Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 6
Helgarblað 18.–21. desember 20156 Fréttir H ann var rólegur hann Dag­ bjartur Lárus Herbertsson, þegar DV hafði samband við hann, en kona hans, Kristín Harðardóttir, fæddi litla stúlku heima um klukkan níu á fimmtu­ dagsmorgun. „Maður var kannski ekki smeyk­ ur, en þetta var dálítið óvænt,“ svarar Dagbjartur spurður hvort hann hafi orðið óttasleginn þegar þau áttuðu sig á því að móðirin kæmist ekki upp á spítala til að fæða barnið. Þau eiga þrjú börn fyrir, og öll komu þau á ör­ skömmum tíma að sögn föðurins. Dagbjartur segist því vera orðinn ýmsu vanur. Dagbjartur segir Kristínu hafa fengið hríðir upp úr klukkan fimm um nóttina. Það var þó ekki fyrr en á níunda tímanum sem þau ákváðu að fara upp á spítala. Dagbjartur hringdi í Neyðarlínuna sem sendi sjúkrabíl á vettvang. Um leið og sjúkraflutningamennirnir komu inn byrjaði fæðingin. „Þetta hefur ekki tekið nema um fimm mínútur,“ segir hann, en móður og barni heilsast vel. n valur@dv.is Fæðingin tók fimm mínútur Lítilli telpu lá mikið á í heiminn – eins og systkinum hennar Nett og fín Faðir stúlkunnar var pollróleg- ur þegar DV hafði samband við hann. Slitabúin greiða út nærri þúsund milljarða til kröfuhafa n Biðin loks á enda hjá almennum kröfuhöfum n Forgangskröfuhafar LBI fá að fullu greitt á nýju ári S litabú gömlu bankanna munu greiða út samtals nærri þúsund milljarða króna til kröfuhafa sinna núna fyrir og eftir jól. Þannig mun slitastjórn Glitnis strax í dag, föstudag, inna af hendi um 515 millj­ arða greiðslu í erlendum gjaldeyri til kröfuhafa sinna eftir að hafa fengið í vikunni undanþágu frá Seðlabanka Íslands frá fjármagnshöftum. Þetta er í fyrsta skipti sem almennir kröfu­ hafar fá greitt út úr slitabúunum eftir að föllnu bankarnir voru settir í slita­ meðferð í apríl 2009. Greiðsla Glitnis til kröfuhafa kemur í kjölfar þess að Héraðsdóm­ ur Reykjavíkur staðfesti nauðasamn­ ingsfrumvarp slitabúsins 7. desem­ ber síðastliðinn. Héraðsdómur gerði slíkt hið sama í tilfelli Kaupþings fyrr í þessari viku en nauðasamn­ ingsfrumvarp gamla Landsbankans (LBI) var hins tekið fyrir dómstóla síðasta þriðjudag. Gert er ráð fyrir því að nauðasamningur LBI verði í kjölfarið staðfestur af héraðsdómi á milli jóla og áramóta. Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi munu útgreiðslur til al­ mennra kröfuhafa hefjast „eins fljótt og mögulegt er eftir gildistökudag“ nauðasamnings. Áætlað er að fyrsta greiðsla í erlendum gjaldeyri til kröf­ uhafa nemi að jafnvirði 243,5 millj­ örðum króna en áður en hægt er að inna hana af hendi þarf Seðlabank­ inn að veita Kaupþingi undanþágu frá höftum. Langsamlega stærsti kröfuhafi Kaupþings er Deutsche Bank Trust Company Americas en þar á eftir koma skúffufélög í Lúxem­ borg í eigu bandarísku vogunarsjóð­ anna Abrams Capital og York Capi­ tal. Eignasafn Seðlabanka Íslands er fjórði stærsti kröfuhafi Kaupþings og mun fá um 14 milljarða í gjaldeyri í sinn hlut við fyrstu greiðslu Kaup­ þings til kröfuhafa. Tímamótagreiðsla á nýju ári Slitastjórn LBI hyggst greiða út til kröfuhafa „fljótlega í byrjun næsta árs“ en þar verður aftur á móti um að ræða greiðslu til forgangskröfuhafa að fjárhæð 211 milljarðar króna. Sú greiðsla mun marka talsverð tíma­ mót þar sem forgangskröfuhafar munu þá hafa fengið allar kröfur sín­ ar greiddar að fullu en uppgjör þeirra stafar sem kunnugt er frá innstæðum sem Landsbanki Íslands safnaði í útibúum sínum í Amsterdam og London undir vörumerkinu Icesave