Morgunblaðið - 27.12.2016, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016
Líta má svo á að Bretland sé öfl-ugasta ríki ESB. Er þá horft á
heildarmyndina, efnahaginn, al-
þjóðlegt bankakerfi þess, hern-
aðarmátt, þétt tengsl við Banda-
ríkin og
samveldislönd og
áhrifin sem felast í
því að vera upp-
sprettuland tungu-
málsins sem heim-
urinn brúkar helst
sameiginlega, ekki
síst í alþjóðlegum
viðskiptum.
Því er undur að sjá hversugrímulaust Bretum skal refs-
að fyrir það eitt að vilja hverfa út
úr þessum „félagsskap fullvalda
ríkja“.
Sú mynd má vera mikill skólifyrir „örríkin“ eins og Bruss-
elveröldin uppnefnir þau.
Viðskiptablaðið segir frá eftir-tektarverðum sjónarmiðum:
Mervyn King, fyrrum seðlabanka-
stjóri Bretlands, telur ákveðin
tækifæri felast í útgöngu Breta úr
Evrópusambandinu. Þetta sagði
King í útvarpsviðtali á BBC í
morgun.
Hann sagði að Brexit væri ekki„endalok heimsins“ fyrir
Breta þótt umskiptin yrðu ekki
auðveld enda áskoranirnar marg-
ar. Raunveruleg tækifæri fælust í
því að standa fyrir utan Evrópu-
sambandið. Í því sambandi nefndi
hann sérstaklega umbætur í land-
búnaðarkerfinu og aukið samstarf
við Írland.
Að standa fyrir utan frekar mis-heppnað Evrópusamband,
sérstaklega í efnahagslegum skiln-
ingi, veitir okkur tækifæri en veld-
ur okkur auðvitað líka pólitískum
erfiðleikum,“ sagði King.
Mervyn King
Skjóta öðrum
skelk í bringu
STAKSTEINAR
Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is
Baðvörur
fyrir hótel, gistiheimili,
dvalarheimili, veitingahús,
veisluþjónustur,
heilsugæslustofnanir o.fl.
Veður víða um heim 26.12., kl. 18.00
Reykjavík -1 snjókoma
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri -1 skýjað
Nuuk -25 heiðskírt
Þórshöfn 5 léttskýjað
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 skúrir
Stokkhólmur 4 súld
Helsinki 3 heiðskírt
Lúxemborg 5 léttskýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 6 skúrir
London 7 heiðskírt
París 9 léttskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 6 skúrir
Berlín 7 léttskýjað
Vín 9 skýjað
Moskva -1 alskýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 15 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 16 heiðskírt
Róm 12 heiðskírt
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -11 snjókoma
Montreal -12 alskýjað
New York 0 skýjað
Chicago 9 skýjað
Orlando 25 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:36
ÍSAFJÖRÐUR 12:09 15:00
SIGLUFJÖRÐUR 11:53 14:41
DJÚPIVOGUR 11:02 14:56
„Aðgerðirnar gengu vel, því bæði
þurfum við að koma fólki til byggða
og færa bíla af veginum til að fyrir-
byggja óhöpp,“ segir Tryggvi Hjört-
ur Oddsson hjá svæðisstjórn björg-
unarsveitanna á
Suðurlandi. Af-
takaveður var á
Hellisheiði og þar
í kring í fyrrinótt
svo nokkrir bílar
festust og í
Þrengslunum
varð tveggja bíla
árekstur. Engan
sakaði þar.
Í ljósi að-
stæðna þótti rétt
að loka leiðinni úr höfuðborginni og
austur fyrir fjallð. Frá því um mið-
nætti og fram undir morgun voru
björgunarsveitarmenn við lok-
unarslá sem í Reykjavík er á Norð-
lingaholti – og að austan var Hellis-
heiðinni lokað við Hveragerði og
Þrengslunum í Skógarhlíð, nærri
Þorlákshöfn. Nærri 25 björgunar-
sveitarmenn komu að þessu verkefni
á vakt sem var bæði löng og ströng.
„Lokun á veginum eins og æ oftar
hefur verið gripið til síðustu árin,
þegar veður er slæmt og færð að
spillast, sannar gildi sitt,“ segir
Tryggvi Hjörtur. „Það fólk sem við
fórum til að aðstoða á fjallinu og bíl-
arnir sem draga þurfti burt náðu
þangað áður en veginum var lokað.
Hefði ekki komið til hennar hefði
sennilega talsverður fjöldi komist í
vandræði og þurft að ræsa út meiri
mannskap í björgunaraðgerðir. Þá
er samkomulag milli björgunar-
sveita og Vegagerðar um að vera á
vakt við lokunarpóstana og það skil-
ar sveitunum tekjum. Ávinningurinn
af því að loka vegum við verstu að-
stæður er því margþættur.“
sbs@mbl.is
Lokun á vegi sannar gildi sitt
Björgunaraðgerðir að næturlagi á Hellisheiði og í Þrengslum Aftakaveður
og ófærð Þrír lokunarpóstar voru mannaðir að ósk Vegagerðarinnar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Stopp Hingað og ekki lengra í Norðlingaholti við Reykjavík. Lokun fyrir vegi.
Tryggvi Hjörtur
Oddsson
„Það var krapasull á veginum og
þannig missti ég stjórnina á bílnum.
Sá hvað verða vildi og því sveigði ég
út af veginum og
að fjallshlíðinni.
Þar lenti bíllinn á
grjóti, tók svo
snúning, endaði á
hvolfi og þannig
sátum við í loft-
inu, hangandi í
beltunum,“ segir
Jón Gunnarsson
alþingismaður.
Þau Jón og
Halla Ragnars-
dóttir voru í Almenningum, hættu-
legum vegarkafla skammt vestan við
Strákagöng þegar framangreint
óhapp varð um eftirmiðdaginn á jóla-
dag. Þau voru þá á leiðinni í fjöl-
skyldu- og jólaheimsókn til Siglu-
fjarðar og voru á litlum Toyota-
jeppa. Sá er mikið skemmdur eftir
óhappið; meðal annars dældaður á
húsi og þaki. „Ég var á lítilli ferð og
bíllinn á góðum dekkjum. Það bjarg-
aði miklu en auðvitað skiptir mestu
að við erum ómeidd,“ sagði Jón við
Morgunblaðið. sbs@mbl.is
Missti stjórn í bílnum
í krapa á veginum
Endaði á hvolfi í Almenningunum
Velta Bíllinn er talsvert skemmdur.
Jón
Gunnarsson