SÍBS blaðið - 01.10.2001, Blaðsíða 28
28
Nú stendur yfir uppsetning og prófun á nýju
tölvukerfi Happdrættis SÍBS. Það leysir af
hólmi eldra kerfi sem hefur þjónað vel en var
komið á aldur, ef svo mætti segja. Keyptar voru
PC tölvur hjá fyrirtækinu EJS hf., en áður voru
notaðar hér Quantel tölvur sem eru dýrar í
innkaupum og viðhaldi. Unnið er að uppsetn-
ingu nýja kerfisins þessa dagana en það verður
síðan keyrt með eldra kerfinu fram til áramóta
til þess að tryggja að byrjunarvandamál sem
upp kynnu að koma valdi ekki neinum skaða.
Stefán Sæmundsson hefur veg og vanda af
nýja forritinu og uppsetningu þess á tölvurnar,
en hann hefur sinnt tölvumálum happdrættis-
ins hér í Suðurgötunni um árabil.
Ekki stendur að svo stöddu til að beintengja
umboðin við tölvukerfið hér í Suðurgötunni,
heldur geta þeir umboðsmenn sem eru tölvu-
væddir fengið prógrammið á geisladiski og
prentað miða sína jafnharðan. Á einum miða
geta síðan verið allt að tíu númer og endur-
nýjun skráð fyrir viðkomandi flokka. Ef kerfið
skilar því sem vænst er á þetta að geta minnk-
að handavinnu og þó einkum og sér í lagi
pappírsnotkun.
Eftir sem áður geta umboðsmenn skilað starfi
sínu án tölvutækninnar og verður komið til
móts við þá sem kjósa að fara þá leiðina.
Hjá Happdrætti DAS stendur yfir samskonar
endurnýjun á tölvukosti, en Happdrætti
Háskólans er þegar komið með tölvuvinnslu hjá
fjölmörgum umboðsmönnum.
PB
N‡tt tölvukerfi hjá Happ-
drætti SÍBS