Morgunblaðið - 27.12.2016, Síða 2

Morgunblaðið - 27.12.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016 Sogavegi 3 Höfðabakka 1 Sími 555 2800 HUMAR LAXAFLÖK BLEIKJU- FLÖK HUMARSÚPA - HUMARSÚPA SKELFLETTUR HUMAR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Hlýindi, hláka og snjó tekur upp  Jólafönnin mun hverfa í rigningu í dag  Mikil hlýindi og rosaveður sem gengur norður yfir landið  Kólnar í vikunni og útlit fyrir gott flugeldaveður  „Þetta eru miklar sviptingar“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gera má ráð fyrir að allan snjó á lág- lendi taki upp í hlýindum og asa- hláku sem gengur yfir landið í dag. Að landinu stefnir nú djúp lægð úr suðri sem kemur upp að landinu fyr- ir hádegi og gengur svo norður og austur yfir landið þegar líða tekur á daginn. Reikna má með að vindur verði gjarnan 20-25 m/sek. og hitinn 5-12 stig, þar sem hlýjast verður. „Þetta eru miklar sviptingar,“ sagði Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur í samtali við Morgun- blaðið. Strax í kvöld segir hann að búast megi við að eitthvað kólni á landinu og því fylgi éljagangur víða. Allur er varinn góður í hlákunni sem spáð var. Í gær voru sendar út viðvaranir þar sem fólk var hvatt til þess að moka frá niðurföllum og kjöllurum til þess að koma í veg fyrir að flæddi inn í hús, sem valdið getur miklum skemmdum ef allt fer á versta veg. Einnig má búast við talsverðum vatnavöxtum í ám. Segja má að veðráttan í vikunni fram undan verði, ef spár ganga eft- ir, mjög kaflaskipt. Sunnanlands verður rigning framan af en þar mun svo kólna þegar líður á vikuna. Á laugardag, gamlársdag, verður víðast léttskýjað víðast hvar á sunn- an- og vestanverðu landinu svo vel ætti að viðra fyrir flugeldaspreng- ingar. Þá verður hins vegar komin allhvöss norðanátt á Norður- og Austurlandi svo tvísýnt gæti orðið um um sprengjugamnið þar. Einar Sveinbjörnsson Morgunblaðið/Eggert Regnhlíf Hún verður sannkallað þarfaþing miðað við veðurspá dagsins. Íslandsmótið í atskák fór fram í gær, annan í jólum, og tóku 74 ein- staklingar þátt. Tefldar voru níu umferðir eftir svissneska kerfinu með 10 mínútur plús 5 sekúndna umhugsunartíma og var teflt í ein- um flokki. Það var stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson sem fór með sigur af hólmi að þessu sinni en auk hans tóku stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Helgi Áss Grétarsson, Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason þátt í mótinu. Mótið fór fram úti á Granda eða nánar tiltekið í húsnæði Hvalaskoð- unarsafnsins, eða Whales of Iceland, og hófst klukkan að verða eitt eftir hádegi í gær og lauk um klukkan sex að kvöldi til. Það var því heldur betur skákveisla í boði fyrir áhuga- sama á annan í jólum enda margir af sterkustu skákmönnum landsins að etja kappi við hver annan. Þröstur meistari í atskák  Alls tóku 74 þátt í Íslandsmótinu í atskák í gær Morgunblaðið/Freyja Gylfa Atskák Mikil spenna var á mótinu en tefldar voru 9 umferðir. Konan sem lést í bílslysi við Heiðar- enda á Héraði 23. desember hét Wieslawa Bryzik. Hún var búsett á Sauðárkróki og var 61 árs að aldri. Slysið varð við brúna á Jökulsá á Brú. Wieslawa, sem var ein í bílnum, var úrskurðuð látin á vettvangi. Lést í bílslysi við Heiðarenda Engan sakaði þegar eldur kom upp í lítilli rútu við Hótel Kötlu á Höfða- brekku í Mýrdal síðdegis í gær. Eldurinn kom upp í framhluta rútunnar og barst svo aftur í bílinn sem varð alelda á skammri stundu. Talið er að eld- fimir vökvar hafi lekið úr bílvélinni og það komið atburðarásinni af stað. Lögregla rannsakar nú tildrög þessa og málið allt. „Að rúta sé að brenna eru fréttir sem hljóma háskalega og viðbrögð okk- ar voru samkvæmt því. Við vorum tíu sem fórum á vettvang á tveimur slökkvibílum og sprautuðum vatni á rútuna og það tók ekki langan tíma að ráða niðurlögum eldsins,“ segir Ágúst Bjartmarsson, varaslökkviliðsstjóri í Vík í samtali við Morgunblaðið. Rútan er gjörónýt eftir eldvoðann. „Það er ekkert eftir; grindin er á felgunum og þar sem áður voru sæti standa nú gormar út í loftið,“ segir Ágúst. Hann telur mildi að vindur stóð frá húsum á Höfðabrekku þegar eldurinn kom upp. Mannvirki voru því ekki í hættu en illa hefði getað farið ef reyk og eld hefði lagt að húsum; það er stóru hóteli og öðrum bygg- ingum. sbs@mbl.is Rúta gjörónýt eftir eldsvoða við hótel í Mýrdal Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Maðurinn sem lést í bílslysi á Holta- vörðuheiði 22. desember hét Sigþór Grétarsson. Slysið varð er jepp- lingur og fólksbíll skullu saman, en Sigþór var ökumaður fólksbílsins. Veður á heiðinni var mjög slæmt, hálka, krapi og skafrenningur. Far- þegi og ökumaður jepplingsins sluppu með lítil meiðsli. Lést í bílslysi á Holtavörðuheiði Börnin láta ekki bíða eftir sér þó svo jólahátíðin hafi verið haldin hátíðlega um helgina. Þannig var nóg að gera á fæðingardeild Landspítalans yf- ir jólin og komu 14 börn í heiminn yfir hátíðina. Hafa verður þó þann fyrirvara á að einhver kríli gætu hafa ákveðið að koma í heiminn eftir að Morgun- blaðið fór í prentun. Nóg að gera á fæðingardeild Land- spítalans yfir jólin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.