Fréttablaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 6
Klettháls 13 · hnb.is · 590 5040
Audi A1 Sportback
1.4 TFSI
2.690.000 2010
3ja arma sport-aðgerðastýri, silfruð þakbogalína, ljósa- og
regnskynjari, loftkæling, Bluetooth símkerfi, 18” álfelgur,
álleggingar í innréttingu, Bi-xenon+ LED ljós, sportfjörðun
63.000Ekinn
30
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
Fleiri tilboðsbílar
og myndir á netinu: hnb.is
Margar stærðir,
fleiri litir.
Ford Mondeo Trend
1.6 Dísel
2.390.000 2011
101
Honda CR-V SUV
Executive 2.0
3.690.000 2011
95
Toyota Aygo X-Play
1.0
1.750.000 2015
14
Nissan Pathfinder SE
7 manna 2.5
5.690.0002013
94
VW Transporter 4x4
2.0 TDI
3.690.000 2014
153
VW Caravelle
Comfortline 2.0 TDI
6.990.000 2016
35
2.190.000 TILBOÐ
1.850.000 TILBOÐ 3.190.000 TILBOÐ
4.180.000 TILBOÐ 1.590.000 TILBOÐ
LÝÐHEILSA Ísland er efst þjóða Evr-
ópu í samantekt hagstofu ESB,
Eurostat, yfir hlutfall íbúa sem
hreyfa sig að lágmarki í 150 mín-
útur á viku hverri utan vinnutíma.
Yfir sextíu prósent landsmanna ná
því marki. Það er tvöfalt hærra en
meðaltal þjóða Evrópu.
Ráðlögð lágmarkshreyfing á
viku, samkvæmt Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni (WHO), er 150
mínútur utan vinnu. Í öðru sæti eru
Norðmenn en 57 prósent íbúa eru
yfir markinu. Finnar eru efstir þjóða
ESB en 55 prósent þeirra hreyfa sig í
150 mínútur eða meira á viku.
Á hinum endanum má finna
Rúmena, Búlgara og Tyrki en í
öllum löndunum eru færri en einn
af hverjum tíu sem ná 150 mín-
útna hreyfingu á viku eða meira.
Þá hreyfa 28 prósent Íslendinga
sig ekkert utan vinnutíma og er
hlutfallið hið sjötta lægsta af þeim
löndum sem úttektin nær til.
Úr niðurstöðunum má lesa að
fleiri karlar en konur nái þröskuldi
WHO og að langskólagengnir hreyfi
sig meira utan vinnu heldur en þeir
sem eru minna menntaðir.
Tölurnar byggja á tveggja ára
gömlum gögnum frá 26 aðildar-
þjóðum ESB auk gagna frá Íslandi,
Noregi og Tyrklandi. Miðað var
við hreyfingu utan vinnutíma en
hins vegar voru hjólreiðar til vinnu
taldar með. – jóe
Hreyfum okkur mest allra Evrópuþjóða
Íslendingar eru duglegastir þjóða Evrópu við að hreyfa sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
VIÐSKIPTI Ekki hefur verið rætt
um að Úlfar Steindórsson láti af
stjórnarsetu í Lífeyrissjóði verslunar-
manna (LV) eftir að hann var kjörinn
stjórnar formaður Icelandair. LV á
um fimmtán prósenta hlut í flug-
félaginu.
Úlfar er tilnefndur til stjórnarsetu
í LV af Samtökum atvinnulífsins. Á
stjórnarfundi SA í upphafi árs voru
samþykktar reglur um tilnefningar
samtakanna í stjórnir lífeyrisjóða. Í
fjórðu grein þeirra segir að stjórnar-
menn skuli ávallt huga að eigin hæfi
og gæta þess að ekki skapist hætta á
hagsmunaárekstrum
Þá skulu stjórnarmenn tilnefndir
af SA ekki gefa kost á sér til stjórnar-
setu í félögum þar sem viðkomandi
lífeyrissjóður tilnefnir stjórnarmenn,
beitir atkvæðarétti í stjórnarkjöri eða
á þátt í tilnefningu stjórnarmanns.
Reglurnar tóku gildi 1. janúar 2017.
Úlfar var endurkjörinn í stjórn
Icelandair, tveimur mánuðum eftir
að reglurnar tóku gildi, síðastliðinn
föstudag en hann hefur setið í stjórn-
inni síðan 2010. Hann var kjörinn
formaður af nýrri stjórn. Aðspurður
sagði Úlfar að það væru engar reglur
eða lög sem gerðu kröfu um að hann
hætti í stjórn LV í kjölfar kjörsins.
„Ég vissi ekki af reglunum. Hefði
ég vitað af þeim hefði ég sagt svo,“
segir Úlfar eftir að honum var bent
á ákvæði hinna nýju reglna. Það
hafi ekki verið rætt við hann um
málið enda stutt síðan aðalfundur
Icelandair var haldinn. „Þegar ég var
beðinn um að setjast í stjórn LV þá
var ég fyrir í stjórn Icelandair. Ef SA
hafa sett þessar reglur þá hljóta þeir
að koma til mín og láta mig vita af
þeim.“
Fyrir tveimur vikum auglýsti SA
eftir stjórnarmönnum í lífeyrissjóði.
Samtökin skipa helming stjórnar-
manna í þeim sjö lífeyrissjóðum
sem eru á samningssviði aðila og er
framkvæmdastjórn SA falin tilnefn-
ing stjórnarmanna. Sérstök hæfis-
nefnd fjallar um einstaklinga sem
gefið hafa kost á sér til stjórnarstarfa.
„Við hugsuðum reglurnar fyrir
nýja stjórnarmenn sem við mynd-
um skipa eftir setningu reglnanna
en ekki fyrir eldri stjórnarmenn,“
segir Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri SA. Ekki
hafi verið farið yfir stöðu Úlfars en
það komi til greina.
johannoli@frettabladid.is
Reglurnar eiga ekki við
um formann Icelandair
Nýr stjórnarformaður Icelandair er í stjórn LV tilnefndur af SA þótt reglur SA
séu að þeir sem samtökin tilnefnir í lífeyrissjóði sitji ekki í stjórn félaga þar sem
sjóðurinn beitir atkvæðisrétti í stjórnarkjöri. Reglurnar áttu að vera framvirkar.
Úlfar Steindórsson hefur verið í stjórn Icelandair frá 2010 og var kjörinn formaður hennar á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/HANNA
Við hugsuðum
reglurnar fyrir nýja
stjórnarmenn sem við
myndum skipa eftir setningu
reglnanna en
ekki fyrir eldri
stjórnarmenn.
Halldór Benjamín
Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri SA.
7 . m A r S 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r6 f r é T T I r ∙ f r é T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
4
-1
0
0
C
1
C
6
4
-0
E
D
0
1
C
6
4
-0
D
9
4
1
C
6
4
-0
C
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K