Morgunblaðið - 27.12.2016, Síða 13
Blóthornið Ryan hefur blóthornið og á því orðið. Paul hlustar og bíður eftir því að fá sjálfur hornið í hendur.
það má segja að við séum öll að
reyna að festa hendur á vissri orku
sem goðin búa yfir.“
Ásatrú og kynþáttaerjur
Þá er komið að borðhaldinu þar
sem borinn er á borð jólagöltur og
blótað til heilla Freys, árs og friðar.
Ryan er virðulegur er hann drekk-
ur heill Freys, klæddur mið-
aldafatnaði og með handgerða leð-
urmittistösku sem hann keypti á
East Coast Thing [sama orð og þing
á íslensku], en það er hátíð banda-
rísks ásatrúarfólks sem haldin er
árlega í Pennsylvaníu.
Umræðuefnið við matarborðið
er trúarbrögðin og misjafnar
áherslur fólks. Þessi hópur tilheyrir
landsamtökum heiðingja, The
Troth, sem voru stofnuð út frá öðr-
um landsamtökum Asatru Folk As-
sembly, sem þykja leggja of mikla
áherslu á germanskan uppruna liðs-
manna sinna og hafa rasískar skoð-
anir.
Erika segir m.a. frá því hvern-
ig vinkonu hennar sem er blökku-
kona hafi verið úthúðað fyrir að til-
biðja Freyju, þar sem hún hafi ekki
réttan hörundslit. Ethan tekur und-
ir hversu fáránlegt það sé að kyn-
þáttur eða uppruni fólks hafi nokk-
uð með trúarbrögð að gera því það
að finna sig í trúarbrögðum og að
tengja við þau sé andleg upplifun.
Paul bendir einnig á að þótt hann
tilbiðji ekki Loka þá sé hann sem
samkynhneigður maður mjög þakk-
látur tilvist hans innan ásatrúar-
innar fyrir það hvernig hann beygi
skilgreininguna á kynjunum og
hlutverkum þeirra í mörgum af sín-
um ótrúlegu uppátækjum.
„Loki var ímyndaði
vinur minn“
Til að sofna ekki eftir þunga og
mikla máltíð stingur Paul upp á því
að hópurinn fari út í Prospect Park-
garðinn að syngja fyrir landvætt-
irnar, þá anda sem búa í náttúrunni.
„Við göngum um og vekjum
upp landvættirnar, gleðjum þær
með söng og smá fórnum um leið og
við heiðrum guðina okkar. Við
syngjum hefðbunda jólasöngva með
engu kristilegu innihaldi,“ útskýrir
Paul.
Á meðan hinir syngja verður
Ethan eftir inni og fer að raða kert-
um í hring á sófaborðið. „Þetta er
okkar útgáfa af eldstæði, sem við
getum setið í kringum á blótinu,“
segir hann og setur grænt epli með
kerti í á hvert borðshorn. „Ég sá
þau í íslenska Ásatrúarfélaginu
raða svona eplum á greinar við eitt-
hvert tækifæri og fannst það koma
mjög vel út, svo ég ætla að stela
hugmyndinni,“ segir Ethan og
hlær.
Þegar söngfólkið kemur aftur
inn er byrjað að undirbúa Lokablót.
Erika tilbiður Loka og stjórnar því
blótinu honum til heilla. Faðir
Eriku er ásatrúamaður og hún ólst
upp við sögur af goðunum. „Ég var
utanveltu í skóla líkt og Loki var í
samfélagi Ásanna og hann varð
snemma ímyndaði vinur minn. Þeg-
ar fólk setur út á Loka ver ég hann
alltaf því hann kom mér í gegnum
æskuárin. Í dag er ég með altari
heima hjá mér þar sem ég bið til
hans,“ segir Erika, sem byrjar að
láta blóthorn ganga hringinn þar
sem hver og einn segir nokkur orð
og drekkur svo heill Loka.
Rúnalestur með hjálp Óðins
Síðan skal drukkin heill sjálfs
alföðurins Óðins og Ethan stjórnar
því. „Óðinn er guðinn minn, en ég
myndi ekki segja að ég tilbæði
hann. Við eigum frekar í jafningja-
sambandi og hann er mér fyrir-
mynd sem ferðalangur í leit að visk-
unni,“ útskýrir Ethan sem fyrst
fékk áhuga á ásatrú eftir að hafa
rannsakað áhrifavalda rithöfundar-
ins Tolkiens og fann sig þar strax.
Ethan hefur samið texta um
Óðin sem hann kveður undir eigin
trommuslætti.
„Við vitum ekki hvað forfeður-
nir voru að kveða. Við verðum að
búa til okkar eigin kveðskap til að
fylla upp í götin, eitthvað sem okkur
finnst viðeigandi. Það er eins og
Norðmaðurinn Einar Selvik sem
semur tónlist eins og hann ímyndar
sér að hún hafi verið og notar t.d.
bæði Völuspá og Hávamál sem
texta,“ segir Ethan, sem næst fer
að lesa í rúnir sem hann hefur sjálf-
ur búið til. Áður en hann tekur til
við að segja félögum sínum hvað
næsta ár muni bera í skauti sér,
stingur hann sig í vísfingurinn og
smyr blóðdropa á augnlokin og seg-
ir á þessari fínu íslensku: „Óðinn,
ljáðu mér auga, svo ég geti lesið
þessar rúnir af nákvæmni og skýr-
leika.“
Að rúnalestri loknum á „sumb-
el“ að taka við þar sem heimalag-
aður mjöður og önnur viðeigandi
drykkjarföng verða kneyfuð og
sagðar sögur nóttina á enda. Blaða-
maður fær ekki annað skilið en að
fólk ætli að setjast að sumbli, þakk-
ar fyrir góða veislu og fer út í
dimma nóttina með ljós í hjarta og
ómeltan gölt í maga.
Flöskur Margur úrvalsmjöðurinn verður í boði þegar sest verður að sumbli.
Skál Erika heldur á blóthorninu,
því nú skal drukkin heill goðsins
hennar, Loka.
Rúnir Skorið út í rúnir og haft til taks.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
Sjálfboðaliðasamtökin Green Mess-
engers, eða Grænu sendiboðarnir,
standa fyrir sýningu heimildarmynd-
arinnar REUSE kl. 18.30 í kvöld, 27.
desember, í Farfuglaheimilinu í Laug-
ardal – City Hostel. Í myndinni er
fylgst með ferðalagi umhverfisvernd-
arsinnans Alex Eaves um 48 ríki
Bandaríkjanna í leit að lausnum. Þær
blasa hvarvetna við honum, ekki að-
eins varanlegar heldur líka auðveldar
og skemmtilegar.
Neysla hefur verið þema heim-
ildamyndanna sem Grænu sendiboð-
arnir hafa staðið fyrir í desember-
mánuði. Markmiðið er að vekja
áhorfendur til umhugsunar um
neyslu sína á öllum sviðum og áhrif
hennar á umhverfið og samfélagið í
víðu samhengi. Boðskapurinn er að
öllum ætti að vera í lófa lagið að
draga úr óhóflegri sóun og endurnýta
hlutina.
Græni skjárinn – Heimildar-
mynd um endurnýtingu
Endurnýting Allir geta dregið úr
óhóflegri sóun með því að endurnýta.
Ferðalag í leit
að lausnum
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?