Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Page 23
Helgarblað 18–21. desember 2015 Kynningarblað - Hátíðarmatur 3
Hamborgarhryggurinn
og hangikjötið vinsælast
Þ
að er nóg að gera fyrir jólin,“
segir Ólafur Már Þórisson,
markaðsstjóri Kjarnafæðis.
Aðspurður hvað sé vinsælast
hjá þeim í desembermánuði
segir hann: „Við erum alltaf með
hangikjöt og hamborgarhrygginn
sem er einna helst vinsælast í des-
ember.“ Ólafur segir frá því hvernig
hangilæri með beini var alltaf vin-
sælla en úrbeinað en nú hafi það
snúist við og vill fólk helst úrbeinað
hangikjöt í dag.
„Við seljum nú aðeins brot af
hangikjöti með beini en ham-
borgarhryggurinn með beini er hins
vegar vinsælli en úrbeinaður. Svo er
spurning hvort það breytist eins og
hangikjötið en vinsældir úrbeinaða
hryggjarins hjá okkur hafa aukist
töluvert á undanförnum tveimur til
þremur árum.“
Áhersla lögð á vöruvöndun
og gæði
Kjarnafæði framleiðir flestar þær af-
urðir úr íslensku gæða kjöti sem í
boði eru á íslenskum neytendamark-
aði. Höfuðáherslur Kjarnafæðis eru
á vöruvöndun og gæði framleiðsl-
unnar og því er markvisst stefnt að
aukinni hollustu, unnið að fækkun
óæskilegra aukefna og ofnæmis-
valda. Fyrirtækið hefur á að skipa
mjög hæfu starfsfólki og góðum
tækjakosti. Nú starfa um 130 manns
hjá Kjarnafæði og hafa margir þeirra
starfað allt frá fyrstu árum fyrirtæk-
isins.
Hafa hlotið fjölda verðlauna
og viðurkenninga
Kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis
hafa hlotið fjölda verðlauna og viður-
kenninga fyrir færni sína. Kjarna-
fæði hefur hlotið A-vottun Sam-
taka iðnaðarins sem þýðir betri og
öruggari vinnubrögð og aðstæður,
ásamt því að meiri kröfur eru gerð-
ar í eftirliti með starfsemi fyrirtækis-
ins sem tryggir gæði til neytandans.
Kjarnafæði var fyrsta og eina mat-
vælafyrirtækið sem hlotið hafði A-
vottun Samtaka iðnaðarins.
Alþjóðleg vottun eykur öryggi
Í kjölfar þess sótti fyrirtækið um
ISO-9001 vottunina sem er alþjóð-
leg vottun og nær frá vali á birgjum
til könnunar á ánægju viðskiptavina.
Ólafur segir það hafa verið mikið
gæfuspor fyrir fyrirtækið. „Við erum
eina fyrirtækið með áherslu á sölu
kjötafurða sem er með ISO-9001
vottunina. Eftir að hafa fengið A-vott-
unina frá SI lá beinast við að útvíkka
og ganga lengra í okkar gæðamálum,
sem hefur tekist mjög vel. Alþjóðleg
vottun sem þessi eykur öryggi og
hjálpar okkur einnig á erlendum
mörkuðum.“
Fjölskyldufyrirtæki í 30 ár
Bræðurnir Eiður og Hreinn Gunn-
laugssynir stofnuðu Kjarnafæði
þann 19. mars 1985. Frá stofnun
hefur verið um að ræða fjölskyldu-
fyrirtæki sem fyrstu árin lagði
áherslu á að framleiða pítsur og
hrásalat. Mikið vatn hefur því runnið
til sjávar á þessum 30 árum. n
Mynd Auðunn níelsson