SÍBS blaðið - 01.10.2001, Blaðsíða 22

SÍBS blaðið - 01.10.2001, Blaðsíða 22
22 héldu aðalfund sinn í apríl sl. Til starfa tók ný stjórn, en hana skipa: Ingi Dóri Einarsson, for- maður, Dagbjört Theódórsdóttir, gjaldkeri, Brynja D. Runólfsdóttir, ritari, og meðstjórnendurnir Magnús Karlsson, Greta Jónsdóttir, Jóhanna Konráðsdóttir og Gunnar Guðmundsson. Úr stjórn gengu Jóhannes Kr. Guðmundsson, Guðlaug Guðlaugsdóttir, Kolbrún Guðmunds- dóttir og Björn Magnússon. Fyrsti félags- og fræðslufundir vetrarins var haldinn 20. september sl. og var gestur fundarins Ólafur Baldursson, lungnasérfræð- ingur. Fræðsluerindi hans fjallaði um slím- seigjusjúkdóma, sem er sjaldgæfur sjúkdómur, en mjög alvarlegur. Ólafur hefur ásamt 20 manna hópi verið að rannsaka þennan skæða sjúkdóm hér á landi, en Ólafur hefur einnig verið í hópi bandarískra vísindamanna, sem hafa stundar þessar rannsóknir. Mikið hefur áunnist, en enn er langt í land. Þessi sjúkdómur erfist, en er þó víkjandi. Góður rómur var gerður að erindi Ólafs og svaraði hann fyrirspurnum í lok erindisins. Næsti fundur félagsins verður 18. október, og verður þá gestur fundarins Andrés Sigvaldason, lungnasérfræðingur á Landspítala Háskóla- sjúkrahúsi - Vífilsstöðum. Erindi hans mun fjalla um erfðarannsóknir á langvinnum lungnateppusjúkdómum. Síðasti félags- og fræðslufundurinn fyrir áramót verður haldinn 22. nóvember og gestur fundarins þá verður Þórarinn Gíslason, dr. med., yfirlæknir á Lungnalækningaskor Landspítala Háskóla- sjúkrahúss. Erindi hans mun fjalla um framtíð lungnalækninga á Landspítala Háskólasjúkra- húsi. Fundirnir verða báðir haldnir í Safnaðarheimili Hallgrímskirkju í Reykjavík og hefjast kl 20. Þeir eru öllum opnir. Ný stjórn Samtaka lungnasjúklinga hefur sett sér þau markmið í vetur að vinna að því að styrkja stoðir HL-stöðvarinnar hér í Reykjavík. Biðlisti er fyrir þjálfum lungnasjúklinga hjá þeim og kemur þar til fjársvelti. Ástand þessara mála er mjög alvarlegt og þarf að knýja á við stjórnvöld að úr verði bætt. Stjórnin hefur einnig ákveðið að styðja og styrkja verkefnið: „Stuðningur eftir lungnameðferð á Reykjalundi“. Það verður unnið á vegum SÍBS undir stjórn Kolbrúnar Ragnarsdóttur og Hans Jakobs Beck. Verkefnið er fullmótað og mun hefjast á haust- dögum, en markmið þess er að styðja og styrkja lungnasjúklinga eftir meðferð á Reykja- lundi. Eftir forviðtal gefst sjúklingum kostur á tvenns konar úrræðum. Annars vegar fjölskylduviðtöl og hins vegar þátttaka í stuðningshópi. Hvor leiðin sem farið verður mun taka um tvo mánuði og þar verða tekin fyrir þau líkamlegu og andlegu vandamál, sem sjúklingurinn þarf að takast á við þegar veik- indi steðja að og breytingar verða á lífsháttum. Þetta er þáttur í lífi okkar, sem er ákaflega mikilvægur, því oftar en ekki vantar okkur lungnasjúklinga framhald á meðferð, þegar við höfum útskrifast af Vífilsstöðum, Reykjalundi eða lungnadeildum sjúkrahúsanna. Þetta starf mun fara fram í Rauða húsinu í Suðurgötu 8. Samtök lungnasjúklinga munu senda út sérstakt fréttabréf með nánari upplýs- ingum um verkefni þetta, þegar dagsetningar liggja fyrir. B.D.R. Samtök lungnasjúklinga Gjöf til Brá›amóttöku Landspítala Háskóla- sjúkrahúss vi› Hringbraut Öndunarmæling jafn sjálfsögð og einföld og blóðþrýstingsmæling! Þann 6. júní s.l. afhentu Samtök lungnasjúkl- inga Bráðamóttöku Landspítala Háskóla- sjúkrahúsi við Hringbraut að gjöf tæki til lungnamælinga (spirometer). Þetta var mikil hátíðisdagur hjá Samtökunum, þar sem þetta er fyrsta gjöfin, sem þau gefa til heilbrigðismála. Tæki þetta er frá Vitalo- graf, sem er leiðandi merki í framleiðslu slíkra tækja. Tækið er tengt við tölvu þar sem hægt er að geyma allar upplýsingar um þá sem rannsakaðir eru og hægt að prenta niður- stöður á venjulega tölvuprentara í stað þess að nota pappír með prentun sem eyðist með tímanum. Tæki þetta er tiltölulega ódýrt í rekstri og er einfalt í notkun. Það er auðvelt að fara með það inn á stofu til sjúklinga vegna þess hve létt það er og handhægt í notkun. Tækið sjálft er lítið stærra en venjulegt símtól. Það nýtist vel við greiningu lungnasjúkdóma jafnt á bráðamóttökum sjúkrahúsa svo og á heilsugæslustöðvum. Stjórn félagsins var ákaflega vel tekið á Bráðamóttökunni og var sýnt tækið í bak og fyrir, og það var prófað á staðnum. Okkur voru sýndar niðurstöður mælinga og hvernig úrvinnslan fer fram í grófum dráttum. Það gladdi okkur mikið þegar frá því var skýrt að til stæði að koma slíkum öndunarmælinga- tækjum inn á allar heilsugæslustöðvar í landinu. Verður þá heilsugæslulæknum ekkert til fyrirstöðu að gera öndunarmælingar á sjúklingum, enda á það að vera jafn sjálfsagður hlutur og að mæla blóðþrýsting.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.