Morgunblaðið - 27.12.2016, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. D E S E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 303. tölublað 104. árgangur
KOMIN HEIM
EFTIR BÚSKAP
Í FERÐATÖSKU
DÝRGRIPUR
KOMINN HEIM
HÉLDU HEIÐIN JÓL
Á VETRARSÓLSTÖÐ-
UM Í BROOKLYN
ASKUR RÍKARÐS 10 HEIÐINGJAR NEW YORK-BORGAR 12GYÐA VALTÝSDÓTTIR 30
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Þetta var mjög óþægileg lífs-
reynsla,“ segir Hilmar Jökull Stef-
ánsson, sem var um borð í flugvél
á vegum SAS-flugfélagsins, sem
lenda átti í Kaupmannahöfn í gær-
dag. Vélin átti þó ekki kost á því
og ekki heldur að lenda í Malmö í
Svíþjóð þar sem hún mætti óvið-
ráðanlegum hliðarvindi og varð
fyrir eldingu í vinstri væng.
„Næstu tvær mínútur voru hræði-
legar, vélin flaksaði fram og til
baka og hristist öll. Það fór fólk að
gráta – þetta var eins og í bíó-
mynd þar sem næsta skref var að
vélin rifni,“ bætti hann við. Vélinni
tókst þó að lenda á dönsku eynni
Bornholm rétt áður en stormurinn
gekk þar á land.
Héldu sig inni í þrjá daga
Stormurinn Urd hefur gengið af
miklum krafti yfir Skandinavíu
undanfarna daga og ágerðist í
Danmörku, Noregi og Svíþjóð í
gær. Danskir miðlar greindu frá
því að nú þegar væru 13.000 heim-
ili rafmagnslaus í suðurhluta Nor-
egs. Um miðnætti í gær mældist
vindstyrkur á sumum svæðum
Danmerkur sem fárviðri, eða yfir
32,6 m/sek. Þá var Eyrarsunds-
brúnni lokað í gærkvöldi vegna
veðurs.
Færeyjar urðu illa úti yfir
jólahátíðina en vindhviður á að-
fangadag mældust mestar um 70
metrar á sekúndu og eignatjón
varð mikið. Rafmagnið fór ítrekað
af og þurfti fólk að halda sig inni.
„Börnin eru að fara í fyrsta skipti
út úr húsi í dag í þrjá daga,“ sagði
Baldur Helgi Benjamínsson, sem
staddur er í Þórshöfn í Færeyjum.
Þá bætti hann við að hann hafi oft
upplifað vont veður á Íslandi en þó
aldrei eins hvasst og í Færeyjum.
Óveður gengur yfir nágrannalönd
Vindstyrkur fór yfir 70 m/sek. í Færeyjum Flugvél komst í háska við lend-
ingu í Malmö Fárviðri mældist á sumum stöðum í Danmörku við miðnætti
MÓveður skekur... »19
Akureyringar fögnuðu því í gær að loksins væri kominn sá snjór að hægt
væri að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli. Margir, ungir sem fullorðnir, lögðu
því leið sína í fjallið til leiks í brekkum og einnig var opið í Skarðsdal á
Siglufirði. Vegna hlýinda og snjóleysis hafa flest síðasvæði landsins verið
lokuð til þessa, en hver veit nema úr sé að rætast, þótt hlákan sem spáð er í
dag geti sett strik í reikninginn um tíma.
Að leik í skíðabrekkunni
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Opnað í Hlíðarfjalli við Akureyri í gær
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
„Þetta er auðvitað nýr veruleiki sem
við búum við. Hingað höfum við
boðið fjöldanum öllum af erlendum
gestum og þeir eru fólk eins og við.
Það þarf að koma þeim til aðstoðar
líka þegar eitthvað bjátar á. Sá tími
er liðinn að allir eru heima hjá sér
klukkan sex á aðfangadag,“ segir
Smári Sigurðsson, formaður Slysa-
varnarfélagsins Landsbjargar,
spurður um fjölgun verkefna björg-
unarsveita vegna aukins fjölda
ferðamanna yfir vetrarmánuðina og
sérstaklega í desember.
Veðrið kemur mörgum á óvart
Aftakaveður var á Hellisheiðinni
og þar í kring í fyrrinótt og voru
björgunarsveitir að störfum alla
nóttina að bjarga fólki úr bílum.
„Við erum einfaldlega með öðru-
vísi ökumenn á vegum að vetri til en
voru fyrir tuttugu árum. Nú höfum
við fleiri ökumenn sem hafa aldrei
séð þessar aðstæður áður. Þannig
að það getur þurft lítið til að stöðva
þá,“ segir Smári og vísar m.a. til
fjölgunar erlendra ferðamanna.
