Morgunblaðið - 27.12.2016, Side 30

Morgunblaðið - 27.12.2016, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2016 Munið að slökkva á kertunum Best er að kæfa eldinn þegar slökkva á í útikerti svo. Ég fann svo upptökurnar í tölv- unni minni mörgum árum seinna og fann að verkið passaði á plötuna. Ég átti samt erfitt með að hafa það með, það var alls ekki nógu vel spil- að til að setja á plötu. Ég lærði því verkið og fór í stúdíó og gerði þetta almennilega, en svo var það bara eitthvað við þessa gömlu upptöku sem var svo spes, þetta eru í raun tvær upptökur sem fá að rúlla sam- an og færast alltaf lengra í burtu frá hvor annarri, að hún fékk að vera með á endanum þrátt fyrir að mitt klassíska egó hafi átt mjög erf- itt með það.“ segir hún og hlær. „Hún er öll pínkulítið völt sem er bannað í klassískri músík en svo fannst mér það bara gott. Upptök- urnar á plötunni eru allar teknar upp læv með tónlistarmennina í herberginu og allt óklippt og öllu leyft að vera, mistökum og krump- um. Ég held að til þess að sigrast á fullkomnunaráráttunni hafi ég þurft að gera þetta svona, en satt að segja vildi ég taka allt upp aftur. Messiaen er það eina sem ég tók upp nokkrum sinnum áður en ég var ánægð, en hitt er mjög sjálfs- prottið og ég leyfi mér að vera ófull- komin.“ Sem stendur er Gyða að skipu- leggja tónleika sem hún hyggst halda á nýju ári, en er ekki búin að ákveða hvenær. „Ég hef aðallega verið að spila lög eftir sjálfa mig á tónleikum, en til að flytja Epicycle þarf ég smá band með mér. Þegar ég spila með Shahzad hef ég bland- að því saman. Þetta kallar aftur á móti á sína eigin hljóðfærasveit því mig langar til að flytja plötuna í heild og svo kannski með ein- hverjum öðrum verkum til viðbótar sem ekki eru á plötunni.“ Ilmur af draumsóleyjum Platan er tekin upp „úti um allt“ eins og Gyða lýsir því, á árunum 2012-2013. „Það eru tvö ár síðan ég kláraði plötuna, en ég var ekki tilbúin að gefa hana út fyrr en núna. Ég vissi ekki hvernig ég vildi koma henni frá mér, en á endanum setti ég hana á Bandcamp. Það er svo erfitt í dag að vita hvernig maður á að búa til eitthvað efnislegt með tónlist og þess vegna gerði ég frækort,“ segir hún og sýn- ir mér kort úr þunnum pappír sem búið er að koma draumsóleyjar- fræjum í og hægt að leggja í mold og vökva svo upp spretti blóm. Á kortinu eru svo upplýsingar um tón- listina og niðurhalskóði fyrir Band- camp-vefsíðu hennar. „Ég lít samt á þessa plötu sem heild og þó hún hafi ekki enn komið út á vínyl þá er ég búin að hugsa hvað passi á hvora hlið. Mér finnst líka erfitt að velja eitt verk af plöt- unni eftir að vera búin að taka þessi ólíku verk og setja þau saman í einn heim. Í einni tónleikaferðinni bjó ég til lykt fyrir lögin mín, seldi litlar flöskur með lykt sem ég bjó til út frá því hvaðan lögin komu og mín- um minningum um þau, en svo fylgdi niðurhalskóði fyrir hvert lag.“ Sorgarsöngvasinfónía og tvíburahljómsveit – Hvað annað ertu að fást við í tónlist? „Ég hef aðallega verið að vinna í samstarfsverkefnum um allan heim. Ég spilaði mikið og lenti í ævintýr- um með Josephine Foster, hef sam- ið tónlist fyrir dansverk og tók upp þriðju sinfóníu Goreckis með Colin Stetson. Ég hef líka unnið mikið með Ragnari Kjartanssyni og tekið þátt í hans verkum. Eitt af því sem er framundan er að taka upp eitt af hans hugarfóstrum sem er tvíbura- hljómsveit með mér og Kristínu Önnu systur minni og þeim Aaron Dessner og Bryce Dessner úr hljómsveitinni The National. Við er- um búin að semja plötu sem við ætl- um að taka upp í janúar. Svo hef ég einnig verið að flytja mína eigin tónlist.