Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 24
4 Hátíðarmatur - Kynningarblað Helgarblað 18–21. desember 2015 Korngrísinn rýkur út fyrir jólin Kjötsmiðjan Fosshálsi 27–29 V ið kaupum grísakjötið frá Herði Harðarsyni í Laxár­ dal en hann elur grís­ ina á íslensku korni. Við köllum þetta Korngrís og erum einvörðungu með slíka hamborgarhryggi,“ segir Sigurð­ ur V. Gunnarsson, forstjóri Kjöt­ smiðjunnar, Fosshálsi 27–29. Korngrísinn hefur mælst afar vel fyrir og salan á honum aukist mjög undanfarin ár: „Við seljum mjög mikið af ham­ borgarhrygg og hangi­ kjöti fyrir jól og páska. Þessi hefðbundni jólamatur hefur verið að sækja mjög í sig veðrið undanfarin ár og þar kann að spila inn í að aðgengi að ís­ lensku rjúpunni er orðið mjög erfitt og margir sætta sig ekki við innflutta rjúpu, þess má geta að við framleiðum okkar hangi­ kjöt sjálfir og er það reykt á gamla mátann með taði og birki,“ segir Sigurður. Kjötið er eingöngu selt í versl­ un Kjötsmiðjunnar í höfuðstöðv­ um fyrirtækisins að Fosshálsi, en gengið er inn Draghálsmegin og stendur Kjötsmiðjan beint fyrir neðan gömlu Osta­ og smjör­ söluna. Afar margir gera sér ferð í Kjötsmiðjuna fyrir jólin til ná í eðalkjöt í hátíðarmatinn Auk hefðbundins hátíðarmatar býður Kjötsmiðjan upp á mikið af úr­ vals kjötvörum, til dæmis mikið af hágæða nautakjöti, til einstaklinga fyrir jólin. Fyrirtækið hefur þó umfram allt sérhæft sig í þjónustu við veitingastaði, hótel og einstak­ linga. Að sögn Sigurðar hefur orðið sprenging í þeim viðskiptum með stækkandi ferðamannamarkaði undanfarin ár. Þjónar Kjötsmiðjan mörgum af þekktustu veitingahús­ um og hótelum landsins með róm­ aðri kjötframleiðslu sinni. n Jólagjafir sem kitla bragðlaukana Ostabúðin: Gimsteinninn á Skólavörðustígnum J ólin eru bara dásamleg hérna í Ostabúðinni, hlaðin girnileg­ um gjafakörfum og fólk kemur líka mikið til að kaupa í for­ réttina,“ segir Jói í Ostabúðinni Skólavörðustíg sem hefur kitlað bragðlauka jafnt Íslendinga sem er­ lendra ferðamanna undanfarin ár, en ferðavefurinn Tripadvisor kallar búðina gimstein. Frábærar gjafakörfur af öllum stærðum eru í boði. Það er hægt að sérvelja í körfuna eftir óskum hvers og eins eða kaupa tilbúnar körfur. Verðið er frá 5.000 krónum. Í Ostabúðinni er geysilega gott úrval bæði íslenskra og innfluttra osta. Alls konar aðrar kræsingar eru í boði, til dæmis heitreyktar gæsa­ bringur, villibráðarpaté, gæsalifrar­ terrine, grafið hrossafillet, grafið ærfillet og grafið nautafillet. Einnig margar tegundir af pylsum sem framleiddar eru á Íslandi, sem og hráskinka. „Við fáum kjötið ferskt hingað og gröfum það og heitreykjum á staðnum. Síðan búum við til ýmsar tegundir af sósum sem passa hver við sinn kjötrétt,“ segir Jói en mik­ il áhersla er lögð á ferskleika og að vinna matinn frá grunni í Ostabúð­ inni. Veitingastaðurinn sem fullkomn­ ar miðbæjarferðina „Þetta er fyrsti jólamánuðurinn sem við getum haft veitingastað­ inn opinn samhliða öllu öðru, þetta er allt annað líf síðan við stækkuð­ um hjá okkur,“ segir Jói en núna er veitingastaðurinn opinn á sama tíma og verslunin. Það er því hægt að gera allt í senn þegar maður fer í Ostabúðina: kaupa frábærar jólagjafir, kaupa girnilegt hráefni í forréttinn og fá sér að dýrindis máltíð á veitinga­ staðnum í lok innkaupaferðar í miðbænum: „Það er bara snilld að fá sér að borða hérna á veitingastaðnum um leið og jólainnkaupin eru gerð í mið­ bænum og njóta jólastemningarinn­ ar á Skólavörðustígnum,“ segir Jói. Veitingastaðurinn er opinn frá 11.30 til 22.00 fram til jóla og versl­ unin er opin frá 10.00 til 22.00 n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.