SÍBS blaðið - 01.10.2001, Síða 33

SÍBS blaðið - 01.10.2001, Síða 33
33 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 – 105 Reykjavík Símar: 581 3300, 896 8242 Allan sólarhringinn Útfararstofa Íslands sér um: Útfararstofa Íslands útvegar: Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í samráði við prest og aðstandendur: – Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús – Aðstoða við val á kistu og líkklæðum – Undirbúa lík í kistu og snyrta ef með þarf – Prest – Dánarvottorð – Stað og stund fyrir kistulagningu og útför – Legstað í kirkjugarði – Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara, og/eða annað listafólk – Kistuskreytingu og fána – Blóm og kransa – Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum – Líkbrennsluheimild – Duftker ef líkbrennsla á sér stað – Sal fyrir erfidrykkju – Kross og skilti á leiði – Legstein – Flutning á kistu út á land eða utan af landi – Flutning á kistu til landsins og frá landinu Helgi Hróðmarsson hóf í ágúst sl. störf sem félagsmálafulltrúi SÍBS. Fram að því starfaði hann í rúm 13 ár hjá samtökum fatlaðra. Hann er fæddur og uppalinn á Akranesi og starfaði sem unglingur við ýmis verkamannastörf. Hann varð stúdent frá framhaldsdeild Samvinnuskólans á Bifröst. Eftir stúdentspróf starfaði hann í eitt ár hjá Tollstjóranum í Reykjavík. Helgi útskrifaðist svo sem viðskiptafræðingur frá Rockford College, Bandaríkjunum árið 1987. „Á heimleiðinni“ kom Helgi við í Noregi og starfaði þar í bandarísku fyrirtæki í tæpt ár á meðan kona hans lauk námi í hótelrekstrarfræði. Árið 1988 hóf hann síðan störf sem sameigin- legur starfsmaður Landssamtakanna Þroska- hjálpar og Öryrkjabandalags Íslands. Síðar sem starfsmaður Öryrkjabandalagsins en sinnti m.a. sameiginlegum verkefnum samtakanna, s.s. skipulagningu, undirbúningi og fjármögnun ýmissa aðgerða í þágu fatlaðra. Síðustu árin þróaðist starfið mikið yfir í erlend samskipti. ÖBÍ hefur átt aðild að norrænum, evrópskum og alþjóðlegum samtökum. Þessum tengslum hefur þurft að sinna og féll það að nokkru í hlut Helga. Eiginkona Helga er Sveinbjörg Björnsdóttir, hótelrekstrarfræðingur. Hún er fædd og uppalin á Laxamýri í Aðaldal. Þau eiga tvær dætur, Svövu Guðrúnu 9 ára og Birnu Kristínu 5 ára. Helgi sagði aðspurður að sér litist mjög vel á samstarfsfólkið í Suðurgötu 10 og hann hlakkar til að vinna með stjórn, framkvæmdastjóra og öðru starfsfólki að baráttumálum SÍBS. Hann segir mörg skemmtileg verkefni bíða úrlausnar og segist munu leggja sig fram við að sinna þeim sem best. P.B. N‡r félagsmálafulltrúi hjá SÍBS Helgi Hró›marsson

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.