Morgunblaðið - 27.12.2016, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
ÁRAMÓTATILBOÐ!
1.178.000
Verð frá
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Á tæplega 40 starfsárum í lög-
reglunni hef ég jafnan reynt að
halda þjónustuhlutverki starfsins
á lofti. Að sekta fólk fyrir of hrað-
an akstur eða eitthvað slíkt er á
sinni hátt þjónusta við hinn al-
menna borgara. Eftir því sem hin-
um háskalegu í umferðinni fækk-
ar eykst öryggi annarra,“ segir
Theodór Kr. Þórðarson, fráfar-
andi yfirlögregluþjónn í Borgar-
nesi. Hann á að baki langan feril í
lögreglunni en er nú að láta af
störfum vegna aldurs. Fer um
áramótin í leyfi – en mætir ekki
aftur til starfa þótt formleg
starfslok séu ekki fyrr en í vor.
Lengi var lögregla í Borgar-
nesi sjálfstætt embætti sem þjón-
aði Borgarfirði en síðar var Döl-
unum bætt við varðsvæðið. Með
sameiningu embætta í heilum
landshluta varð svo til Lögreglan
á Vesturlandi í byrjun árs 2015.
Fólk í breyskleika sínum
„Lögreglustarfið hefur
breyst mikið frá því ég byrjaði,
þetta er allt annað samfélag en
var. Tækjabúnaður og öll aðstaða
er betri, en viðfangsefnin eru í
sjálfu sér alltaf hin sömu. Oft þarf
að sinna fólki í breyskleika sínum
og koma til aðstoðar,“ segir
Theodór og heldur áfram.
„Hér Borgarnesi er umferð-
areftirlit svo alltaf stór þáttur í
lögreglustarfinu. Hringvegurinn
liggur hér í gegn og það kallar á
aðstoð og eftirlit. Sem hluti af
forvörnum í umferðarmálunum
árið 1985 fórum við skipulega að
reyna að halda lausagöngu búfjár
í skefjum, sérstaklega voru hross-
in hættuleg á vegunum í myrkr-
inu og urðu oft fyrir bílum. Vöktu
lögreglumenn athygli á vanda-
málinu með því að smala um 200
útigangshrossum í sínum frítíma
og hnýta endurskinsmerki í tagl
og fax. Málið vatt uppá sig og í
framhaldinu tók Vegagerðin við
sér, farið var að girða meðfram
vegum og halda þeim girðingum
við. Þetta hefur verið viðvarandi
áherslumál hjá okkur í langan
tíma og það hefur svo sannarlega
skilað sér að halda búfénu frá
vegsvæðunum.“
Lausatök eru aldrei góð
Sameining lögregluliða á
Vesturlandi úr þremur í eitt segir
Theodór hafa verið gott mál.
Þannig hafi bæði náðst fram hag-
kvæmni og styrkurinn orðið
meiri. „Fyrst eftir sameininguna í
byrjun árs 2015 byrjuðum við
með sólarhringsvakt sem við
þurftum svo að leggja af, en nú
standa vonir til að hægt verði að
taka þráðinn upp að nýju. Það er
mikilvægt; lögregla þarf á öllum
tíma að vera í stakk búin til að
stíga inn í erfiðar aðstæður og
bjarga málunum þegar illa er
komið. Lausatökin í lögreglu-
störfum eru aldrei góð,“ segir
Theodór sem heilt yfir finnst árin
39 ár í lögreglunni hafa verið
góður tími sem var fljótur að líða.
„Auðvitað situr sitthvað í
manni, svo sem að koma að slys-
um þar sem börn eiga í hlut.
Smátt og smátt kom maður sér
upp ákveðnum skráp gagnvart
þessu svo jákvæðu málin lifa frek-
ar en önnur í minningunni. Mér
er til dæmis alltaf minnisstætt
þegar ég kom til aðstoðar tveim-
ur konum með ungabarn, hér
frammi í Melasveit, sem í glóru-
lausum byl sátu fastar í bíl. Ég
náði að brjótast til kvennanna
sem fylgdu mér og sjálfur stakk
ég litla barninu inn á mig og bar
þannig heim til næsta bæjar – rétt
eins og ég væri kengúra með
unga í poka á maganum,“ segir
Theodór sem finnst tengsl við
yngstu borgarana ánægjulegur
þáttur í starfinu.
Sáttur við allt og alla
„Í haust var ég beðinn um að
fara í heimsókn í leikskólann á
Bifröst í Norðurárdal sem var
sjálfsagt. Eftir að hafa fært börn-
unum endurskinsmerki og rætt
við þau um umferðarreglurnar og
þegar komið var að því að kveðja,
þá spurði ég hvort þau hefðu ein-
hverjar spurningar. Einn dreng-
urinn rétti þá upp hönd og sagði:
„Teddi lögga, má ég knúsa þig?“
Það var þá víst svokölluð vinavika
í leikskólanum og því endaði
heimsóknin með hópknúsi. Á leið-
inni heim þá fannst mér að þetta
væru góð sögulok; að fá knús frá
yngsta fólkinu á síðustu metr-
unum í starfi sem ég kveð – sáttur
við allt og alla.“
Theódór K. Þórðarson lætur af störfum hjá lögreglunni á Vesturlandi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lögregla Hef reynt að halda þjónustuhlutverki starfsins á lofti, segir Theódór fráfarandi yfirlögregluþjónn.
Má ég knúsa Tedda?
Theodór Kr. Þórðarson er
fæddur 1952. Hann hóf störf í
lögreglunni árið 1977 og var
yfirlögregluþjónn frá 2004.
