SÍBS blaðið - 01.10.2001, Síða 11

SÍBS blaðið - 01.10.2001, Síða 11
11 Tölfræ›ilegar uppl‡singar Skv. leyfi ráðuneytis eru dagvistarleyfi í Múlabæ 48 á dag. Á biðlista eru að jafnaði 15-20 manns og er hann forgangsraðaður. Fjöldi dvalargesta árið 2000 voru 1.454. Dvalardagar árið 2000 voru 11.580. Meðaltalsgestafjöldi á mánuði árið 2000 voru 121. Af þeim 120 einstaklingum sem innritaðir voru um áramótin voru konur 86, eða 72% og karlar 34, eða 28%. Aldursdreifing er breið, elsti einstaklingur var 99 ára, en yngsti var 65 ára. Læknir kemur einu sinni í viku. Fótaaðgerðafræðingur kemur tvisvar í viku. þar saman markvissar líkamsæfingar, gamanmál sem miðast að því að örva hugann, þá eru gjarnan rifjaðar upp vísur og glímt við gátur af ýmsum toga . Að lokum er slökun í nokkrar mínútur. Einstaklingsæfingar er einnig boðið upp á, og þar leiðbeina sjúkraliðar. Þar eru æfingarnar miðaðar við hæfni hvers og eins. Þar má nefna léttar tækjaæfingar, göngu-, jafnvægis- og teyjuæfingar og æfingar til að styrkja fínhreyfingar. Þessar æfingar miða að því að viðhalda þeirri færni sem fyrir er. Í tengslum við æfingarnar eru heitir bakstrar á boðstólum, þreyttar axlir, aumar mjaðmir og stífir hálsliðir njóta góðs af, hitinn linar mörg óþægindin þar. Baðaðstoð er veitt. Þá aðstoð nýta margir sér og láta sér líða vel eftir gott bað. Ekki má gleyma að huga að útlitinu og er möguleiki á að fá hárgreiðslu og klippingu og er sú þjónusta mjög vel nýtt. Á hárgrei›slustofunni Ýmislegt er gert til skemmtunar í félagsstarfi, en það fer á fulla ferð eftir hádegi. Þá er reynt að brjóta upp hefðbundið starf og slegið á létta strengi, t.d. spilað bingó eða keila. Aðrir kjósa að spila hver við annan á spil. Samsöngur með undirspili er vinsæll. Á góðviðrisdögum er oft farið í rútuferðir, og er þá gjarnan farið um ný hverfi í borginni og þau könnuð. Einnig er farið í styttri gönguferðir ef þess er óskað. Ljóða- og upplestur er alltaf vinsæll. Fastar skemmtanir að vetrinum eru jólagleði og þorrablót og er þar mikið fjör, dansað og sungið og skemmt sér af mikilli innlifun. Þegar miðdagskaffi er lokið er farið að huga að heimferð. Allflestir nýta sér heimkeyrslu er skipulögð er frá Múlabæ og er hún gegn vægu gjaldi, hvort sem um er að ræða keyrslu til eða frá Múlabæ. Reykjavíkurborg M ál e fn i al d ra › ra

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.