SÍBS blaðið - 01.10.2001, Síða 12

SÍBS blaðið - 01.10.2001, Síða 12
Edith Ásmundsson hefur búið á Íslandi í meira en hálfa öld. Hún er góður og gegn Íslendingur og talar bæði þýsku og íslensku með ágætum. Edith er fædd fjórum árum eftir að heimsstyrj- öldinni fyrri lauk. Nú lítur Edith yfir góða ævi á Íslandi, hún á bónda sinn og börn og heim- sækir ættingjana í Þýskalandi þegar færi gefst. Hún stundar starfsemi Múlabæjar í Ármúla 34 og lætur vel af því starfi sem þar er unnið við endurhæfingu vegna öldrunarsjúkdóma. Kom til Íslands með togara „Sumar minningarnar frá stríðinu eru vondar, en á þessum slóðum fann maður þó ekki svo mikið fyrir stríðinu. Það má segja að á mínum bernskuslóðum hafi verið sambland af sveit og bæ,“ segir Edith. Hún var í Vestur-Þýskalandi þegar hún sá auglýst í blaði eftir stúlkum til sveitastarfa á Íslandi. „Ég kom hingað með togara frá Akranesi og var sjóveik á leiðinni,“ segir hún og brosir að endurminningunni. „Mér fannst Ísland að mörgu leyti ágætt strax í byrjun, margt var þó frumstætt, til dæmis vantaði rafmagn á þessum tíma á Barða- ströndinni þar sem ég fór að vinna hjá Hákoni bónda í Haga og Björgu konu hans, og þarna voru engir vegir að heita mætti,“ segir Edith. Þau hjónin í Haga reyndust ungu, þýsku vinnukonunni vel. Hún kunni nokkuð til verka að heiman og líkaði vel í sveitinni enda þótt vinnubrögðin væru gamaldags miðað við það sem tíðkaðist í Þýskalandi. Tungumálið, hin framandi íslenska, reyndist Edith ekki stór hindrun. Hún segir margt líkt með uppbygg- ingu þýsku og íslensku. Hún náði góðum tökum á málinu og talar fallega íslensku. Ástin við nýju brúna En talandi um vegi. Eitt sumarið birtist brúar- vinnuflokkur til að bæta vegakerfi Barða- strandar sem ekki var vanþörf á. Í þeim hópi var ungur maður, Örn Ásmundsson, Aust- firðingur. Þarna við nýju brúna varð ljóst að hin unga Edith var ekki á förum frá Íslandi en það hafði verið hugmyndin. Þau Örn stofnuðu heimili í Reykjavík 1951 og eignuðust sex börn. Þau settust fyrst að í Selbykampi, herskála frá stríðinu sem var í stóru slíku hverfi á mótum Réttarholtsvegar og Sogavegar, en síðan lá leiðin í Vesturbæinn þar sem Edith hefur búið lengst af. „Ég hef ekki treyst mér til að fara til Þýska- lands í nokkur ár. Síðast þegar ég fór ein lenti ég tvisvar á spítala og fékk nóg af því,“ segir Edith. Hún gekk í gegnum uppskurði fyrir rúmum 10 árum, en meðalagjöfin misheppn- aðist, það kom upp krossverkun lyfja og Edith lá í hálfan sólarhring í dái hjálparlaus þangað til börn hennar komu henni til hjálpar. Veikindin urðu langvarandi og í heilan mánuð lá Edith í dái, - en þegar hún vaknaði fannst henni ekkert vera að. Í 8 mánuði var hún á spítala. Ánægð með lífið „Ég get ekki kvartað undan heilsunni, hún hefur verið upp og ofan, en yfirleitt er ég bara hress,“ segir Edith og hlær við. „Ég er ánægð með lífið. Hér hefur verið gott að dvelja. Og hérna á Múlabæ er alveg draumur að vera. Þær eru allar svo góðar við mann, stúlkurnar í leikfiminni, hjúkrunarfræðingarnir og allir sem hér eru. Ég kem hingað tvo daga í viku og líkar afskaplega vel,” sagði Edith Ásmundsson að lokum. JBP. 12 Frá strí›shrjá›u fi‡skalandi til rafmagnsleysis á Bar›aströnd Viðtal við Edith Ásmundsson sem sækir sér þrótt í starfsemi Múlabæjar V i › t a l i ›

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.