Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2015, Side 26
6 Hátíðarmatur - Kynningarblað Helgarblað 18–21. desember 2015
„Gæðin galdra
fram vinsældirnar“
Í
Hafinu er að finna eitt mesta úr
val landsins af ferskum fiski, fisk
réttum ásamt öllu því sjávarfangi
sem hægt er að bera á borð um
jólin. Fyrirtækið rekur þrjár stór
glæsilegar fiskverslanir á höfuð
borgarsvæðinu. Þær eru staðsettar
í Hlíðasmára Kópavogi, Spönginni
Grafarvogi og nú fyrir skemmstu
var þriðja verslunin opnuð í Skip
holti þar sem hin sögufræga fiskbúð
Hafrún var áður til húsa.
Ástríða og metnaður fyrir fiski
Steinar Bjarki Magnússon,
verslunar stjóri í Hlíðasmára og
gæðastjóri fyrirtækisins, leggur
höfuð áherslu á gæði fiskafurðanna
og hefur mikla ástríðu fyrir vöru
þróun af þessum toga enda mat
reiðslumeistari að mennt. „Hér er
mikið lagt upp úr að allt sé girnilegt
og gott,“ segir Steinar. Í framhaldinu
nefnir hann laxinn, skötuna og
humarinn sem dæmi.
„Við erum búin að prófa ýmsar
aðferðir með reykta laxinn og erum
búin að negla niður aðferð sem ger
ir hann stórfenglegan,“ segir Steinar.
Gott orðspor leiddi til fleiri
verslana
Eigendurnir Eyjólfur Júlíus Pálsson
og Halldór Halldórsson stofnuðu
verslunina í janúar 2006 og var
fyrsta búðin í Hlíðasmára.
„Því má segja Hlíðasmára vera
krúnudjásnið í búðasafninu okkar.
Enda vel staðsett og umsvifamest,“
segir Steinar. Eftirspurnin eftir góð
um fiskverslunum leiddi svo til þess
að eigendurnir opnuðu fleiri búðir
eins og nefnt hefur verið.
„Vinsældir búðanna hafa aukist
töluvert. Við höfum ekki endilega
mikið fyrir markaðssetningu heldur
eru það gæðin og orðsporið sem
galdra fram vinsældirnar,“ segir
Steinar.
Litlu jólin 19. desember og jóla-
leikur fyrir viðskiptavini
„Við verðum með jólaopnun laugar
daginn 19. desember og þá verða
allar vörur í búðinni á 15% afslætti.
Það eru margir sem nýta sér þetta
tækifæri til að græja allt fyrir jólin,“
segir Steinar enda um að gera þar
sem fólk er gjarnan með marga í
mat yfir hátíðarnar og þá munar
miklu um afsláttinn. Það verður
opið frá kl. 10.00 til 16.00. Allir við
skiptavinir verslana Hafsins geta
svo tekið þátt í jólaleik þar sem aðal
vinningurinn er 100 þúsund króna
gjafabréf hjá WOW air. „Einnig eru
vinningar á borð við humaröskjur,
gjafabréf á veitingastaði og inneign
í verslunum okkar,“ segir Steinar.
Dregið verður út 22. desember.
Heimalöguð humarsúpa og
sósur fyrir jólin
Í framhaldinu nefnir Steinar að
hann hafi meðal annars verið að
gera humarsúpur og ýmsar sósur
fyrir jólin sem fólk getur nálgast
hjá þeim. „Við erum með sérvalinn
humar sem við völdum í sumar fyr
ir hátíðarnar. Hann er extra stór og
flottur: hreinlega gerist ekki flottari,“
segir hann. Að lokum bætir Steinar
við: „Orð ná bara visst langt og því
mælum við með að fólk komi heim
sókn til að sjá og prófa fyrir sjálft sig.
Sjón er sögu ríkari.“ n
Mynd KarL Petersson
Mynd KarL Petersson 2014