnarfirði eftir miðnætti
aðfaranótt mánudags. Lögregla var með
mikinn viðbúnað í hverfinu og
lokaði meðal annars fyrir
umferð um hverfið auk
þess sem íbúar voru
hvattir til að halda sig
innandyra.
Lesið: 41.453
2 Annar maðurinn látinn Eins hreyfils vél með tvo
innanborðs brotlenti á Tröllaskaga á
sunnudag. Flugmaðurinn, Arngrímur
Jóhannsson, flugstjóri og stofnandi
Atlanta, komst lífs af en farþegi í vélinni,
kanadískur karlmaður, var
látinn þegar við-
bragðsaðilar komu á
vettvang. Aðstæður á
slysstað voru nokkuð
erfiðar.
Lesið: 13.119
3 Blái herinn fær ekki að-stoð við förgun Blái herinn
stóð fyrir tveimur fjöruhreinsunum í maí
og fyllti ruslið tuttugu og fjögur fiskikör
og var um 3.500 kíló. Stofnandi Bláa
hersins og sá sem skipulagði hreinsunina,
Tómas J. Knútsson, situr nú hins vegar
uppi með allt ruslið því
hann fær ekki aðstoð
við förgun en greiða
þarf fyrir slíkt í dag.
Lesið: 8.876
Vonumst til að þetta
fari af stað fyrr en síðar
Björn Blöndal, formaður borgarráðs, um uppbyggingu á Landsbankareitnum. - Visir
Ég hef engan áhuga á að
taka þátt í formannsslag
Guðmundur steingrímsson sem íhugar sína pólitísku framtíð. - DV
Það er saga á bak við
hvert einasta símtal
sigrún Ósk Kristjánsdóttir, sem vinnur nú að þriðju þáttaröð Neyðarlínunnar fyrir Stöð 2. - DV