Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Blaðsíða 39
Menning 31Helgarblað 18.–21. desember 2015 Í námunda við dauðann A lina Margolis-Edelman fæddist í Póllandi og var barn þegar seinni heims- styrjöldin skall á. Þar sem hún var gyðingur var hún færð ásamt hundruðum þúsunda annarra í gettóið í Varsjá. Bókin Uns yfir lýkur fjallar um þessa reynslu hennar og kom fyrst út árið 1994. Bókin er skrifuð í látlausum stíl og skiptist í fremur stutta kafla þar sem Alina bregður upp áhrifamiklum svipmyndum úr æsku sinni. Faðir Alinu var tekinn til fanga af Þjóðverj- um. Hún sá föður sinn í síðasta sinn þegar hún fékk leyfi til að heimsækja hann. Hann lifði í von um að sér yrði sleppt og spurði hvort ekki væri verið að vinna að því að bjarga sér. Dóttir hans svipti hann allri von þegar hún sagði: „En það er ekkert hægt að gera.“ Hún sá föður sinn aldrei aftur. Frásögninni lýkur á þessum orðum Alinu: „Og það sem eftir var ævinnar sat ég uppi með orðin: „En það er ekkert hægt að gera.“ Alina lýsir aðstæðum fólks sem býr við hörmungar stríðsins í skítugu gettói þar sem ekki var neitt til neins og fólk hrundi niður. Frásögn af ungum manni sem sendir vikulega stúlkunni sem hann elskar dýrlegan blómvönd er ljósgeisli í myrkri frá- sögn. En að lokum fer sú saga ekki vel, því miður. Enn er dapurlegri er frásögnin af Fredziu, tólf ára gam- alli hjúkrunarkonu í gettóinu, sem faldi sig ekki þegar þörf var á. Ung hetja sem Alina reisir minnisvarða í bók sinni. Önnur stúlka birtist les- andanum ljóslifandi en það er Klara sem Alina segir vera ljótasta barn sem hún hafi séð. Klara var öðruvísi en hin börnin og alltaf með bók við hönd. Lýsingin á því þegar hún sér Klöru í síðasta sinn er átakanleg en þar heldur Klara fast um ódauðlegt skáldverk. Það sem gerir bókina svo áhrifa- mikla eru hinar minnisstæðu lýsingar á manneskjum sem lifa í námunda við dauðann. Þeir heppnu hafa sigur, hinir lúta í lægra haldi, yfir leitt á afar dapurlegan hátt. Jafn góð og bókin er þá má að því finna að Alina lýkur ekki alltaf öllum sögum sem hún segir og frásögnin hefði á köflum mátt vera mun ítar- legri. Það breytir þó engu um það að bók hennar er afar áhrifamikil og verulega minnisstæð. Markus Meckl skrifar inngang að verkinu og gerir grein fyrir þeirri merkilegu manneskju sem Alina Margolis-Edilman var. n Uns yfir lýkur Höfundur: Alina Margolis-Edelman Þýðandi: Jón Bjarni Atlason Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag 216 blaðsíður Bækur Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Georg og magnaða mixtúran Höfundur: Roald Dahl Þýðandi: Sólveig Sif Hreiðarsdóttir Útgefandi: Bókaútgáfan Kver 106 blaðsíður Bækur Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Eftirlýstur Höfundur: William Browder Útgefandi: Bókafélagið 358 blaðsíður Bækur Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar „Það sem gerir bókina svo áhrifamikla eru hinar minnis stæðu lýsingar á manneskjum sem lifa í námunda við dauðann. Barist fyrir hugsjónum B ókin Eftirlýstur, er eftir Bandaríkjamanninn William Browder. Þar er sögð afar merkileg saga af fjárfestingastarfsemi höf- undarins í Rússlandi fyrir og fyrst eftir síðustu aldamót, allt þar