SÍBS blaðið - 01.10.2001, Qupperneq 23

SÍBS blaðið - 01.10.2001, Qupperneq 23
23 Hlíðabær er til húsa í hlýlegu og einstaklega fallegu einbýlishúsi á mótum Flókagötu og Lönguhlíðar. Andrúmsloftið er notalegt og það er ró yfir heimilisfólkinu. Meðal þeirra er Una Herdís Gröndal, Reykvíkingur en segist einnig rekja ættir í Hergilsey og víðar um Breiðafjörð. Hún er Alzheimersjúklingur og fellst góðfúslega á að spjalla við blaðamanninn. Hún tekur þó fram að minnið sé ekki alltaf sem best vegna sjúkdómsins, einkum hvað snertir tímasetningar. „Svo þú kemur frá SÍBS,“ segir hún. „Ég var berklasjúklingur á Vífilsstöðum hér áður fyrr og á góðar minningar þaðan. Þar var oft glatt á hjalla þrátt fyrir að fólk væri veikt.“ Herdís er kvik og hressileg kona sem hefur sannarlega frá mörgu að segja. Hún hefur verið í Hlíðabæ síðan um miðjan síðasta vetur og segist una hag sínum þar afskaplega vel. „Þetta er sérstaklega góður staður að dvelja á. Starfs- fólkið hérna fær allt fyrstu einnkunn A,“ segir hún. „Heimilisbragur er með ágætum og öllum líður vel hérna. Þetta er nefnilega heimili en ekki stofnun og það er okkur mikils virði.“ Herdísi finnst sjúkdómur hennar frekar hafa haldist í horfinu síðan hún kom hingað en tekur fram að hún geti þó ekki gert sér fulla grein fyrir því. „Mér finnst dagarnir hérna dásamlegir og ég hlakka til þeirra, hvers og eins. Það er frekar að helgarnar séu erfiðari. Ég hef góða aðstöðu til þess að mála hérna niðri og það gefur mér mikið.“ Þetta er orð að sönnu, því í vinnuherbergi á neðstu hæðinni er að finna fjölmarga listmuni sem bera hand- bragði Herdísar gott vitni. Í samtali okkar kemur líka fram að Herdísi er margt fleira til lista lagt. Hún lærði ung að teikna og mála í Handíðaskólanum, hún lék á fiðlu í Sinfóníuhljómsveitinni í yfir fjörutíu ár og var ein af fyrstu hljóðfæraleikurum sveitar- innar. Köllunin til að spila vitjaði hennar í draumi þegar hún var nítján ára gömul. „Ég vaknaði um morguninn og sagði: „Mamma, ég held ég geti spilað á fiðlu.“ Og það var svo skrítið að ég kannaðist strax við gripið um háls- inn þegar ég snerti á fiðlunni.“ Í Hljóðfæra- verslun Sigríðar Helgadóttur sá hún svo gamla fiðlu sem Ólafur Ólafsson kristniboði hafði áður átt. Fiðlan hafði verið lengi úti í Kína og fékkst á 500 krónur. Nágranni Herdísar, Árni Arinbjarnar, þá átta ára gamall varð fyrsti kennari hennar. Hún segir að þegar hún sótti um inngöngu í Tónlistarskólann þá hafi setið þar í inntökunefnd Páll Ísólfsson og fleiri stórmenni úr tónlistarheiminum. „Kanntu eitthvað að spila?“ spurði Páll. „Ég hef fengið tilsögn í nokkrar vikur hjá strák hérna. Á ég að spila fyrir ykkur?“ „Nei, í guðanna bænum!“ sagði Páll. En Herdís var prófuð í takti og tónheyrn, komst í skólann og var nokkrum árum seinna með í stofnun Sinfóníuhljómsveitarinnar. Ég bið Herdísi að segja frá sjúkdómi sínum og viðbrögðum hennar við honum. „Mér finnst maður verða að reyna að gera sér grein fyrir því hvernig sjúkdómurinn þróast. Fyrir nokkrum árum fannst mér minnið vera farið að bila og fór til læknis. Hann lagði fyrir mig spurningalista, sem ég svaraði eftir bestu getu. Að því loknu sagði hann við mig að ég væri án vafa með Alzheimersjúkdóminn. Þetta var eins og köld gusa framan í mig og það tók tíma að jafna sig á þessum dómi. Ég man að meðal þess sem ég gat ekki svarað var hver hefði verið fyrsti forseti Íslands.“ En hvernig var afstaða hennar til Hlíðabæjar áður en hún kom hingað? „Ég sagði bara við dóttur mína: „Nú, já. Á nú að fara að setja mig í fóstur?!“ En svo var þetta bara hrein upplifun að koma hingað og sú tilfinning hefur haldist. Þetta er dásamlegur staður.“ Herdís er sagnabrunnur og margfróð og vissu- lega hefði verið gaman að ræða miklu fleira við hana, en hér verður ekki vettvangur fyrir það. Áleitin spurning í lokin: „Grípurðu ekki stund- um í fiðluna þína?“ Svarið er stutt en ákveðið. „Aldrei. Ég get ekki hugsað mér það. Þessi kafli í lífi mínu er að baki og þá er honum lokið. Mér finnst það best.“ P.B. „Mamma, ég held ég geti spila› á fi›lu“ V i ð t a l v i ð U n u H e r d í s i G r ö n d a l Hér er Herdís vi› nokkur verka sinna í vinnustofunni á ne›stu hæ›inni V i › t a l i ›

x

SÍBS blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.