Morgunblaðið - 27.12.2016, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.12.2016, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það hefurágerst áliðnum ár- um að hinn þögli meirihluti hafi orðið undir vegna ákafs minnihluta sem ekki sýnir sömu hófstill- ingu og meirihlutinn. Þögli meirihlutinn er, eins og nafn- giftin ber með sér, ekki mikið fyrir að hafa sig í frammi eða ýta skoðunum sínum upp á aðra. Ákafi minnihlutinn er annarrar gerðar. Hann telur sig hafa rétt fyrir sér í einu og öllu og að skoðanir hans eigi ekki aðeins að gilda fyrir hann heldur einnig fyrir alla aðra. Og hann linnir ekki látum fyrr en hann hefur orðið ofan á, sem er iðulega ekki erfitt þar sem fyrirstaðan er lítil. Eitt dæmi um þetta eru heimsóknir ungmenna í kirkjur á aðventunni. Þögla meirihlutanum þykir sjálfsagt að börn sín fari í kirkjur á að- ventunni en ákafa minnihlut- anum hefur tekist að koma því þannig fyrir að skólar hika mjög við að senda börn í svo sjálfsagðar heimsóknir. Kirkj- an heldur sömuleiðis að sér höndum af ótta við að kalla yf- ir sig gagnrýni ákafamann- anna. Biskup Íslands, Agnes Sig- urðardóttir, kom inn á þetta í predikun sinni í Dómkirkjunni á jóladag og sagði meðal ann- ars: „Undanfarin ár hefur upphafist mikil umræða í þjóð- félaginu um fræðslutilboð kirkjunnar. En eitthvað ber á þreytu í umræðunni síðustu daga um þá nei- kvæðni sem birtist víða t.d. um skóla- heimsóknir barna.“ Sem dæmi um þetta vitnaði hún í grein Einars Kárasonar rit- höfundar, sem hafi sagt: „Það hefur verið dálítið merkilegt að fylgjast með mikilli hneykslun margra að und- anförnu yfir kirkjuheimsókn- um barna. Það er að segja því hversu fáheyrt sumum virðist finnast að krakkar heimsæki kirkjur; tónninn er stundum eins og ólögráða unglingar séu tældir inn á vafasamar búllur, spilavíti eða sellufundi öfga- hreyfinga og aðra slíka staði sem þeim eru ekki ætlaðir. En í sannleika sagt þá væri dálítið undarlegt ef íslensk börn kæmu ekki í kirkjur.“ Vonandi er það rétt hjá biskupi að neikvæða umræðan um kirkjuheimsóknir barna sé að verða þreytt. Þó ekki væri nema vegna menningar- sögulegs gildis kirkjunnar hér á landi ættu íslensk börn fullt erindi í kirkjur landsins til að kynna sér þær, sögu kristn- innar og þann boðskap sem kirkjan er reist á. Og boð- skapur kristinnar kirkju á fullt erindi til íslenskra barna ekki síður en annarra. Það er fjarstæðukennt að hið góða orð geti á einhvern hátt skað- að æsku landsins og lítill hóp- ur ákafamanna á ekki að fá að hindra ungmenni í að kynnast öllu því góða sem kirkjan hef- ur upp á að bjóða. Sjálfsagt er að börn heimsæki kirkjur, hitti presta og kynnist kristinni trú} Þögli meirihlutinn Vefþjóðviljinnvísar í gögn af vefsíðunni Our World in Data, sem nokkrir ein- staklingar við Ox- ford-háskóla halda úti. Á síðunni er að finna at- hyglisverðar upplýsingar um þróun nokkurra mikilvægra mála á síðustu tveimur öldum. Þróunin er með ólíkindum já- kvæð og þarf raunar ekki að horfa 200 ár til baka. Síðustu öldina, jafnvel síðustu áratugi, hafa orðið alger umskipti í að- stæðum mannkynsins. Ef horft er á sárustu fátækt hefur hún síðustu öldina minnkað gríðarlega. Fyrir einni öld bjuggu um 80% manna við sára fátækt, nú er þetta hlutfall komið undir 10%. Vissulega er enn verk að vinna, en full ástæða er til að fagna þróuninni. Svipaða sögu er að segja af lestrarkunnáttu. Fyrir um öld kunnu 20% mann- kyns að lesa, nú er þetta hlutfall kom- ið í 85% og fer vaxandi. Fyrir einni öld dó þriðja hvert barn á fyrstu fimm árum ævi sinnar. Nú er það um það bil eitt barn af hverjum 24 sem hlýtur þessi örlög. Árið 1916 var lýðræðislegt stjórnarfar hjá 14% mann- kyns, nú býr meirihlutinn, 56%, við slíkt stjórnarfar. Um leið og eðlilegt er að sjónir manna beinist frekar að því sem aflaga fer – fréttir bera þess til dæmis mjög merki – þá er nauðsynlegt að missa ekki sjónar á því að þróunin er