Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 10
10 Fréttir Vikublað 7.–9. júlí 2015
Komdu
til oKKar
...Eða leigðu lyftu og
gErðu við bílinn sjálf/ur
auðbrEkku 25 (DalbrEkku mEgin) - s. 445-5562
Við gerum
Við bílinn
faglegar
Viðgerðir
Röðin á pylsuvagninn kom á óvart
n DV tók nokkra ferðamenn í Reykjavík tali n Hrifnastir af íslenskri náttúru
Himinninn svo
blár
Lucia 24 ára, Kína
„Ég kom til landsins 19. júní og
ætla að vera hér næstu tvær
vikurnar. Ætlunin er að njóta
sumarleyfisins og ferðast,“ segir
Lucia. „Mér þykir Ísland mjög
fallegt land og Reykjavík töff
borg. Það er gaman að bera
Ísland saman við Kína því löndin
eru mjög ólík. Náttúran er allt
önnur ásamt veðrinu, fólkinu,
stærðinni. Íslendingar eru
vingjarnlegir og ekkert svo
feimnir. Ég hef tekið margar
myndir á ferðalaginu og það
sem kemur mér alltaf jafn mikið
á óvart er himinninn; hann er
svo blár. Síðan eru Íslendingar
með mjög falleg bros.“
Birna Guðmundsdóttir
birna@dv.is Íslenskt vatn
ótrúlega gott
Lakshmi 52 ára, Indland
„Mér finnst eins og ég hafi komið áðan
en ég kom í gærkvöldi, maður verður
ruglaður í ríminu þegar nóttin er
svona björt. Við förum frá Íslandi
eftir fjóra daga,“ segir Lakshmi
en hún er við Reykjavíkurhöfn, á
leið í hvalaskoðun, þegar
blaðamaður tekur hana tali. „Á
morgun ætlum við að ganga á
jökul og síðan fara í Bláa lónið.
Annars þykir mér áhugavert
hve allt er hreint hérna
– loftið og vatnið.
Íslenskt vatn er ótrúlega
gott.“ Hún segir
jafnframt að Íslendingar
séu mjög vingjarnlegir:
„Ég hef ekki mætt
neinum dónaskap né
leiðindum, allir eru
svo góðir; leigubíl-
stjórinn, hóteleig-
andinn, allir.“
Lakshmi bætir því
við að sér komi á
óvart hve glaðir
Íslendingar eru:
„Þrátt fyrir að
veðráttan geti
verið erfið.“
Kyrrðin mikil
Lindberg-hjónin á
níræðisaldri, Danmörk
„Við komum 15. júní
síðastliðinn. Við vorum í
Hveragerði í viku og fórum
þaðan að skoða Gullfoss og
Geysi. Síðan skoðuðum við
Þingvelli og höfum nú verið í
Reykjavík í rúma viku og farið
á Reykjanes, í siglingar og
annað,“ segir frú Lindberg.
„Áhugaverðust er náttúran
en þetta er reyndar í fjórða
skiptið sem við komum
hingað. Kyrrðin er mikil á
Íslandi. Þó ekki í Reykvík,“
segir herra Lindberg og hlær.
„Annars á ég alltaf jafn erfitt
með að reikna út íslenskan
gjaldeyri. Öll þessi núll
flækjast alltaf fyrir mér.“
Röðin á pylsuvagninn kom á óvart
Kalisa 22 ára, Kanada
„Ég hef nú ekki verið hér lengi, ég kom í morgun en mér finnst Ísland æðislegt enn sem komið
er. Í Reykjavík er allt hreint og miðbærinn er greinilega vel skipulagður. Síðan finnst mér
náttúran í kringum borgina alveg brjálæðislega flott. Þetta er ekki líkt því sem ég er vön.
Veðrið er heldur ekki amalegt en einhverjir vöruðuð mig við því að hér væri veðrið ekkert
sérstakt – annað sýnist mér. Við fórum áðan og fengum okkur pylsu á Bæjarins bestu. Það
kom mér mikið á óvart hve margir biðu í röðinni. Raðirnar í pylsuvagnana í Toronto eru ekki
svona langar. Pylsurnar voru svaka góðar og sérstaklega það sem hægt var að setja ofan á
þær til bragðbætis,“ segir Kalisa og hlær.
Íslenska
lambið gott
Reinhard 62 ára, Sviss
„Ég kom þann 20. júní. Maður
er bara að njóta sumarfrísins
og fara í alls kyns ferðir. Við
ætlum að skoða hella, fossa,
klífa fjöll og borða íslenskan
mat. Ég hef heyrt að íslenska
lambið sé mjög gott, við
ætlum að smakka það. Við
höfum nú þegar borðað
íslenskan fisk og hann var
mjög ferskur og bragðgóður.
Annars þykir mér landslagið á
Íslandi fallegast, öll þessi orka
sem maður finnur fyrir er engu
lík. Ég verð að viðurkenna að
helst hefur það komið mér á
óvart hve góðu lífi er hægt að
lifa hérna, á eyju langt norður í
hafi,“ segir hann og brosir.