Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Side 26
Vikublað 7.–9. júlí 201522 Menning GleðileGt sumar 12” til 24” barnareiðhjól, verð frá kr. 25.900,- Frábært úrval reiðhjóla og aukahluta • Mikið úrval af reiðhjólahjálmum Focus Whistler 4.0 29“ ál stell-Tektro Auriga Vökvabremsur- Shimano Deore Afturskiptir- 27 gíra. Kr.119.000 Focus raVeN rooKie DoNNa 1.0 26“ ál stell-Promax V-Bremsur-Shimano 21 gíra Focus raVeN rooKie 1.026“ ál stell-Promax V-Bremsur- Shimano 21 gíra Kr.69.900Kr.69.900 Dalshraun 13 220 Hafnarfjörður Sími:565 2292 Óður til Eyjanna Tvær sýningar á verkum Júlíönu Sveinsdóttur á Kjarvalsstöðum Í heimabyggðum þeirra beggja var mikið talað um þessar konur sem stóðu meirihluta dagsins og horfðu út í loftið. Þótt þær væru með trön- ur fyrir framan sig var talað um að þessar konur væru bara skrýtnar,“ segir Hrafnhildur Schram, sem er sýningar- stjóri Tveggja sterkra kvenna, sýningar á verkum Júlíönu Sveinsdóttur og fær- eysku myndlistarkonunnar Ruthar Smith á Kjarvalsstöðum. Í vestursal safnsins stendur einnig yfir sýningin Lóðrétt/ Lárétt þar sem veflistaverk Júlíönu eru sýnd samhliða verkum þýska Bauahasvefarans Anni Alberts. Lífsnæring frá Vestmannaeyjum Júlíana Sveinsdóttir var önnur af tveim- ur fyrstu íslensku konunum sem gerði myndlistina að ævistarfi. Hún var fædd í Vestmannaeyjum árið 1889, næstelst fimm systkina, en flutti til Reykjavíkur 15 ára til að stunda nám við Kvenna- skólann. Þar lærði hún teikningu og tók þá djörfu ákvörðun að gerast myndlist- arkona. Með fjárhagslegum stuðningi föður síns, sem var byggingameistari, sigldi hún til Kaupmannahafnar til að nema við Listaakademíuna. Upp frá því bjó hún í Danmörku og öðlaðist þar bæði viðurkenningu og virðingu fyrir verk sín. Bróðurpartur verkanna á sýn- ingunni eru landslagsmálverk af ís- lenskri náttúru. „Hún var alla tíð af- skaplega tengd fæðingarstað sínum og má segja að lífsverk hennar sé óður til Eyjanna. Hún reyndi að koma heim til Vestmannaeyja hvert einasta sum- ar, en hún lokaðist inni í seinni heims- styrjöldinni og komst ekki í níu ár. Ég held að það hafi verið erfitt fyrir hana því hún sótti svo mikla lífsnæringu hingað,“ segir Hrafnhildur. Færeyskur frumkvöðull Ruth Smith fæddist árið 1913 á Vágur á Suðurey, syðstu eyjunni í Færeyjaklas- anum, en þar er nú að finna safn til- einkað listakonunni. Hún á það sam- eiginlegt með Júlíönu að hafa alist upp í fámennu og einangruðu eysamfé- lagi fiskimanna á norðurhjara verald- ar. Ruth flutti til Danmerkur til að læra hjúkrun en sótti einnig teikninámskeið og sótti í kjölfarið um í Listaakademí- una í Kaupmannahöfn. Eins og Júlíana er hún ein allra fyrsta kona sinnar þjóðar til að gera myndlistina að ævistarfi. Um tíma bjuggu þær báðar í Kaupmannahöfn og segir Hrafnhildur ekki ósennilegt að þær hafi hist, þó ekki séu til heimild- ir um slíkan fund. Ólíkt Júlíönu fluttist Ruth heim til Færeyja, með dönskum eiginmanni sínum, en þar drukknaði hún aðeins 45 ára gömul. „Ég fór til Færeyja fyrir tveimur árum og sá þá í fyrsta sinn frummyndir eftir Ruth. Mér fannst strax eitthvað tengja þær tvær, ekki bara þessi uppruni og staðsetn- ing í upphafi lífsins, heldur líka hversu næmar þær eru á liti – það sem