til honum útvísað frá landinu á ár- inu 2005. Hann átti þar fé í fjár- festingarsjóðum sem var afrakstur af vel heppnaðri fjárfestingarstarf- semi árin á undan. Nú var hann fallinn í ónáð hjá Pútín forseta og því úthýst úr landinu. Browder lánaðist að koma fjármunum sín- um og nánustu samstarfsmönnum úr landi. Þegar hann gerði sjóði sína upp fyrir brottflutning þeirra leiddi það til greiðslu skatta í ríkissjóð Rúss- lands samtals um 230 milljónir dollara. Lögfræðingurinn Sergei Magnitskí, 35 ára gamall, sem unnið hafði fyrir Browder í Rúss- landi, komst að því að rússnesk- ir embættismenn höfðu náð að falsa kröfu í nafni fyrirtækisins um endurgreiðslu fyrrgreindra skatta úr ríkissjóði og fengu þá greidda um hæl. Sergei kærði þetta athæfi til rússneskra yfirvalda og gaf sak- fellandi vitnisburð um athæfi þessara afbrotamanna. Við því var brugðist með því að handtaka Sergei í nóvember 2008 og halda honum föngnum við þröngan kost í rússneskum fangelsum. Til- gangurinn var að fá hann til að falla frá framburði sínum um af- brot hinna rússnesku embættis- manna. Báru þær tilraunir engan árangur þó að níðst væri á Sergei í fangelsisvistinni, hann pyntað- ur og honum neitað um alla lækn- ishjálp. Fór svo að hann andaðist fársjúkur innan múranna 16. nóv- ember 2009. Frá þessum tíma hefur Bill Browder helgað líf sitt baráttunni fyrir því að draga morðingja Serge- is til ábyrgðar fyrir ódæðið. Hef- ur bandaríska þingið fyrir hans tilverknað sett lög, „The Magnit- sky Act“, sem kváðu á um að nafn- greindir rússneskir þátttakendur í ódæðinu fengju ekki að koma til Bandaríkjanna og heldur ekki að höndla þar með fé sitt. Browder vinnur nú að því að fá sambæri- legar lagareglur lögfestar í Vestur- Evrópu. Bók Browders segir frá þessum atburðum úr samtímanum. Hún hefur að geyma dramatíska frá- sögn sem jafnast á við bestu spennusögur. Bók sína helgar Browder minningunni um hinn hugrakka lögfræðing sem frem- ur vildi láta lífið en að lúta vilja spilltra ódæðismanna. Allir sem kveðast hafa áhuga á baráttu manna fyrir réttlæti og hugsjónum gegn misbeitingu rík- isvalds ættu að lesa þessa bók. Hún er kannski helst til þess fallin að kenna okkur hversu gjöfult það getur orðið fyrir lífsandann að vera fús til að standa við og berjast fyrir hugsjónum um réttlæti og heiðar- leika. n „Allir sem kveðast hafa áhuga á baráttu manna fyrir rétt- læti og hugsjónum gegn misbeitingu ríkisvalds ættu að lesa þessa bók. Andstyggileg amma Það er ætíð gleðilegt að fá bók eftir Roald Dahl í íslenskri þýð- ingu. Georg og magnaða mixtúr- an er hressi- leg bók og að ýmsu leyti dæmigerð fyrir höfund- inn, en eins og í mörg- um bóka hans eru þar átök milli barns og fullorðinn- ar mann- eskju. Georg er átta ára og býr með foreldrum sínum og ömmu á bóndabæ. Amman er hrein andstyggð sem gerir barnabarni sínu lífið leitt. Georg ákveður að búa til töframixtúru til að lækna ömmuna en afleiðingarnar eru ekki eins og hann bjóst við. Amma bókarinnar er sannar- lega ekki sú skilningsríka og vitra amma sem rithöfundar og lesend- ur halda jafnan upp á. Þessi amma minnir mest á norn og innrætið er eftir því. Georg litli er einn og óvaldaður í baráttu við andstyggi- lega