„Samfélagið í heild þarf að taka á
þessum nýju aðstæðum. Það er ekki
hægt að varpa ábyrgðinni á björg-
unarsveitirnar einar, sem starfrækt-
ar eru fyrst og fremst af sjálf-
boðaliðum. Það þarf fleira að koma
til og við þurfum meiri þjónustu á
vegum landsins. Þetta snýst fyrst
og fremst um vandræði í sam-
göngum. Það verður að loka vegum
tímanlega eða leggja vinnu í að
halda þeim opnum þannig að fólk
komist um þá.“
Smári viðurkennir þó að Vega-
gerðin hafi sýnt viðleitni til að tak-
ast á við nýjar aðstæður með lokun
vega en segir jafnframt að fleiri
stofnanir og aðilar þufi að átta sig á
nýjum og breyttum aðstæðum.
„Við erum að sjá einhverja við-
leitni frá t.d. Vegagerðinni sem hef-
ur brugðist við nýjum veruleika
með þeim hætti að loka heiðum sem
ekki hefði verið gert áður í skaf-
renningi.“ »8
Sjálfboðaliða-
starf beri ekki
eitt ábyrgðina
Verkefnum björgunarsveita fjölgar
yfir mánuðina vegna fleiri ferðamanna
Ætla má að formenn stjórn-
málaflokka á Alþingi talist við í
vikunni þótt ekki sé vitað til þess
að formlegar stjórnarmynd-
unarviðræður muni hefjast fyrir
áramót.
„Það er viðbúið að menn ræði
saman milli jóla og nýja ársins,“
segir Benedikt Jóhannesson, for-
maður Viðreisnar, en hann segir
jafnframt enga fundi vera ákveðna
eða tímasetningar um viðræður.
Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pí-
rata, segir aftur á móti ekkert vera
í kortunum fram að áramótum.
„Nei, það verða engar viðræður
milli jóla og nýárs,“ sagði hún
spurð um mögulegar formlegar
eða óformlegar viðræður.
Tæpir tveir mánuðir eru frá því
kosið var til Alþingis og enn er
ekki búið að mynda ríkisstjórn.
Viðbúið að formenn
ræði saman milli
jóla og nýárs
Slysavarnafélagið Landsbjörg
mun bjóða upp á lægra verð á flug-
eldum samanborið við árið í fyrra.
Upplýsingafulltrúi Landsbjargar
segir að gengisbreytingar og samn-
ingar flugeldasölunnar við birgja
sína geri þetta kleift.
Flugeldasalan hefst á morgun, en
Landsbjörg mun selja flugelda vítt
og breitt um landið. Alls eru um 98
björgunarsveitir undir heildar-
samtökunum og verða flugeldar
seldir á 111 sölustöðum í öllum
landshornum.
Félagar björgunarsveitanna hafa
unnið að því síðustu daga að koma
upp sölustöðunum, en undirbún-
ingur staðið yfir allt árið. »14
Boða lægra verð á
flugeldum en í fyrra
Flugeldar Landsbjörg býst við góðri sölu.
Í þeim hlýindum og vatnsveðri sem
spáð er í dag má búast við því að
hiti á landinu geti á einhverjum
stöðum náð allt að 12 stigum. Þetta
er mikil hitasveifla, en í gær fór
gaddurinn austur á Fagradal niður
í alls -8,8 gráður. Þarna munar um
21 stigi og eru slíkar sviptingar
ekki mjög algengar.
Spáð er að í dag komi kröpp lægð
upp að suðurströndinni sem gengur
hratt yfir landið. Lægðinni fylgir
asahláka svo jólasnjórinn, sem
margir biðu eftir, verður vænt-
anlega horfinn í kvöld.
Verulegar sviptingar verða í
veðráttu á landinu í þessari viku og
á ýmsu mun ganga. Undir lok vik-
unnar verður þó ágætt veður sunn-
anlands, kalt og léttskýjað og fínt
flugeldaveður á gamlárskvöld fari
allt að vonum. »2
Mikil hitasveifla í kortun-
um og jólasnjór hverfur
Alls 153
hringdu í Hjálp-
arsíma Rauða
krossins, 1717,
um jólin, það er
frá Þorláksmessu
til 2. í jólum.
„Ástæður sam-
tala við okkar
fólk eru flest vegna sálræns
vanda; það er þunglyndi, kvíði,
geðraskanir og félagsleg ein-
angrun,“ sagði Hjálmar Karlsson
hjá RKÍ.
Þörfin fyrir þjónustu Hjálp-
arsímans eykst, sbr. að um jólin
2012 voru samtölin 50. Ástæð-
urnar eru í stórum dráttum hinar
sömu og nú.
Margir hringdu í
Hjálparsíma RKÍ
Margir leita til
Rauða krossins