almennt jákvæð. Við höfum það betra, erum betur menntuð, lifum lengur og höfum meira um eigið líf að segja en nokkru sinni fyrr. Allt er þetta mjög þakkar- vert. Okkur, þar með talið fjölmiðlum, hættir til að gleyma okkur í því sem aflaga fer} Þakkarverð þróun Þ etta ætlar að verða kostnaðarsamt ár, þegar litið er til brottfalls frægra einstaklinga sem hafa fylgt manni í áratugi. Fólk kvart- ar enda hástöfum og biður árið 2016 náðarsamlegast að láta gott heita og hafa sig á brott án frekara mannfalls. Sé að gáð voru dauðsföllin þó misóvænt í reynd, þó það sé alltaf sjónasviptir að þeim sem hafa birst okkur hinum sem ósnertanlegir hálfguðir. En Leonard Cohen var kominn vel á níræðis- aldur, David Bowie hafði verið helsjúkur af krabba (hann sagði það bara engum) og þann- ig mætti áfram telja. Allt fram streymir og á skal að ósi stemma. Jafnvel glæsilegustu gigg taka enda. En það var átakanlegt að sjá á bak George Michael aðeins 53 ára, en hann lést á jóladag. Hann hefði átt að eiga eitthvað inni þó að þunglyndi, lyfjaát og minnimáttarkennd hafi plagað hann með hléum síðasta aldarfjórðunginn. Michael var ósvikið séní, bæði hvað varðaði lagasmíðar og textagerð, og þó undir- ritaður hafi verið Duran Duran-megin í tilverunni á ár- unum 1982-1985 þá varð því aldrei neitað að gaurinn gat sungið flestum betur, hann kunni að klæða sig og greiða. Maður tók ósjaldan punkta þegar hann skipti um stíl og bætti við í framhaldinu við eigin stílabók. Það háði George Michael að brjótast til frægðar með- an samkynhneigð var enn litin hornauga í bransanum, og hann hélt sig því framan af í skápnum, með tilheyrandi sálarflækjum. Í dag skiptir það réttilega ekki nokkru máli og tónlistarfólk getur náð ár- angri burtséð frá því hver kynhneigð þess er. Auk þess gekk honum illa að finna sér fjöl eft- ir aldamótin, endurnýja sig eftir því sem árin færðust yfir, ef svo má segja, og hann hélt sig í auknum mæli til hlés. Hann hefði átt að leggja alfarið í djass-skotið melódíupopp sem fór honum alltaf framúrskarandi vel, þá má ljóst vera að honum hefði vel farnast. Ímynd- ið ykkur 12 laga plötu af lögum í líkingu við Kissing a Fool, Cowboys and Angels og Fast- love. En heimurinn getur farið jafnómjúkum höndum um fræga fólkið þegar á móti blæs, eins og hann er því góður þegar byrinn er í bakið. Bransinn er líka fljótur að bregða fyrir þig fæti ef þú ert ekki til í að leika eftir regl- unum. Þessu fékk okkar maður að kynnast þegar hann vildi brjótast úr hjartaknúsarahlutverkinu og gerast alvarlegur tónlistarmaður. Útgáfufélag hans, Sony, hélt nú ekki og úr varð áralöng barátta þeirra í millum. Hver man ekki pilluna sem hann sendi Sony í myndbandinu við Fastlove árið 1996, þegar í nærmynd sjást – í örstutta stund – heyrnartól sem á stendur “Fony“ í auðþekkjanlegri leturgerð Sony? Snyrtilegur rýtingur undir rós. En George Michael syngur ekki fleiri ný lög hérna megin og ekki annað í boði en að vísítera plötusafnið sem hann skildi eftir. Nú blasir manni við hvað átt hefur. jonagnar@mbl.is Jón Agnar Ólason Pistill Deyr fé, deyja stjörnur STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ný úttekt Byggðastofnunar varpar ljósi á hvernig atvinnutekjur ein- staklinga hafa þróast eftir ein- stökum byggðarlögum og svæðum landsins og svo í atvinnugreinum allt frá hruninu árið 2008. Þar kem- ur í ljós að samanlagðar atvinnu- tekjur einstaklinga í fyrra voru tæpir 980 milljarðar kr. og að raun- virði voru tekjurnar ríflega pró- senti hærri en þær voru hrunárið 2008. Á sama tíma hefur hins vegar íbúum landsins fjölgað um rúmlega 5%. „Atvinnutekjur á hvern íbúa eru því enn nokkuð lægri en þær voru árið 2008, fyrir hrun,“ segir í skýrslu Byggðastofnunar. Meðal þess sem kom í ljós er að atvinnutekjur hækkuðu mest á Suðurnesjum og á Suðurlandi en einnig nokkuð á Norðurlandi eystra á þessu tímabili frá hruni og til loka síðasta árs. Á sama tíma stóðu