Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 9
Fréttir 9Helgarblað 18.–21. desember 2015 „Milljarðamæringurinn“ sem ætlar að breyta heiminum n Rafrettur og fæðubótarefni Snöggur Daníel var fljótur til að auglýsa umfjöllun Ísþjóðarinnar um sig á Facebook. Hann upplýsir að markmið hans sé að texta þáttinn á ensku. vera heiðarleg þá hef ég svar við þessari spurningu en ég vil helst ekki tjá mig um málið.“ Fæðubótarefni, rafrettur og eldhúsáhöld Eftirgrennslan DV leiddi í ljós að Daníel á hlut í tveimur breskum fyrir tækjum, AZ Natural Supple­ ments Limited og Liquipal Lim­ ited, ásamt breskum viðskipta­ félögum sínum. Ef leitað er eftir fyrirtækjunum á Amazon má sjá að á bak við vörumerkið AZ Natural Supple ments eru nokkrar tegundir af ýmiss konar fæðubótarefnum, til dæmis Raspberry Ketones (sem er virka efnið í rifsberjum) og kókosolíuhylki. Á bak við Liquipal eru rafsígarettur og ýmiss kon­ ar fylgihlutir en þess má geta að pakki frá Liquipal er söluhæstur í tilteknum vöruflokki á Amazon. Fyrirtækin hafa ekki skilað inn rekstrarupplýsingum í Bretlandi og því er ekki hægt að fullyrða hvernig reksturinn gengur. Óvirkt símanúmer og ruslpóstsíða Ef fæðubótarefnin sem AZ Natural Supplements selur eru skoðuð nán­ ar kemur ýmislegt miður traust­ vekjandi í ljós. Á vörum fyrirtækis­ ins er til dæmis mismunandi hvaða heimilisfang er gefið upp, ýmist er fyrirtækið sagt staðsett í Houston í Bandaríkjunum eða í London. Á vörum fyrirtækisins er gefin upp samnefnd heimasíða en ef hún er heimsótt þá flyst viðkom­ andi yfir á rússneska ruslpóstsíðu. Sama símanúmerið er gefið upp, hvort sem skrifstofur fyrirtækisins eru sagðar vera í Bandaríkjunum eða Bretland, en númerið er óvirkt. Sama leynd hvílir yfir fyrirtæk­ inu Liquipal Limited. Á heimasíðu fyrirtækisins eru engar upplýsingar gefnar um hverjir standa á bak við fyrirtækið. Eina sem gefið er upp er eitt tölvupóstfang og heimilisfang í London, það sama og AZ Natural Supplements er skráð á. Ef flett er upp lista yfir fyrirtæki sem skráð eru á þetta heimilisfang finnst AZ Natural Supplements Limited en Liquipal Limited er hvergi að sjá. Ekkert síma­ númer er að finna en fólki er vísað á Facebook­síðu fyrirtækisins. Sú síða er að mestu óvirk fyrir utan nokkra viðskiptavini sem hafa látið í ljós slæmra reynslu sína af fyrirtækinu. Hörð gagnrýni á RÚV Umfjöllun RÚV um Daníel Auðuns­ son vakti hörð viðbrögð víða á sam­ félagsmiðlum og töldu sumir óverj­ andi að lagt væri út í dýra þáttagerð um einstakling þar sem vafi og dulúð virðist ríkja um viðskipta­ hætti hans. Í þættinum færði Daníel engar sönnur á meint viðskiptaveldi sitt fyrir utan að gefa þáttarstjórn­ anda færi á að ræða við tvo starfs­ menn fyrirtækisins sem fóru fögrum orðum um Íslendinginn. Gagnrýnendur höfðu á orði að slík umfjöllun á RÚV ýtti undir trú­ verðugleika hans sem myndi nýt­ ast honum til þess að markaðssetja námskeiðin sem hann stendur fyr­ ir ásamt viðskiptafélaga sínum, Ryan Ciasson. DV hafði samband við Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur, þáttastjórnanda Ísþjóðarinnar, en hún sagðist ekki ætla að tjá sig um þessa gagnrýni. Þátturinn yrði ein­ faldlega að tala sínu máli. „Dulbúnar kynningarsíður“ Stundin fór ofan í saumana á starf­ seminni í apríl síðastliðnum og kom meðal annars fram í umfjöllun blaðsins að sé leitað að nafni Dan­ íels á netinu, eða einu af hans sölu­ kerfum, eFormula Evolution, blasi við löng slóð af misjafnlega dul­ búnum kynningarsíðum. Síðurnar beri einkenni þess að vera vefsíðu­ útgáfa af ruslpósti eða „spam“. Má þar meðal annars nefna ýmsa aug­ ljósa gervigagnrýni á eFormula Evolution sem hefst á orðum eins og „ekki kaupa“ eða „svik“ en áður en langt er um liðið er viðkomandi hvattur til að kaupa vöruna. Ekki náðist í Daníel við vinnslu fréttarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. n Lóðinni skilað og álvinnslan flutt n Kratus keypti