Morgunblaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.12.2016, Blaðsíða 13
Blóthornið Ryan hefur blóthornið og á því orðið. Paul hlustar og bíður eftir því að fá sjálfur hornið í hendur. það má segja að við séum öll að reyna að festa hendur á vissri orku sem goðin búa yfir.“ Ásatrú og kynþáttaerjur Þá er komið að borðhaldinu þar sem borinn er á borð jólagöltur og blótað til heilla Freys, árs og friðar. Ryan er virðulegur er hann drekk- ur heill Freys, klæddur mið- aldafatnaði og með handgerða leð- urmittistösku sem hann keypti á East Coast Thing [sama orð og þing á íslensku], en það er hátíð banda- rísks ásatrúarfólks sem haldin er árlega í Pennsylvaníu. Umræðuefnið við matarborðið er trúarbrögðin og misjafnar áherslur fólks. Þessi hópur tilheyrir landsamtökum heiðingja, The Troth, sem voru stofnuð út frá öðr- um landsamtökum Asatru Folk As- sembly, sem þykja leggja of mikla áherslu á germanskan uppruna liðs- manna sinna og hafa rasískar skoð- anir. Erika segir m.a. frá því hvern- ig vinkonu hennar sem er blökku- kona hafi verið úthúðað fyrir að til- biðja Freyju, þar sem hún hafi ekki réttan hörundslit. Ethan tekur und- ir hversu fáránlegt það sé að kyn- þáttur eða uppruni fólks hafi nokk- uð með trúarbrögð að gera því það að finna sig í trúarbrögðum og að tengja við þau sé andleg upplifun. Paul bendir einnig á að þótt hann tilbiðji ekki Loka þá sé hann sem samkynhneigður maður mjög þakk- látur tilvist hans innan ásatrúar- innar fyrir það hvernig hann beygi skilgreininguna á kynjunum og hlutverkum þeirra í mörgum af sín- um ótrúlegu uppátækjum. „Loki var ímyndaði vinur minn“ Til að sofna ekki eftir þunga og mikla máltíð stingur Paul upp á því að hópurinn fari út í Prospect Park- garðinn að syngja fyrir landvætt- irnar, þá anda sem búa í náttúrunni. „Við göngum um og vekjum upp landvættirnar, gleðjum þær með söng og smá fórnum um leið og við heiðrum guðina okkar. Við syngjum hefðbunda jólasöngva með engu kristilegu innihaldi,“ útskýrir Paul. Á meðan hinir syngja verður Ethan eftir inni og fer að raða kert- um í hring á sófaborðið. „Þetta er okkar útgáfa af eldstæði, sem við getum setið í kringum á blótinu,“ segir hann og setur grænt epli með kerti í á hvert borðshorn. „Ég sá þau í íslenska Ásatrúarfélaginu raða svona eplum á greinar við eitt- hvert tækifæri og fannst það koma mjög vel út, svo ég ætla að stela hugmyndinni,“ segir Ethan og hlær. Þegar söngfólkið kemur aftur inn er byrjað að undirbúa Lokablót. Erika tilbiður Loka og stjórnar því blótinu honum til heilla. Faðir Eriku er ásatrúamaður og hún ólst upp við sögur af goðunum. „Ég var utanveltu í skóla líkt og Loki var í samfélagi Ásanna og hann varð snemma ímyndaði vinur minn. Þeg- ar fólk setur út á Loka ver ég hann alltaf því hann kom mér í gegnum æskuárin. Í dag er ég með altari heima hjá mér þar sem ég bið til hans,“ segir Erika, sem byrjar að láta blóthorn ganga hringinn þar sem hver og einn segir nokkur orð og drekkur svo heill Loka. Rúnalestur með hjálp Óðins Síðan skal drukkin heill sjálfs alföðurins Óðins og Ethan stjórnar því. „Óðinn er guðinn minn, en ég myndi ekki segja að ég tilbæði hann. Við eigum frekar í jafningja- sambandi og hann er mér fyrir- mynd sem ferðalangur í leit að visk- unni,“ útskýrir Ethan sem fyrst fékk áhuga á ásatrú eftir að hafa rannsakað áhrifavalda rithöfundar- ins Tolkiens og fann sig þar strax. Ethan hefur samið texta um Óðin sem hann kveður undir eigin trommuslætti. „Við vitum ekki hvað forfeður- nir voru að kveða. Við verðum að búa til okkar eigin kveðskap til að fylla upp í götin, eitthvað sem okkur finnst viðeigandi. Það er eins og Norðmaðurinn Einar Selvik sem semur tónlist eins og hann ímyndar sér að hún hafi verið og notar t.d. bæði Völuspá og Hávamál sem texta,“ segir Ethan, sem næst fer að lesa í rúnir sem hann hefur sjálf- ur búið til. Áður en hann tekur til við að segja félögum sínum hvað næsta ár muni bera í skauti sér, stingur hann sig í vísfingurinn og smyr blóðdropa á augnlokin og seg- ir á þessari fínu íslensku: „Óðinn, ljáðu mér auga, svo ég geti lesið þessar rúnir af nákvæmni og skýr- leika.“ Að rúnalestri loknum á „sumb- el“ að taka við þar sem heimalag- aður mjöður og önnur viðeigandi drykkjarföng verða kneyfuð og sagðar sögur nóttina á enda. Blaða- maður fær ekki annað skilið en að fólk ætli að setjast að sumbli, þakk- ar fyrir góða veislu og fer út í dimma nóttina með ljós í hjarta og ómeltan gölt í maga. Flöskur Margur úrvalsmjöðurinn verður í boði þegar sest verður að sumbli. Skál Erika heldur á blóthorninu, því nú skal drukkin heill goðsins hennar, Loka. Rúnir Skorið út í rúnir og haft til taks. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 Sjálfboðaliðasamtökin Green Mess- engers, eða Grænu sendiboðarnir, standa fyrir sýningu heimildarmynd- arinnar REUSE kl. 18.30 í kvöld, 27. desember, í Farfuglaheimilinu í Laug- ardal – City Hostel. Í myndinni er fylgst með ferðalagi umhverfisvernd- arsinnans Alex Eaves um 48 ríki Bandaríkjanna í leit að lausnum. Þær blasa hvarvetna við honum, ekki að- eins varanlegar heldur líka auðveldar og skemmtilegar. Neysla hefur verið þema heim- ildamyndanna sem Grænu sendiboð- arnir hafa staðið fyrir í desember- mánuði. Markmiðið er að vekja áhorfendur til umhugsunar um neyslu sína á öllum sviðum og áhrif hennar á umhverfið og samfélagið í víðu samhengi. Boðskapurinn er að öllum ætti að vera í lófa lagið að draga úr óhóflegri sóun og endurnýta hlutina. Græni skjárinn – Heimildar- mynd um endurnýtingu Endurnýting Allir geta dregið úr óhóflegri sóun með því að endurnýta. Ferðalag í leit að lausnum Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.