mað- ur kallar kólóristar. Þær eru mjög með- vitaðar um liti og hafa mjög djúpa og fína tilfinningu fyrir þeim. Svo líka það hversu háðar þær voru hinu sjónræna í náttúrunni,“ segir Hrafnhildur. Veflistaverkin þekktari í Dan- mörku Að lifa af sem listamaður í evrópskri stórborg á fyrri hluta 20. aldarinnar var ekki sjálfgefið og kenndi fjárhagsleg neyð Júlíönu henni að vefa – hagnýt kunnátta sem átti eftir að hafa umtals- verð áhrif á listsköpun hennar. „Árið 1920 var hún hræðilega blönk, en þá áskotnaðist henni vefstóll og hún byrj- aði að vefa. Þær Anni Alberts eiga það sameiginlegt að vera báðar algjörlega ólærðar í vefnaðariðnaðinum. Þær fikruðu sig sjálfar áfram og fyrir bragð- ið urðu verk þeirra svolítið tilrauna- kennd,“ segir Hrafnhildur. „Í Danmörku er Júlíana í raun þekktari sem vefari en málari. Framan af höfðu Íslendingar hins vegar afar lít- inn áhuga á vefnaði hennar og það var mjög seint sem að Listasafn Íslands fór að kaupa vefnaðarverk eftir hana. Hún „Hún var alla tíð afskaplega tengd fæðingarstað sínum og má segja að lífsverk hennar sé óður til Eyj- anna. Hrafnhildur Schram ræðir um Júlíönu Sveins- dóttur og Ruth Smith á sýningarstjóraspjalli á Kjar- valsstöðum næstkomandi sunnudag. MynD ÞorMar Vignir gunnarSSon Sjálfsmynd (1956) Júlíana Sveinsdóttir sóttist frekar eftir því að fanga innri mann fólks frekar en ytra útlit í portrett- verkum sínum. MynD ÞorMar Vignir gunnarSSon röggvateppi (1962) Júlíana er þekktari í Danmörku fyrir veflistaverk sín en málverk. Þetta röggvateppi er í eigu Hæstaréttar Danmerkur. MynD ÞorMar Vignir gunnarSSon Kristján guðjónsson kristjan@dv.is Að stara inn í myrkrið Bandaríska rokksveitin Swans á ATP Iceland E inn áhugaverðasti hluti All Tomorrow Parties – Iceland tónlistarhátíðinnar á Ásbrú um síðastliðna helgi voru tón- leikar bandarísku rokksveit- arinnar Swans, sem lét loksins sjá sig á íslensku sviði. Sveitin spratt upp úr No Wave-tónlistarsenunni í New York á fyrri hluta níunda áratugarins og starfaði til ársins 1997. Eftir þrett- án ára hlé sneri sveitin aftur og hefur þrumað út gæðaplötu eftir gæðaplötu á undanförnum árum. Swans hafa tvisvar boðað komu sína til lands- ins, á Iceland Airwaves 2012 og ATP í fyrra, en þurft að afboða sig á síðustu stundu í bæði skiptin. Fólk virtist því vantrúa alveg þangað til sex miðaldra menn stigu á sviðið og myrkir hljómarnir óm- uðu úr mögnurunum. Michael Gira stóð fremstur í flokki með grásprengt vatnsgreitt hár sleikt aftur fyrir eyru og svartan Gibson-gítar. Tónlistin er há- vært og myrkt iðnaðarrokk, hamrað á sömu hljómunum ítrekað og þannig skapaður mónótónískur stöðugur taktur. Dósahljóð flugskýlisins, sem hafði gert Public Enemy lífið svo leitt tveimur kvöldum áður, passaði núna fullkomlega í hljóðheiminn. Hljómur- inn eins og illska á færibandi eða sál- arlaus iðnaðarvél. Ef maður hins vegar lygndi aftur augunum og leyfði díabólískum hug- víkkandi hljómunum að draga sig með fór maður að skynja dýnamíkina, eins og öldur í hafi sem skella á steinilagðri strönd. Og Gira lyftir báðum hönd- um á loft og stýrir flæðinu eins og myrkrahöfðingi, tónandi Póseidon, eða vondur iðnjöfur sem handstýrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.