SÍBS blaðið - 01.10.2001, Page 24

SÍBS blaðið - 01.10.2001, Page 24
24 Félagsmenn SÍBS eru alls um 6700. Landssam- tök hjartasjúklinga er stærst aðildarfélaga með um 3400 félaga. Önnur aðildarfélög SÍBS eru Astma- og ofnæmisfélagið og Samtök lungna- sjúklinga. Auk þeirra eru virkar deildir berklasjúklinga nú 6 talsins, ein deild sjúklinga með svefnháðar öndunartruflanir og Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna. Mikilvægt er að aðildarfélög SÍBS hafi hag af aðild sinni að samtökunum. SÍBS hefur því lagt áherslu á gott samstarf og stuðning við aðildarfélög sín í þeirri viðleitni að bæta hag hins almenna félagsmanns. Því tók SÍBS heilshugar þátt í framkvæmd Alþjóða hjarta- dagsins 30. september þar sem kjörorð dagsins var „heilbrigt hjarta fyrir lífið“. Tilgangur dagsins var að vekja fólk til umhugsunar um hjartað, mikilvægi hjartans og hvað hægt er að gera til þess að auka heilbrigði þess. Þannig getum við minnkað líkurnar á hjartasjúk- dómum og haft nokkur áhrif á örlög okkar. SÍBS dagurinn Nú eru u.þ.b. 60 ár síðan SÍBS fékk úthlutað fyrsta sunnudegi í október ár hvert til að halda upp á SÍBS daginn. Í upphafi starfs SÍBS varð til „Berklavarnardagur“, þar sem seld voru merki dagsins og ársrit SÍBS. Það var gengið í nánast hvert hús á landinu og viðtökur voru slíkar að unnt var að byggja Reykjalund og hefja starf sem löngu er landsþekkt. Þegar ákveðið var að byggja Reykjalund þá átti hann að verða „brú til lífsins“ og undir því nafni hefur hann svo sannarlega staðið. Nú stendur yfir bygging nýrrar endurhæfingarstöðvar á Reykjalundi. Með því verður enn frekari stoðum rennt undir brúna til lífsins. Markmið SÍBS eru skýr: Að styðja sjúka til sjálfsbjargar með forvörnum, endurhæfingu og uppbyggingu. Opið hús að Suðurgötu 10, sunnudaginn, 7. október SÍBS daginn í ár ber upp á sunnudaginn 7. október. Þá verður opið hús kl. 13–17 að Suðurgötu 10 á skrifstofum SÍBS og aðildar- félaga samtakanna fyrir alla sem vilja kynna sér starfsemina. Það er von SÍBS sem allra flestir sjái sér fært að heiðra SÍBS með nærveru sinni þennan dag og huga um leið að mikil- vægi starfs SÍBS í fortíð, nútíð og framtíð. Starfsemi SÍBS SÍBS er með höfuðstöðvar í Suðurgötu 10 í miðbæ Reykjavíkur. Þar er aðalumboð og höfuðstöðvar Happdrættis SÍBS. Framkvæmda- stjóri og félagsmálafulltrúi SÍBS starfa þar ásamt 7 starfsmönnum happdrættisins og þremur starfsmönnum Landssamtaka hjarta- sjúklinga. Astma og ofnæmisfélagið, Reykja- víkurdeild SÍBS og Samtök lungnasjúklinga hafa þar einnig skrifstofur og eru með viðveru starfsmanna eða stjórnarmanna. Verkefni SÍBS Rekstur SÍBS er fjármagnaður af Happdrætti SÍBS. Mikil samkeppni er á happdrættismarkaði á Íslandi og reksturinn því þungur. Stærstu útgjaldaliðir SÍBS nú auk rekstrarkostnaðar sambandsins eru framlög til byggingar endur- hæfingarstöðvar á Reykjalundi sem kosta mun 420 milljónir kr. og framlög til reksturs á Múlalundi, sem er sérhæfður vinnustaður fatlaðra þar sem að jafnaði vinna 65 starfs- menn í 40-45 stöðugildum. Auk endurhæfingarþjónustunnar að Reykjalundi er á staðnum rekin plastverksmiðja þar sem framleidd eru plaströr og umbúðir alls konar. Starfsmenn þar hafa verið u.þ.b. 50 talsins. Á öðrum stöðum hér í blaðinu er gerð grein fyrir starfsemi Múlabæjar og Hlíðabæjar og þætti SÍBS í rekstri þeirra. Af ofansögðu má sjá að SÍBS hefur mörgum brýnum verkefnum að sinna og að ástæða er til að hvetja fólk til að eignast miða í Happdrætti SÍBS og aðstoða þannig við að skjóta stoðum undir hina mikilvægu starfsemi sambandsins. SÍBS er með heimasíðu á Netinu; - http://www.sibs.is og þar er að finna upplýs- ingar á íslensku og ensku um starfsemi sambandsins, félaga innan þess, fyrirtæki þess og stofnanir og Happdrætti SÍBS. H.H. Alfljó›a hjartadagurinn 29. september sl. SÍBS dagurinn 7. október ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 www.utfararstofa.is

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.