“ Undanfarin ár hefur Gyða verið á faraldsfæti, búið í ferðatöskum, seg- ir hún við mig, og fengist við ólíkar gerðir tónlistar í ólíkum löndum. Hún segir að það hafi verið góður tími fyrir sig, „en þegar ég er heima þá er ég rosalega heimakær og vil helst ekki fara úr húsi. Það að búa hvergi gerði mig aftur á móti mjög rólega á hverjum stað fyrir sig, mér leið ekki eins og ég þyrfti að fara heim. Fyrsta hálfa árið fannst mér reyndar eins og ég þyrfti að eignast heimili, en þegar ég náði að sleppa Heimkoma heimalningsins  Gyða Valtýsdóttir snýr heim eftir að hafa búið í ferðatösku víða um heim  Sendir frá sér plötu með verkum sem spanna ríflega tvö þúsund ár VIÐTAL Árni Matthíasson arnim@mbl.is Fyrir stuttu gaf Gyða Valtýsdóttir út diskinn Epicycle sem hefur að geyma klassísk tónverk úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímabilum, það elsta frá árinu 200 fyrir Krist og það yngsta frá tuttugustu öldinni, og tónskáldin einnig frá ýmsum löndum. Þannig eru á disknum verk eftir Prokofiev, Seikilos, Harry Partch, Franz Schubert, George Crumb, Robert Schumann, Olivier Messiaen og Hildegard af Bingen. Ýmsir hljóðfæraleikarar koma við sögu á plötunni, Shahzad Ismaily, Hilmar Jensson, Michael York, Juli- an Sartorius og Danny Tunick, en Gyða raular og leikur sjálf á selló, píanó og zither. Gyða segir að verkin hafi komið til sín smám saman yfir árin. „Prokofiev var til dæmis hugmynd sem ég fékk þegar ég var átján ára að læra á píanó og var að spila þennan kafla löturhægt og féll inn í tónbilin. Önnur verkanna hef ég haft svo gaman af að spila og önnur koma til þannig að ég fór að leita nýrra leiða til að spila þau, eins og Messiaen sem ég fór að spila með Shahzad Ismaily á rafmagnsgítar. Hvað Hildegard af Bingen varðar þá var ég að lesa dagbókina hennar og var innblásin að lesa yfir tónlist- ina og tók það upp en gleymdi því Sjálfsprottið Gyða Valtýsdóttir gaf út diskinn Epicycle sem hefur að geyma klassísk tónverk úr ýmsum áttum og frá ýmsum tíma- bilum, það elsta frá árinu 200 fyr- ir Krist og það yngsta frá tutt- ugustu öldinni. „Ég hef aðallega verið að vinna í samstarfsverk- efnum um allan heim,“ segir hún um störf sín undanfarin ár. George Michael lést 53 ára gamall á jóladag. Hann var einn merkasti söngvari og lagahöfundur Breta síð- ustu 35 árin og sömuleiðis einn sölu- hæsti tónlistarmaður heims. Umboðsmaður hans, Michael Lip- man, staðfesti í gær að poppstjarnan hafi látist af völdum hjartabilunar. Sagðist hann jafnframt vera „eyði- lagður“ en Michael hafi fundist „liggjandi friðsamlega upp í rúmi“ á heimli sínu í Goring, Oxfordshire. Þá greindi lögreglan frá því að krufning yrði gerð og litið sé á dauða Michael sem „óútskýrðan en ekki grun- samlegan“. Hann skaust fyrst upp á stjörnu- himininn með hljómsveitinni Wham! í kringum árið 1980 og átti einnig mikillar velgengni að fagna á sóló- ferli sínum. Michael leyndi kyn- hneigð sinni árum saman en gerðist síðar ötull talsmaður og aðgerðasinni í þágu réttinda hinsegin fólks ásamt því að gerast aðalstuðningsmaður HIV-herferða. „Ég er í áfalli“ Fjöldi fólks minntist poppstjörn- unnar með því að leggja blómasveiga við heimili hans bæði í þorpinu Gor- ing við Thames-ánna og við Highgate í London. Madonna og Elton John voru einn- ig á meðal þeirra sem minntust Mich- ael á samfélagsmiðlum. „Bless vinur minn. Enn einn frábær listamaður kveður okkur. Getur árið 2016 farið til fjandans núna?“ skrifaði Madonna á Instagram-síðu sinni og birti mynd- band af þeim saman. Elton John minntist hans með orðunum: „Ég er í miklu áfalli. Ég er búinn að missa ástkæran vin. Vingjarnlegustu og ör- látustu sálina og frábæran lista- mann.“ Andrew Ridgeley, sem var hinn helmingur hljómsveitarinnar Wham!, sagðist vera með brostið hjarta vegna dauða Michael. „Ég, ástvinir hans, vinir, tónlistarheimur- inn, heimurinn allur. Elskaður að ei- lífu.“ Michael átti margt eftir í tónlist og listsköpun sinni þegar hann lést en fyrirhuguð var heimildarmynd um líf hans á næsta ári. Upptökustjórinn og lagahöfundurinn Naughty Boy var einnig að undirbúa nýja plötu með poppstjörnunni sem átti að koma út á næsta ári. Síðasta platan hans, Symphonica, fór í efsta sæti breska listans árið 2014. laufey@mbl.is George Michael fannst látinn á heimili sínu  Dauðsfall hans „óútskýrt en ekki grun- samlegt“  Margir minnast Michael AFP Farinn Poppstjarnan George Michael er látinn, 53 ára að aldri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.