og illa innrætta manneskju. Uppskriftin að töframixtúr- unni er heillandi og ógnvekjandi í senn og eftirleikurinn ævintýra- legur. Endalokin koma á óvart og viðbrögð persóna bókarinnar við örlögum ömmunnar eru bæði óvænt og fyndin. Bókin einkennist af frásagnar- gleði og hæfileika höfundar til að skapa sannfærandi og ógnvekj- andi umhverfi þar sem alls kyns furðulegir hlutir gerast. Kald- hæðnislegur húmor gerir að verk- um að fullorðnir ættu engu síður en börn að geta notið lestursins. Það er ekki hægt að fá nóg af Roald Dahl. Og teikningar Quentin Blake eru bráðskemmtilegar. Kveikt í ferða- draumum Fræðslubækurnar hjá Sögum eru helst ætlaðar börnum og unglingum, en fullorðnir geta haft gaman af að fletta þeim líka. Þetta á ekki síst við um bókina um Undur ver- aldar. Undrin eru flest fyrirsjáan- leg, allt frá Kína- múrnum og yfir í Eiffelturninn, en önnur koma á óvart, svo sem virkið í Alhambra og hæsti turn heims í Dúbaí. Stutt- lega er sagt frá sögu hvers þeirra og skemmtilegum fróðleiksmolum um persónur, þjóðsögur eða bíómyndir skellt með. Þeim klukkutíma sem fer í lestur bókarinnar er ágætlega varið á meðan maður veltir fyrir sér því sem maður á eftir að sjá. 30 Undur Veraldar Höfundur: Helgi Hrafn Guðmundsson Útgefandi: Sögur 63 blaðsíður Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Bækur F élag starfsfólks bóka- verslana veitti sín árlegu bók- menntaverðlaun í Kiljunni á miðviku dag. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2000. Eftirfarandi bækur lentu í efstu sætunum. n Íslenskar barnabækur: 1-2 Koparborgin - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir 1-2 Mamma klikk - Gunnar Helgason 3 Þín eigin goðsaga - Ævar Þór Benediktsson Þýddar barnabækur: 1 Strákurinn í kjólnum - David Walliams 2 Mómó - Michael Ende 3 Grimmi tannlæknirinn - David Walliams Íslenskar ungmennabækur: 1 Skuggasaga: Arftakinn - Ragnheiður Eyjólfsdóttir 2 Vetrarfrí - Hildur Knútsdóttir 3 Drauga-Dísa - Gunnar Theodór Eggertsson Þýddar ungmennabækur: 1 Þegar þú vaknar - Franziska Moll 2 Violet og Finch - Jennifer Niven 3 Hvít sem mjöll - Salla Simukka Handbækur/fræðibækur: 1 Stríðsárin 1938–1945 - Páll Baldvin Baldvinsson 2 Þær ruddu brautina - Kolbrún S. Ingólfsdóttir 3 Gleðilegt uppeldi - Góðir foreldrar - Margrét Pála Ólafsdóttir Besta ævisagan: 1 Munaðarleysinginn - Sigmundur Ernir Rúnarsson 2-3 Nína - Hrafnhildur Schram 2-3 Svo tjöllum við okkur í rallið - Guðmundur Andri Thorsson Besta ljóðabókin: 1 Frelsi - Linda Vilhjálmsdóttir 2 Stormviðvörun - Kristín Svava Tómasdóttir 3-4 Gráspörvar og ígulker - Sjón 3-4 Öskraðu gat á myrkrið - Bubbi Morthens Besta þýdda skáldsagan: 1 Spámennirnir í Botnleysu-firði - Kim Leine 2 Grimmsævintýri: fyrir unga og gamla - Philip Pullman 3 Flugnagildran - Fredrik Sjöberg Besta íslenska skáldsagan: 1 Stóri skjálfti - Auður Jónsdóttir 2 Dimma - Ragnar Jónasson 3 Sogið - Yrsa Sigurðardóttir Bóksalar velja bestu bækurnar Auður Jónsdóttir á bestu íslensku skáldsöguna að mati starfsfólks bókaverslana Verðlaunuð Stóri skjálfti eftir Auði Jónsdóttur var valin besta íslenska skáldsagan í ár af starfsfólki bókaverslana. Mynd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.