Al álvinnslu n Bundu vonir við áform um álver í Helguvík F yrrverandi eigendur Als ál­ vinnslu hf. skiluðu í vikunni lóð sem iðnfyrirtækinu var úthlutað undir verksmiðju í Helguvík. Álvinnslan var seld í lok síðasta árs til eina keppi­ nautarins og stendur til að flytja starfsemina alfarið upp á Grundar­ tanga. Lóðin átti að fara undir ný­ byggingu álvinnslunnar og von­ ir bundnar við áform Norður áls um álver í Helguvík sem hafa ekki gengið eftir. „Þetta ætti ekki að koma nein­ um á óvart en það ekki búið að byggja neitt á lóðinni eða undirbúa hana fyrir framkvæmdir en hug­ myndin var sú að hún væri þarna til staðar ef Norðurál hefði komið,“ segir Halldór Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Als. Kaupa gjall, selja ál Reykjaneshöfn, sem á lóðirnar á iðnaðarsvæðinu í Helguvík, sam­ þykkti á þriðjudag að falla frá út­ hlutun á Berghólabraut 19 til ál­ vinnslunnar. Fyrirtækið, sem er nú í eigu Kratus ehf., fékk upphaf­ lega aðra lóð í Helguvík árið 2002 en hefur alla tíð rekið starfsemi sína í húsnæði Síldarvinnslunnar á iðnaðarsvæðinu. Þar hituðu starfsmenn sjávarútvegsfyrirtækis­ ins álgjall, sem myndaðist á yfir­ borði kerja í álverum Rio Tinto Alcan í Straumsvík og Norðuráls á Grundartanga, í sérstökum ofni og helltu hreinsuðu álinu í mót. Málmurinn var svo seldur álverun­ um tveimur. „Starfsemin kemur til með að flytjast upp á Grundartanga og framleiðsla okkar aukast samhliða því,“ segir Matthías Matthíasson, framkvæmdastjóri Kratus og Als álvinnslu. Völdu Helguvík Kratus er í eigu Stefáns Arnars Þórissonar, Eyþórs Arnalds, fyrr­ verandi bæjarfulltrúa Sjálfstæðis­ flokks í Árborg, og Arthurs Garðars Guðmundssonar. Þeir eru einnig hluthafar í GMR Endurvinnslunni ehf. á Grundartanga sem endur­ vinnur brotamálma og þá aðal­ lega stál sem fellur til við rekstur álvera hér á landi. Aðspurður hvort eigendur Kratus sé að horfa til stækkunar á húsnæði fyrirtækisins á Grundartanga svarar Matthías að svo geti farið. „Já, hugsanlega en það er ótengt kaupunum á Al álvinnslu,“ segir Matthías. Halldór Jónsson keypti 10% hlut í Al álvinnslu í ágúst 2012 af Landsbankanum. Hluturinn var áður í eigu Sparisjóðs Keflavíkur, SpKef, en Landsbankinn tók sjóð­ inn yfir í mars 2011. Um 20 hluthaf­ ar voru í eigendahópi álvinnslunn­ ar þangað til í fyrra og þar á meðal Eignarhaldsfélag Suðurnesja, Ný­ sköpunarsjóður atvinnulífsins og Síldarvinnslan í Neskaupstað. Stjórnendur Reykjanesbæjar tóku að sér að kynna fyrirtækið fyrir fjárfestum á svæðinu í byrjun aldarinnar. Í frétt Morgunblaðsins þann 12. desember 2002 sagði að ákvörðun þeirra um að setja hlutafé inn í það hefði, ásamt aðstöðunni í Helguvík, verið lykilinn að fram­ leiðslunni var valinn samastaður þar. Árni Sigfús son, þá nýráðinn bæjarstjóri Reykjanesbæjar, neitar í fréttinni að fjölskyldutengsl hafi átt þátt í ákvörðun forsvarsmanna Als um að velja Helguvík. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköp­ unarmiðstöðvar Íslands og bróðir Árna, stofnaði álvinnsluna og var í eigendahópi fyrirtækisins. n haraldur@dv.is Helguvík Alur álvinnsla rak starfsemi í húsnæði Síldarvinnslunnar á iðnað- arsvæðinu frá árinu 2003. MynD SigtRygguR ARi „Starfsemin kemur til með að flytjast upp á Grundartanga. Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is gæði – þekking – þjónusta Umhverfisvænir pokar sem brotna niður í umhverf inu Nánari upplýsingar á www.pmt.is eða í síma 567 8888 • Umhverf isvænu plastpokarnir f rá PMT eru ekki maíspokar • Þe ir eru með skaðlaust d2w íblöndunarefni • d2w breyt ir plastpokunum að líf tíma þe irra loknum svo að þe ir samlagist nát túrunni á sama hát t og laufblað Við bjóðum uppá alls kyns gerðir af umhverfisvænum plastpokum. Íslensk plastfyrirtæki sem vilja gerast umhverfisvænni geta jafnframt fengið hjá okkur íblöndunarefni. Pokar í s töðluðum stærðum eða séráprentaðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.