Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2015, Qupperneq 21
Vikublað 11.–13. ágúst 2015 Lífsstíll 17
T
il þess að svara spurningunni
sem ég varpa fram í fyrirsögn,
þá er svarið algjörlega NEI.
Þið verðið ekki eins og Hulk
við það að byrja að lyfta lóðum
og heldur ekki við að byrja að drekka
fæðubótarefni eins og próteinduft. Ég
hef margoft fengið þessa spurningu,
bæði í þjálfuninni og frá konum sem
eru að forvitnast um æfingar.
Það eru ekki einungis lyftingar sem
stuðla að uppbyggingu vöðvamassa,
heldur samspil erfða, mataræðis og
æfinga, sem mikilvægt er að sinna með
stöðugleika.
Til að styðja mál mitt tek ég sjálfa
mig sem dæmi. Ég hef núna stundað
lyftingar í fimm ár samfleytt, en held
enn í mínar kvenlegu línur.
Ræktardurgur í fæðingu
Í september fyrir fimm árum tók ég
eina af betri ákvörðunum lífs míns. Það
var ákvörðunin um að skrá mig í fjar-
þjálfun hjá Betri árangri. Einungis ári
seinna var ég sest í þjálfarastólinn sam-
hliða Katrínu Evu, þjálfara mínum og
einni af mínum bestu vinkonum í dag.
Það má því eiginlega svo að orði kom-
ast að ég eigi fimm ára Ræktardurgs-af-
mæli í komandi mánuði.
Frá því ég tók þessa ákvörðun hef-
ur líf mitt breyst svo um munar, á svo
margan máta. Ekki bara það að ég vinn
við ótrúlega gefandi og skemmtilegt
starf, heldur hef ég öðlast mikla þekk-
ingu og lært heilmikið sem við kemur
hollum og góðum lífsstíl. Samhliða því
hef ég lært ýmislegt sem tengist sjálfri
mér eins og aukið sjálfstraust og bættri
líðan. Ávinningurinn af því er síðan
gott líkamlegt form, sem hefur bæst
töluvert frá því fyrir fimm árum síðan.
Fyrstu skref Ræktardurgsins
Á þeim tíma sem ég byrjaði að lyfta,
var ekki eins algengt að stelpur og kon-
ur stunduðu lyftingar eins og það er í
dag. Mér finnst alveg hreint magnað að
sjá að breyting hefur orðið á því og það
verður sífellt algengara. Það voru því
þung skref tekin inn í lyftingarsalinn á
sínum tíma, sem var stútfullur af gaur-
um. Ég reif mig af brennslutækjunum
sem ég stundaði stíft áður fyrr og reif
þess í stað grimmt í lóðin.
Það voru margir undrandi að ég
væri að skrá mig í þjálfun, af því ég væri
grönn fyrir. En mig langaði að læra
betri lífsstíl og byggja mig upp. Það sem
hvatti mig helst var að fá flottari rass,
eftir að hafa gert minn að pönnuköku
með eintómum brennsluæfingum.
Síðan þá hef ég gengið í gegn-
um flest það sem við aðstoðum kon-
ur við í okkar þjálfun: létt mig, þyngt
mig, styrkt mig og tónað, til þess að ná
bætingum með líkamlegt form fyrir
mitt áhugamál, sem er fitness. Þannig
hefur mikil vinna farið í þær framfarir
sem ég hef náð.
„STRONG IS THE NEW SKINNY”
Þessi setning er svo ótrúlega skemmti-
leg og á svo vel við þær framfarir sem
ég hef sjálf náð. Mér finnst svo gaman
að fleiri stelpur sækist nú í að byggja sig
upp og það sé ekki einungis verið að
tala um að grennast.
Svo er líka lúmskt gaman að lyfta og
þannig hægt að móta líkamann eins
og leir samhliða réttu mataræði, hvort
sem að markmiðið er að grennast eða
byggja sig upp.
Að líða vel í eigin skinni
Ég tel mikilvægast af öllu að hverjum
og einum líði vel í eigin skinni, and-
lega og líkamlega. Einnig finnst mér
mikilvægt að þú gerir þetta fyrir þig
og engan annan. Það er alltof algengt
að við séum að sækjast í að vera eins
og einhver annar vill að við séum. En
nú er bara svo að smekkur manna er
misjafn og því mikilvægt að gleyma
sér ekki í allri gleðinni. Það er ekkert
endilega fyrir alla að vera með vöðva,
að hafa eitthvað utan á sér eða vera
grannir.
Ég hef núna prófað flest og líð-
ur vel eins og ég er í dag. Eins og ég
nefndi áður hef ég prófað að vera
grönn, þyngri, tónuð og annað til. Í
gegnum öll þessi tímabil hef ég fengið
ábendingar um vaxtarlagið mitt á þeim
tímapunktum.
Heimurinn væri svo mikið betri
staður ef við myndum gefa okkur að-
eins meiri tíma í að spá í sjálf okkur og
njóta augnabliksins, í stað þess að vera
stöðugt að spá í aðra. n
Þangað til næst,
Ræktardurgurinn
H
ar
ðp
ar
ke
tÞýsk gæði!
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Verð ég eins
og Hulk ef ég
lyfti lóðum?
n Gaman að lyfta n Að líða vel í eigin skinni
Fyrir
og eftir
Myndin til vinstri er frá jólunum
2009 þegar ég var upp á mitt
léttasta, enda mikið stress sem
fylgdi því að vera að útskrifast,
sjá um dimmiteringu og vinna
fulla vinnu.
Ég borðaði nokkurn veginn það
sem mig langaði í sem var oft
mjög næringarsnauð fæða eins
og pitsa, nammi, hvítt brauð
og drakk þrjá Magic-orkudrykki
á dag. Samhliða því fór ég í
ræktina að brenna svona 4–5
sinnum í viku.
Á nýjustu myndinni, sem var
tekin í sumar, er ég um átta kíló-
um þyngri en á fyrri myndinni. Í
dag lifi ég mun heilbrigðara lífi.
Ég lyfti um 5–6 sinnum í viku í
bland við brennsluæfingar eftir
tilfinningu og borða mun hollari
og næringarríkari fæðu. Einnig
hef ég bætt líkamsstöðuna
mína svo um munar, en ég vil
meina að það sé að hluta til
komið vegna þess að mér líður
mun betur í eigin skinni.
Hinn ógurlegi Hulk
Frekar massaður náungi!
Alexandra Sif
Nikulásdóttir
ale_sif@hotmail.com