Hann hefur verið fréttaritari
og ljósmyndari fyrir Morgun-
blaðið frá 1985. Tekið þátt í
leiklistarstarfi og margvígs-
legum félagsmálum.
Hver er hann?
Töluverð umferð hefur verið um
Keflavíkurflugvöll yfir jólahátíðina
en alls voru komur og brottfarir
172 frá aðfangadegi til miðnættis á
annan í jólum. Áætla má að far-
þegar sem farið hafa um Keflavík-
urflugvöll á þessum tíma séu um
30 þúsund. Á sama tíma fyrir fjór-
um árum voru ekki nema 40 brott-
farir og komur. Samkvæmt Isavia
hafa aldrei farið fleiri farþegar um
Keflavíkurflugvöll í desember og í
ár.
Farþegum sem fóru um Kefla-
víkurflugvöll frá 1. til 20. desem-
ber fjölgaði um 63,9 prósent milli
ára samanborið við 39,8 prósent
fjölgun farþega þegar horft er á
allt árið. Þetta þýðir að flugvöll-
urinn er opinn alla daga ársins og
því margir þurft að standa vaktina
um jólahátíðina.
Auk starfsmanna í verslunum
eru auðvitað starfsmenn í far-
þegaþjónustu, öryggisleit, tolli,
lögreglu, innritun, flugafgreiðslu,
snjómokstri, björgunar- og
slökkviþjónustu, flugumferðar-
stjórn, bílastæðaþjónustu, ræst-
ingu og fleiri störfum á vellinum.
Þar sem þetta eru margir
rekstraraðilar er erfitt að segja
til um hversu margir eru við störf
á hverjum tíma en það er þón
okkuð, þar sem almennt eru það
frekar mörg störf sem þarf til
þess að halda flugvellinum í
gangi.
Rúmlega 30.000 á 3 dögum
Aldrei fleiri farþegar farið um Keflavíkurflugvöll í desember en í ár
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ferðalög Jólahelgin var annasöm á Keflavíkurflugvelli í ár.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Jólaverslunin gekk vel síðustu dag-
ana fyrir jól, að sögn Andrésar
Magnússonar, framkvæmdastjóra
Samtaka verslunar og þjónustu.
Áhyggjur voru meðal kaupmanna
um að jólaverslunin myndi þjappast
saman á síðustu dagana fyrir jól í
ljósi þess að sú breyting var gerð á
árinu að nýtt greiðslukortatímabil
hófst 22. desember hjá mörgum
korthöfum. Upphaf nýs korta-
tímabils var því ekki fært fram til
10.-12. desember líkt og venja hefur
verið á þessum mikla verslunartíma.
„Við báðum Reiknistofu bankanna
að fara ofan í saumana á þessu og
þeir fullvissuðu okkur um það að
kerfið myndi ráða við þetta, sem var
raunin. Ég hef ekki heyrt af neinum
hnökrum í kerfinu þessa allra síð-
ustu daga,“ segir hann.
Stærri hluti verlslunar erlendis
Spurður um hvernig verslunin
hafi gengið almennt, segir Andrés að
verslunin haldist í hendur við kaup-
mátt. Breyting sé þó í umhverfi
verslunarinnar frá fyrra ári.
„Netverslun, bæði innlend og er-
lend, tekur miklu stærri hluta af
kökunni núna. Kreditkortatölur fyr-
ir október og nóvember sýna líka að
mun stærri hluti verslunarinnar fyr-
ir þessi jól hefur farið fram í útlönd-
um,“ segir Andrés, en hann segir að
skýringin gæti falist í auknu fram-
boði flugfara til og frá landinu.
Verslunardagurinn „Black
Friday“ hefur einnig sett mark sitt á
jólaverslunina að sögn Andrésar og
dreifist hún því enn frekar á októ-
ber- og nóvembermánuð, saman-
borið við fyrri ár.
Afnám tolla lækkar verð
Andrés segir að merkja megi
lækkun á vöruverði vegna afnáms
tolla á fatnaði og skóm síðustu ára-
mót. Lækkunin hafi haft áhrif á jóla-
verslunina.
„Allar mælingar sem við höfum
gert sýna það að það hefur orðið
eðlileg verðlækkun á þessum vörum
þegar allar breytur eru teknar inn í
myndina. Það má ekki gleyma því að
innlendar kostnaðarhækkanir hafa
verið gífurlegar á þessu ári og launa-
vísitalan hefur hækkað á tíu til tólf
mánuðum um tíu prósent. Það má
ekki gleyma því að þessir hlutir hafa
bein áhrif á verð á vörum og þjón-
ustu,“ segir hann.
Jólaverslunin
gekk áfallalaust
Breytt kortatímabil hafði ekki áhrif
Morgunblaðið/Eggert
Verslun Aukinn kaupmáttur skilar
aukinni verslun að sögn Andrésar.
Sýningin Eld-
heimar í Vest-
mannaeyjum
eru meðal
áhugaverðustu
uppgötvana í
ferðaþjónust-
unni á árinu
2016, skv. um-
fjöllun breska
blaðsins The
Guardian. Einn-
ig eru tilefndir staðir í Taílandi,
Kenya, Kanada, Kína, Spáni og
Portúgal.
Í umsögn kemur fram að Eld-
heimar hafi allt sem gestir geti
óskað sér á safni. Sagan af gosinu
1973, uppgröftur húsa og marg-
miðlunartækni spili vel saman.
Eldheimar vekja
áhuga The Guardian
Eldheimar Þykja
einstakir í sinni röð.