þær í stað á höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi en drógust saman á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austurlandi. Upplýsingarnar sem birtar eru í skýrslunni eru byggðar á sér- vinnslu Hagstofunnar fyrir Byggðastofnun úr staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra. Samanburðurinn sýnir staðgreiðslutekjur ein- staklinga, laun og reiknað endur- gjald en aðrar tekjur, s.s. greiðslur úr lífeyrissjóðum og bætur, eru ekki meðtaldar. Ef rýnt er í tölurnar um tekjuþróunina kemur í ljós að þær hafa verið mjög breytilegar innan landshluta og jafnvel er mismunur á atvinnutekjum fólks milli byggða sem liggja þétt saman. „Á höfuð- borgarsvæðinu varð samdráttur í Reykjavík og á Seltjarnarnesi, en aukning á atvinnutekjum í öðrum sveitarfélögum á svæðinu. Á Suður- nesjum er svipaða sögu að segja þar sem mikil aukning varð í Grindavík, nokkur í Reykjanesbæ en samdráttur í hinum sveitarfélög- unum þremur,“ segir m.a. í niður- stöðunum. Fleiri dæmi benda til verulegs munar á atvinnutekjum eftir byggðum landsins. Þannig má t.d. rekja nær alla aukningu atvinnu- tekna á Norðurlandi eystra á þess- um árum frá hruni til Eyjafjarðar- svæðisins á meðan Þingeyjar- sýslurnar rétt halda sínu. Minnkuðu um 60 milljarða Ekki kemur á óvart að mestur samdráttur varð á atvinnutekjum fólks á milli áranna 2008-2015 í byggingarstarfsemi og mann- virkjagerð og í fjármála- og vá- tryggingastarfsemi. Atvinnutekjur einstaklinga í þessum greinum minnkuðu samtals um rúma 60 milljarða kr. ef seinasta ár er borið saman við árin þegar mest var. Aukningin dreifist hins vegar á fleiri greinar. Þar eru helstar veit- inga- og gistirekstur, fiskvinnsla, leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta, flutningar og geymsla sem allar tengjast ferðaþjónust- unni fyrir utan fiskvinnsluna. Sam- tals nemur aukning í þessum grein- um 52 milljörðum kr. á umræddu tímabili að því er fram kemur í skýrslunni. Bent er á að atvinnutekjur í sjávarútvegi árið 2015 voru yfir 80 milljarðar kr. Þar af er hlutur fisk- vinnslunnar 33,7 milljarðar kr. At- vinnutekjur í greininni í heild juk- ust á árunum 2008-2015 um 13,2 milljarða kr. eða tæp 65%. Aukningin var hægfara fyrstu þrjú árin eftir hrun, en varð mjög mikil á árunum 2012 og 2015 þegar atvinnutekjur af fiskvinnslu jukust um 21% og síðan um 17% hvort ár. Á sama tímabili áætlar Hagstofa Íslands að starfsfólki í fiskvinnslu hafi fjölgað úr 2.500 í 3.200 eða um 28%. Ólíkar tekjur milli byggða og greina Atvinnutekjur eftir landssvæðum Breyting 2008-2015 í milljónum kr. 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 -2.000 He im ild :A tv in nu te kju r2 00 8- 20 15 ef tir at vin nu gr ei nu m og sv æ ðu m ,B yg gð as to fn un Alls 11.613 2.094 9.519 4.199 -446 -257 2.727 -956 4.163 67 Höfuð- borgar- svæðið Lands- byggðin Suður- nes Vestur- land Vest- firðir Norð- vestur- land Norð- austur- land Austur- land Suður- land Athyglisvert er að skoða þró- un atvinnutekna í fiskveiðum á raunvirði á því tímabili sem liðið er frá hruninu. Verðmæti þeirra fór upp um 11 milljarða kr. á fyrri hluta tímabilsins og síðan niður um 10 milljarða kr. að þvi er fram kemur í skýrslunni. Í upphafi tímabils- ins voru þær 45,3 milljarðar kr. á ári, fóru hæst í 56,3 milljarða kr. árið 2012 en voru komnar niður í 46,4 milljarða kr. árið 2015. Um 77% at- vinnutekna af fiskveiðum eru í landsbyggðunum en hlutur höfuðborgarsvæðisins hefur þó aukist. Segir að skýringa á þessu sé að leita í launakerfi sjómanna sem byggir á afla- skiptakerfi sem þýðir að tekjur sjómanna miðast við aflaverðmæti. Hækki afla- verðmæti í íslenskum krónum fara tekjur sjómanna upp og öfugt. Undanfarin ár hefur ís- lenska krónan styrkst gagn- vart erlendum myntum og aflaverðmæti minnkað að raunvirði. Upp og niður um 10 milljarða TEKJUR OG FISKVEIÐAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.