Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 28
8 Hátíðarmatur - Kynningarblað Helgarblað 18–21. desember 2015 Hefðbundinn og framandi jólamatur í sömu ferð Nettó: Allt frá tvíreyktu hangikjöti til dádýralunda J ólasalan hér er gríðarleg og hún er alltaf að aukast,“ seg- ir Geir Magnússon, verslunar- stjóri hjá Nettó á Grandanum. Geysilega fjölbreytt úrval er að finna af hágæða jólamat í verslun- um Nettó og margir viðskiptavinir sameina þar hið hefðbundnasta í ís- lenskum jólamat og framandi krás- ir þar sem það síðarnefnda fær oft að njóta sín í jólaboðunum á meðan hryggurinn og hangikjötið eru gjarn- an á borðum á aðfangadagskvöld. Við erum með mat frá helstu birgj- um landsins og það er feikilega mik- il sala hjá okkur í hamborgarhrygg og hangikjöti, en tvíreykt hangilæri er mjög vinsælt núna,“ segir Geir. En margs konar innfluttur hátíðarmatur hefur líka slegið í gegn í verslunum Nettó fyrir þessi jól: „Við erum til dæmis með kengúru-fillet, dádýra-fillet, nauta- lundir og hreindýralundir frá Nýja- Sjálandi. Síðan erum við til dæmis með gæsir og andabringur. Að mínu mati skarar Nettó fram úr öðrum lágvöruverðsverslunum hvað úrval snertir. Við erum auk þess með mjög gott verð á jólamatnum,“ segir Geir enn fremur. Í eftirréttum nýta viðskiptavin- ir Nettó sér margir mikið úrval af ís í verslununum en einnig hefur danski eftirrétturinn Risalamande slegið í gegn, en það er hrísgrjónabúðingur með þeyttum rjóma og vanillu. Nettó-verslanirnar vítt og breitt um landið eru opnar til kl. 22 fram að jólum en tvær þeirra eru auk þess með sólarhringsopnun, en það eru Nettó á Grandanum og í Mjódd. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.