í aðdraganda bankahrunsins. Þær eignir sem verða til skiptanna fyrir almenna kröfuhafa – þegar búið verður að greiða út til forgangskröfu­ hafa og inna af hendi stöðug­ leikaframlag til stjórnvalda – mun nema um 230 milljörðum króna. Þar munar mestu um 150 milljarða skuld Landsbankans við LBI í erlendri mynt og lán til erlendra fyrirtækja að fjárhæð um 46 milljarða. Langstærstu almennu kröfuhafar LBI eru ACMO S.a.r.l., skúffufélag í Lúxemborg, og Deutsche Bank Trust Company Americas en samtals eiga þessi félög um 34% allra krafna á hendur LBI. Burlington Loan Management, írskt skúffufélag á vegum bandaríska vog­ unarsjóðsins Davidson Kempner, er þriðji stærsti kröfuhafi LBI. Áætlaðar heimtur almennra kröfuhafa LBI eru 14,38% af nafnvirði. Veðmálið misheppnaðist Fram kemur í skýringarriti til kröfu­ hafa Glitnis um nauðasamnings­ frumvarpið að áætluð fyrsta greiðsla í erlendum gjaldeyri til kröfuhafa verði um 515 milljarðar, að stærstum hluta í evrum og Bandaríkjadölum. Þá segir að áætlaðar heimtur al­ mennra kröfuhafa, þegar gert er ráð fyrir 8% ávöxtunarkröfu á þær eign­ ir sem verða í félaginu eftir nauða­ samning, séu liðlega 30% af nafn­ virði. Ljóst er að þeir vogunarsjóðir sem hófu að kaupa upp mikið magn krafna á Glitni eftir árið 2010 – en þá voru kröfurnar byrjaðar að ganga kaupum og sölum á því gangverði – eru í fæstum tilfellum að hagnast mikið á fjárfestingu sinni. Stærsti einstaki kröfuhafi Glitnis er sem kunnugt er Burlington Loan Management. Aðrir helstu kröfuhafar Glitnis, eins og DV hefur áður greint frá, eru meðal annars bandarísku vogunarsjóðirnir Solus Alternative Asset Management, Silver Point og Nomura Corporate Funding Americas. Í kjölfar staðfestingar nauða­ samnings munu öll slitabúin gefa út skuldabréf, og nýja hluti í endurreistu eignarhaldsfélagi, sem kröfuhafar fá afhent í hlutfalli við fjárhæð krafna þeirra. Stjórn félaganna mun hafa um­ sjón með þeim eignum sem enn á eftir að selja og umbreyta þeim í reiðu­ fé á komandi misserum og árum. Á meðal þeirra sem gert er ráð fyrir að muni eiga sæti í fimm manna stjórn Kaupþings eru Óttar Pálsson, hæsta­ réttarlögmaður hjá LOGOS og einn helsti ráðgjafi kröfuhafa gömlu bank­ anna, og Jóhannes Rúnar Jóhannsson, formaður slitastjórnar Kaupþings. Enginn Íslendingur verður í þriggja manna stjórn Glitnis en ekki liggja fyrir tilnefningar að stjórnarmönnum hjá LBI. Gert er ráð fyrir að öll félögin verði með lögfesti á Íslandi. n Hörður Ægisson hordur@dv.is Glitnir 515 milljarðar Kaupþing 243 milljarðar LBI 211 milljarðar Fyrsta greiðslan Slitastjórn Glitnis ríður á vaðið og greiðir út hundruð milljarða til almennra kröfu- hafa í dag, föstudag. FYRIR MEÐFERÐ EFTIR 2-7 DAGA EFTIR MEÐFERÐ ekki gera upp a mil li, al lir eiga skilid Baby Foot! , F Æ S T Í V E R S L U N U M U M L A N D A L L T FYRIR MEÐFERÐ EFTIR 2-7 DAGA EFTIR MEÐFERÐ ekki gera upp a mil li, al lir eiga skilid Baby Foot! , F Æ S T Í V E R S L U N U M U M L A N D A L L T FYRIR MEÐFERÐ EFTIR 2-7 DAGA EFTIR MEÐFERÐ ekki gera upp a mil li, al lir eiga skilid Baby Foot! , F Æ S T Í V E R S L U N U M U M L A N D A L L T FYRIR MEÐFERÐ EFTIR 2-7 DAGA EFTIR MEÐFERÐ ekki gera upp a mil li, al lir eiga skilid Baby Foot! , F Æ S T Í V E R S L U N U M U M L A N D A L L T FYRIR MEÐFERÐ EFTIR 2-7 DAGA EFTIR MEÐFERÐ F Æ S T Í V E R S L U N U M U M L A N D A L L T FYRIR MEÐFERÐ EFTIR 2-7 DAGA EFTIR MEÐFERÐ F Æ S T Í V E R S L U N U M U M L A N D A L L T

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.