Morgunblaðið - 27.12.2016, Síða 18
Bitcoin hefur
hækkað hratt
Heildarvirði bitcoin rauf 14 millj-
arða dala múrinn á fimmtudag
Á flugi Á árinu hefur bitcoin ríflega
tvöfaldast í verði gagnvart dalnum.
Rafmyntin bitcoin hefur styrkst
mikið að undanförnu en um helgina
kostaði ein bitcoin-mynt 905 dali og
hefur verð bitcoin ekki verið hærra
síðan 2014.
Hæst fór verð bitcoin nálægt
1.150 dölum í desember 2013 en
lækkaði skarplega í framhaldinu og
hélst í námunda við 250 dala mark-
ið fyrstu þrjá fjórðunga ársins
2015. Síðan þá hefur myntin styrkst
nokkuð jafnt og þétt, með stöku
kippum.
Hefur verð bitcoin-mynta, mælt í
dollurum, meira en tvöfaldast á
þessu ári. Þá hefur heildarvirði
bitcoin-mynta í umferð aldrei verið
hærra og er núna röskir 14 millj-
arðar dala, sem er á við meðal-
markaðsvirði fyrirtækjanna sem
mynda FTSE 100-hlutabréfavísitöl-
una.
Brexit, Kína og ógildir seðlar
Breska blaðið Guardian bendir á að
styrkingu bitcoin megi að hluta
tengja við veikingu kínverska ren-
minbísins, en mjög virkur mark-
aður með bitcoin er í Kína og sumir
þar í landi sem nota rafmyntina til
að fara á svig við gjaldeyrishöft
stjórnvalda. Þá efldist bitcoin líka
þegar niðurstöður Brexit-
atkvæðagreiðslunnar lágu fyrir í
sumar.
Einnig er talið að aðgerðir ind-
verskra og venesúelskra og stjórn-
valda, sem nýlega ógiltu útbreidda
peningaseðla, hafi haft styrkjandi
áhrif á bitcoin. Loks virðist að bæði
almenningur og fjárfestar um allan
heim nýti rafmyntina í vaxandi
mæli sem skjól til að geyma verð-
mæti á pólitískum óvissutímum.
ai@mbl.is
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
STURTUKLEFAR
Mælum, framleiðum,
útvegum festingar og
setjum upp.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
Blaðamenn Financial Times hafa
það fyrir sið í lok hvers árs að taka
saman lista yfir fjárfestingar-
ákvarðanir sjóðs sem hefði getað
séð þróun markaða fyrir. Sjóður-
inn hefur fengið nafnið Hindsight
Capital og gæti því á íslensku kall-
ast Eftirhyggjusjóðurinn.
Reglur sjóðsins eru einfaldar:
hann fjárfestir ekki í hlutabréfum
einstakra félaga, hann má taka
skortstöðu en fjárfestir ekki með
lántöku, og má ekki breyta fjár-
festingum sínum nema einu sinni á
miðju árinu.
Grætt á óförum Argentínu
Eftirhyggjusjóðurinn byrjaði á
að veðja á gengi argentíska pesó-
ans, sem hefur veikst mikið, gagn-
vart brasilíska realnum, sem hefur
styrkst leifturhratt, og hagnaðist
um 43,5% á þeim viðskiptum. Þá
keypti sjóðurinn brasilísk hluta-
bréf en tók skortstöðu í vísitölu
hlutabréfamarkaðarins í Sjanghaí,
og hagnaðist þar um samtals 92,6%
reiknað í dölum.
Einnig sá sjóðurinn sér leik á
borði með því að selja pund og
kaupa bitcoin, og nam ávöxtunin af
þeim viðskiptum 118%.
Eftirhyggjusjóðurinn tók skort-
stöðu í S&P 500 fram að miðju
árinu en keypti bandarísk ríkis-
skuldabréf. Hann fór svo í þver-
öfuga átt frá og með 1. júlí með
hlutabréfakaupum og skortstöðu í
ríkisskuldabréfum og græddi á því
40,6%.
Bankar, málmar og kol
Lék sjóðurinn sama leik með því
að kaupa góðmálma en taka skort-
stöðu í iðnmálmum og víxla á miðju
árinu. Útkoman var 53,6% ávöxt-
un.
Sjóðurinn keypti hlutabréf
bandarískra banka um leið og hann
tók skortstöðu í bönkum á evru-
svæðinu og hagnaðist um 34,6%.
Mesta ávöxtun var samt að fá
með því að veðja á kolaorku og
gegn hreinum orkugjöfum. Með
skortstöðu í S&P Global Clean
Energy-vísitölunni og kaupum á
Stowe Global Coal-vísitölunni
ávaxtaði Eftirhyggjusjóðurinn fé
sitt um 155,7%. ai@mbl.is
AFP
Gróði Á NYSE. Margir myndu vilja fjárfesta eins og Eftirhyggjusjóðurinn.
Viðburðaríkt ár hjá
Eftirhyggjusjóðnum
Hefði stórgrætt á að veðja á kolaorku
Kínversk stjórnvöld hafa sektað
General Motors um 29 milljónir
dala vegna brota á reglum um
auðhringamyndun. GM, sem er
stærsti bílaframleiðandi Banda-
ríkjanna, er gert að sök að hafa
refsað bílaumboðum sem seldu
bíla undir því lágmarksverði sem
bílaframleiðandinn hafði ákveðið.
Bloomberg segir þetta í fyrsta
skipti sem GM er sektað í Kína,
en fyrirtækið er næststærsti er-
lendi bílaframleiðandinn á kín-
verska markaðinum, á eftir VW.
ai@mbl.is
AFP
Deilur Höfuðstöðvar GM í Detroit.
GM fær háa
sekt í Kína
Um áramót taka gildi breytingar á
tekjuskattþrepum einstaklinga.
Verður miðjuþrepið fellt niður og
lægra skattþrepið lækkar úr
22,68% niður í 22,5%. Efra þrepið
helst óbreytt í 31,8% og miðast við
árstekjur yfir rösklega 10 millj-
ónum króna.
Einnig hækkar persónuafsláttur
í samræmi við vísitölu neyslu-
verðs. Kemur þetta fram í frétt
sem birt var á heimasíðu fjármála-
og efnahagsráðuneytis. Frá ára-
mótum verður persónuafsláttur
634.880 kr. á ári sem er 1,9% eða
11.838 kr. hækkun milli ára. Þá
hækka skattleysismörk um 2,7%
þegar nýtt ár gengur í garð.
ai@mbl.is
Miðjuþrepið
fellt niður
Morgunblaðið/Þorkell
Krónur Lægra skattþrepið mun
lækka um brot úr prósenti.