Morgunblaðið - 27.12.2016, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Sífellt fleiri í Norður-Ameríku og Evrópu takaupp heiðna siði sem byggjaá ásatrú. Oftast eru þetta
litlir hópar fólks sem búa í raun til
sín eigin trúarbrögð byggt á því
sem þau lesa í Snorra-Eddu,
Heimskringlu og víðar. Hver hópur
túlkar hlutina á sinn veg og fyllir
upp í heimildaskarðið með sínum
eigin hætti.
Einn af þessum hópum kallar
sig New York City Heathens eða
Heiðingjar New York-borgar. Hóp-
urinn hittist mánaðarlega til að
ræða heiðna siði og norræn goð, en
hann hittist einnig yfir hátíðir og er
jólablótið þeirra stærst.
Hópurinn samanstendur af
litlum kjarna fólks sem býður vin-
um og öðru ásatrúarfólki að gleðj-
ast með sér. Blaðamaður flokkast
sem vinur og fékk að njóta þessara
sérstöku hátíðarhalda þar sem nor-
ræn fortíð tekur yfir bandaríska nú-
tíð eina langa nótt.
Að festa hendur
á orku goðanna
„Við byrjuðum hátíðarhöldin í
dag kl. 16.30 við sólarlag og þau
munu standa fram á morgun þegar
sól rís á ný,“ útskýrir Ethan Stark,
en hann ásamt Eriku Palmer, Paul
Mercurio og Ryan Androsiglio,
myndar kjarna hópsins. Ethan er í
lopapeysu með Þórshamarinn
Mjölni og galdrastafinn Ægishjálm
um hálsinn og hefur látið húðflúra
galdrastafinn Vegvísi á upphand-
legginn.
„Með þessu jólablóti viljum við
fagna komu ljóssins á þessum
dimmasta degi ársins. Við kveikjum
á þrettán kertum sem tákna þær 13
nætur sem jólin standa. Og í hvert
skipti sem við blótum í kvöld og í
nótt kveikjum við á nýju kerti. Við
byrjum á að blóta Frigg sem er
gyðja verndar og fjölskyldunnar til
að fá viðeigandi andrúmsloft.“
Ethan segir að það sé mjög
misjafnt í hvaða ljósi hvert og eitt
þeirra sjái norrænu goðin og gyðj-
urnar og hvað þau fái út úr trú-
ariðkuninni.
„Sum okkar trúa að goðin séu
til í annarri vídd, sum okkar sjá
erkitýpur sem standa fyrir viss gildi
sem við viljum tileinka okkur, en
Jólablót í Brooklyn
Í gamalli blokk í Brooklyn safnaðist fólk saman á vetrarsólstöðum og hélt heiðin
jól. Þau kveiktu á þrettán kertum einu af öðru í gegnum nóttina og vöktu fram að
sólarupprás. Meðan á þessum löngu hátíðarhöldum stóð var étið, sungið, kveðið,
blótað og sest að sumbli.
Óðinn Ethan hefur fundið sig í ásatrúnni, leitar visku með Óðin sér við hlið.
Hundar eru yfirleitt ekki í essinu
sínu um áramótin þegar mannfólkið
fagnar nýju ári með flugeldum eins
og enginn væri morgundagurinn.
Næmni fyrir hljóðum er algengasta
vandamál hunda og því er ekki bara
gamlárskvöld martröð heldur líka
dagarnir á undan, því fólk tekur
gjarnan forskot á sæluna og byrjar
að sprengja strax eftir jólin og held-
ur jafnvel áfram fyrstu dagana í jan-
úar. Á vefsíðunni hundasamfelagid.is
er hundaeigendum gefin nokkur góð
ráð til að gera ferfætlingunum lífið
bærilegra á þessum erfiðu tímum.
Raunar er þeim ráðlagt að nýta
allt árið í þjálfun, t.d. með því að
spila flugeldahljóð smám saman
hærra og hærra og jafnframt venja
hundinn við alls kyns hljóð og gefa
honum nammi strax eftir að hljóðin
byrja. Best er að fara með hundinn á
nýja staði og tengja upplifunina
nammi og vellíðan.
Þessa dagana ættu hundaeig-
endur að vera tilbúnir með box af
þurru nammi og setja eina lúku á
gólfið um leið og flugeldur springur.
Hundarnir kætast mjög þegar þurrt
nammið skýst um öll gólf og með
tímanum fara þeir að búast við
nammi þegar þeir heyra sprengju-
hljóð og hætta að vera hræddir. Að-
alatriðið er að gefa hundunum
skemmtileg verkefni meðan á lát-
unum stendur.
Á vefsíðunni er bent á róandi lykt-
arhormón og vesti sem hjálpar
hundum að slaka á í erfiðum að-
stæðum.
Ef þess er nokkur kostur ættu
hundaeigendur ekki að skilja hund-
inn eftir einan um áramótin. Heima-
við er mikilvægt að hafa glugga lok-
aða og hurðir læstar. Ef mikið ráp er
á fólki er best að setja upp hlið til
að varna hundinum útgöngu eða
hafa hann fastan í taumi. Best er að
gefa hundinum vel að borða og
gæta þess að hann sé búinn að
pissa og kúka áður en lætin byrja.
Hundar vilja vera hjá eigendum sín-
um þegar þeir eru hræddir og því er
ekki ráðlegt að loka hann einan inni
í herbergi. Hins vegar getur hann
verið inni í herbergi ef heimilisfólk
skiptist á að vera hjá honum. Þar
þyrftu þá helst að vera þykk glugga-
tjöld, ljósin kveikt og tónlist.
Vefsíðan www.hundasamfelagid.is
Morgunblaðið/RAX
Næmni fyrir hljóðum Hundar þurfa sérstaka umönnun á gamlárskvöld.
Hillir undir slæma hundadaga
Þótt jólasveinarnir fari óðum að
halda til síns heima, eru flestir þeirra
enn á kreiki, hressir og sprækir. Ekki
er ólíklegt einhverjir verði á stjái í
Öskjuhlíðinni í dag, hugsanlega eftir
að skyggja tekur. Krakkarnir í Ferða-
félagi barnanna sem kl. 17.30 í dag,
27. desember, leggja upp í blysför frá
bílastæðinu við Nauthól í Nauthóls-
vík, rekast mögulega á þá á göngu
sinni um dimma skógarstíga Öskju-
hlíðar.
Allir sem vilja, fá blys og svo er
gengið fylktu liði um hlíðina. Söngur
og gleði ræður ríkjum eins og ævin-
lega í þessum skemmtilega félags-
skap. Þátttaka ókeypis og allir vel-
komnir. Ekkert að panta, bara mæta,
vel búin og koma með góða skapið.
Helsta markmið Ferðafélags
barnanna er að hvetja börn og for-
eldra til útiveru og samveru í náttúru
landsins og fá þannig öll börn til að
upplifa sanna gleði í náttúrunni og
upplifa leyndardóma umhverfisins.
Ferðir Ferðafélags barnanna eru
farnar á forsendum barna og sniðnar
að þörfum þeirra.
Ferðafélag barnanna
Blysför um dimma skógarstíga
og jólasveinar á kreiki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ganga Allir sem vilja fá blys og síðan verður gengið fylktu liði um hlíðina.
Skannaðu kóðann
til að lesa